Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 Fréttir DV Maður sem hóf störf hjá Áburðarverksmiðju ríkisins árið 1954: Krefst 11,5 milljóna vegna asbesteitrunar - sérfræðingar segja hann hafa verið með 100 prósent örorku frá 1998 Dánarbú manns sem lést fyrr á árinu, þá 76 ára íbúi í Reykjavík, krefur ríkissjóð um 11,5 miiljónir króna í bætur vegna tjóns sem mað- urinn varð fyrir á 40 ára starfsferli í Áburðarverksmiðjunni I Gufunesi. Komið hefur á daginn að maðurinn greindist með asbest í líkama sínum - hafði árum saman verið haldinn lungnasjúkdómi vegna innöndunar á asbestryki í verksmiðjunni. Tveir dómkvaddir matsmenn, annar lungnasérfræðingur en hinn sérfræðingur í atvinnusjúkdómum, hafa komist að þeirri niðurstöðu að maðurinn hafi verið með 100 pró- sent örorku frá árinu 1998 en 30 pró- sent frá 1992. Maðurinn var í starfi hjá Áburðarverksmiðjunni frá ár- inu 1953 til 1994, eða í rúm 40 ár. Lögmaður dánarbús mannsins stefnir bæði ríkinu og Áburðarverk- smiðjunni hf., núverandi eigendum, en málið er flutt fyrir héraðsdómi. Þar eru bótakröfurnar byggðar á því að þegar verksmiðjan var sett upp á árunum 1953-54 heíði asbest Aburðarverksmiðjan Lögmaöur dánarbús mannsins stefnir bæöi ríkinu og Áburðarverksmiðjunni hf., núverandi eigendum, en máliö er flutt fyrir héraösdómi. verið notað til að einangra tæki, katla og lagnir, m.a. gagnvart sýr- um og ætandi efnum sem notuð eru við framleiðslu áburðar. Þar hefði maðurinn m.a. andað að sér asbest- dufti úr asbestsementi. Á árunum 1960 til 1974 var unnið að því að rífa dagar til jóla Nýtt kortatímabil KrÍKq(cu\ fl Hfn/llll FVRIR JtllN MBTSÖLTILISTI EYMUNDSSON kildvcrk / 17. «ít Seiðmagnaður frásagnarstíll Vigdisar Gríms- dóttur nýtur sín hértil fulls þegar fólkið úr síðustu bók hennar, Frá Ijósi til Ijóss, tekst á við nýjan veruleika! litríku umhverfi - þar sem bláfuglar verpa (trjám og kraftaverkin gerast. „Litrík og seiðandi... afburðavel gert ... (Vigdis) skapar heillandi heim.“ Porgeröur E. Siguröardóttir / KASTJÓS „ ... sterkt andrúmsloft hennar d sér varla hliðstceðu í annarrí íslenskri skóldsögu.“ Soffla Auöur Birgisdóttir / MORGUNBLAÐIÐ „Þetta er alveg yndisleg bók sem maður vill ekki að endi... ótrúlega skemmrilegt persónugaUerí.“ „Þetta er frábœr bók.“ Gfsli Marteinn SJÓNVARPIÐ Súsanna Svavarsdóttir / STÖÐ 2 JfJij JPV ÚTGÁFA Bræöraborgarstígur 7 • Sími 575 5600 og fjarlægja gömul tæki sem ein- angruð voru með asbestefnum - þessum framkvæmdum hefði mað- urinn tekið þátt í á þessum eina og hálfa áratug og andað að sér as- bestrykinu. Aftur var unnið við að rífa tæki, einangruð með asbesti, á árunum 1980 til 1983. Eftir þetta fór maðurinn að finna meðal annars fyrir verk fyrir brjósti. Læknar sögðu honum þá að hjartað væri að gefa sig. Fékk hann meðhöndlun en í desember 1999 fór maðurinn til sérfræðings og þá kom á daginn að ástæðan fyrir mikilli mæði og brjóstverkjum var að hann væri með asbest í lungum. Fyrsta asbestmáliö Það sem ríkið gerir til að halda uppi vömum er að asbest hafi alls ekki verið bannað hér á landi fyrr en eftir 1983 - eftir að framangreind- ar bygginga- og endurbótafram- kvæmdir áttu sér stað í verksmiðj- unni í Gufunesi. Því