Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Blaðsíða 8
HVtTA HÚSIO l SÍA
8
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002
kærkomin gjöf
í sönnum jólaanda
Við bjóðum allar stærðir og gerðir af
öskjum eða gjafakörfum. Þú ákveður
stærðina og setur fram þínar
hugmyndir um samsetningu, útlit og
þá upphæð sem þér finnst viðeigandi.
Þú getur bætt í pakkann vínflösku,
konfekti, korti eða öðru sem andinn
blæs þér í brjóst. Hringdu eða komdu
til okkar með óskir þínar og við
útfærum þær á smekklegan hátt.
Útlönd
DV
Bandarísk stjórnvöld þrýsta á Hans Blix:
Vilja íraska
vísindamenn
Bandarísk stjómvöld þrýsta nú
mjög á Hans Blix, yfirmann vopna-
eftirlits Sameinuðu
þjóðanna, að koma
helstu sérfræðingum
íraks í vopnabúnaði úr
landi og bjóða þeim hæli
í skiptum fyrir upplýs-
ingar sem þeir búa yfir,
að því er embættismenn
sögðu í gær.
Embættismenn
stjórnarinnar í Wash-
ington hafa rætt við
Blix og aðra í vopnaeft-
irlitssveit SÞ sem hafa
það verkefni að finna
ummerki gjöreyðingar-
vopnaframleiðslu íraka.
Ályktun Öryggisráðs-
ins um vopnaeftirlit skyldar íraka
að veita eftirlitsmönnum óhindrað-
an aðgang að einstaklingum sem
taldir eru geta veitt upplýsingar og
þá hafa eftirlitsmennirnir leyfi til
að flytja vísindamennina og fjöl-
skyldur þeirra á brott til
að geta rætt við þá án
þess að hafa fulltrúa
íraksstjómar yfir sér.
Bandarískir embættis-
menn vilja gjarnan að
Blix beiti þessu ákvæði
ályktunar SÞ að fullu til
að fá að ræða við vísinda-
mennina.
írösk stjórnvöld munu
afhenda SÞ nokkur þús-
und blaðsíðna skýrslu í
dag þar sem búist er við
að þeir hafni þvi að eiga
gjöreyðingarvopn.
Bandarískir ráðamenn
hafa fyrirfram hafnað öll-
um slíkum fullyrðingum.
Reynist írakar brjóta gegn álykt-
un SÞ gæti það orðiö til þess að
Bandaríkjamenn geri á þá árás.
Hans Blix
Undir þrýstingi að fá
íraska vísindamenn til
aö kjafta frá.
REUTERSMYND
Tígra þökkuð liðveislan
íbúar þorpsins Selisten Dol í vestanveröri Búlgaríu eru, eins og sjá má, ákaf-
lega