geti bótaskylda ekki hvilt á ríkissjóði. Ákveðið hef- ur verið að hafa dóminn fjölskipað- an með tveimur héraðsdómurum og einum lungnasérfræðingi. Eftir því sem best er vitað er hér um að ræða fyrsta bótamálið sem sótt er hér á landi vegna sjúkdóma sem stafa af asbestmengun. -Ótt Húsasmiðjubókin vekur gífurlega athygli: Öfrægingarherferð - segir Árni Hauksson, núverandi forstjóri „Þessi ófrægingarherferð Boga Þórs Siguroddssonar á hendur mér og Húsasmiðj- unni kann að vera vel til þess fallin að selja jólabæk- ur en er engu að síður al- gjörlega byggð á sandi,“ sagði Árni Hauksson, for- stjóri Húsasmiðjunnar, um þá miklu athygli og uinfjöll- un sem bók Boga Þórs, Fjandsamleg yfirtaka, hefur fengið eftir að hún kom út. Þar ásakar Bogi Þór Árna og Hallbjörn Karlsson um að hafa farið á bak við sig og keypt Húsasmiðjuna. Bogi Þór segir að hann hafi ekki vitað betur en að hann og Árni væru að kaupa fyrir- tækið þar til hann hefði fengið sím- Arnl Hauksson. tal þar sem var staddur á Spáni. Þar hefði honum ver- ið tilkynnt að búið væri að selja fyrirtækið öðrum. Mál- ið snúist fyrst og fremst um viðskiptasiðferði. „Maður sem sakar aðra um skort á siðferði ætti að líta í eigin barm og hugleiða sið- ferðið í því að birta trúnaðar- upplýsingar um viðskipta- leyndarmál Húsasmiðjunnar og skáld- uð samtöl og símtöl sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum," sagði Ámi enn fremur um þær ásakanir sem Bogi Þór hefur lýst á hendur honum í bókinni og fjölmiölum. -JSS Sjá viðtal við Boga Þór Siguroddsson á bls. 14 Leyfi fengið fyrir rjúpnainnflutningi: Verðið líklega 1000 til 1500 krónur Leyfi hefur fengist frá grænlensk- um yfirvöldum til þess að flyfja inn allt að 6000 rjúpur frá Grænlandi. Staðið hefur á leyfi frá Grænlandi þar sem allt púður hefur farið í kosningaslag vegna kosninga til landstjórnar Grænlands. Innflytj- andinn, Orri Vigfússon, segir að enginn snjór sé á mörgrnn þeirra staða þar sem til standi að skjóta þessar rjúpur og því sé aðeins búið að skjóta lítinn hluta rjúpnanna. Reynt er að hraða þessu eins og hægt er en Orri telur afar litlar lík- ur á því að það takist að uppfylla leyfið, þ.e. að flytja inn 6000 rjúpur. Auk þess er veður nú afar slæmt á Grænlandi og ekkert flugveður nema birti til. „Ég geri ráð fyrir að verðið á þeim verði svipað og markaðsverð hér, eða 1.000 til 1.500 krónur, sem er svipað verð og fyrir jólin í fyrra. En ef verðiö fer upp í 2000 krónur er þetta orðið ansi dýr matur, það við- urkenni ég. Ég borða sjálfur saltflsk á aðfangadagskvöld en ég borða rjúpur einhvem tíma um jól eða áramót. Það er einkennilegt að heyra veiðistjóra á Akureyri segja að inn- RJúpan Veiöi á grænlensku rjúpunni verður hraöaö, aö sögn Orra Vigfússonar. flutningur á rjúpum frá Grænlandi veiki veiðibann á rjúpum og vernd- un stofnsins á íslandi. Viðurkenn- ing þessa sjónarmiðs væri það sama og að viðurkenna að við mættum ekki flytja út þorsk til Evrópulanda vegna þess að þorskstofninn hjá þeim væri í hættu. Á Alþtngi var verið að vekja athygli á því að þetta gæfl tilefni til þess að svindla á þvi hvaðan rjúpurnar kæmu. Eigum við þá ekki að hætta að byggja vegi vegna þess að þá skapast hætta á því að ökumenn aka of hratt?,“ seg- ir Orri Vigfússon. -GG Skattarannsókn langt komin Rannsókn á skatt- skilum Jóns Ólafsson- ar, stjómarformanns Norðurljósa, er að hluta til lokið. Ekki er ijóst um hvaða upp- hæðir er að ræða í meintum skattsvik- um, en grunur leikur á stórfelldum undanskotum skv. heim- ildum DV. Líklegt þykir að málið verði sent áfram til lögreglu. Rannsókn máls- ins hefur beinst að skattskilum Jóns Ólafssonar persónulega og einnig fyrir- tækjum hans. Sumariokunum mótmælt Áformuðum sumarlokunum á öllum leikskólum i Reykjavík er mótmælt af Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. Með sumarlokunum ieikskóla yrði þrengt að hagsmunum heimila og vinnustaða og stigið skref afturábak í jafnréttismálum á vinnumarkaði, segir Gunnar Páll Pálsson, formaður VR. Halda áfram meö krókódíla Forystumenn á Húsavik hafa ekki gefið upp á bátinn hugmyndir um inn- flutning á krókódílum frá Bandaríkjun- um og til Húsavíkur. Að fenginni um- sögn yfirdýralæknis ákvað landbúnað- arráðherra að leyfa ekki innflutning, en hins vegar telja Húsvíkingar ákvörðun- ina byggða á veikum grunni og áfram verði haldið. Brjálað hross Þota frá flugféiaginu KLM - ASIA lenti í Keflavík í eftirmiðdaginn í gær vegna brjálaðs hross sem var um borð í vélinni. Dýralæknir var fenginn á svæð- ið til þess að róa dýrið niður fyrir áframhaldandi flug vestur um haf. vf.is greindi frá. Mótmælir hækkunum Efling - stéttarfélag mótmælti í samþykkt sem það gerði fyrir helgina verðhækkun- um sem ríkisstjóm, sveitarfélög og fyrir- tæki - og þá sérstak- lega tryggingafélögin - hafa kynnt að und- anfömu. Segir að þessi áform kyndi undir verðbólgu og geti eyðilagt þann góða árangur sem náðst hafl í efnahags- málum. á undanfómum mánuðmn. For- maður Eflingar er Sigurður Bessason. Skipstjóri með bjór í blóði Maður um fertugt var í dag sviptur skipstjómarréttindum sínum í háift ár og til greiðslu 75 þúsund króna sektar. Mað- urinn lagði úr höfn á farkosti sínum í Reykjavík í sumar og vora 17 farþegar með um borð. Lögreglan kom svo að skip- inu þegar það lagðist að. Skipstjórinn mældist með 0,98 prómiil í blóði og kvaðst hann aðailega hafa drukkið bjór. Stal osti - og í steininn Rúmlega þrítugur maður var dæmd- ur i 45 daga fangelsi í dag fyrir að stela sjö stykkjum af osti fyrir tæpar fjögur þúsund krónur í verslun 10-11 við Aust- urstræti í Reykjavík i ágúst í sumar. Verjandi mannsins krafðist sýknu fyrir hans hönd, en maðurinn á að baki lang- an sakaferil. Vérðstríð rætt á þingi Verðstríð virðist hafið í sölu kjúklinga- og svínakjöts. Offramleiðsla á kjöti var rædd á Alþingi í gær og því m.a. haldið fram að kjöt sé selt undir kostnaðarverði og bankamir fjármagni offramboðið. Hagsmunir neytenda kunni að vera skammvinnir enda sé veruleg hætta á gjaldþrotum. Samfylkingarfólk ósátt Samfylkingarfólk á Húsavík ætlar ekki að mæta á kjördæmisþing flokks- ins í Norðausturkjördæmi á morgun. Með þessu er verið að mótmæla að Ör- lygur Hnefiil Jónsson, varaþingmann flokksins, skuli færður niður í fjórða sæti framboðslistans við alþingiskosn- ingamar á næsta ári. RÚV greindi frá. -sbs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.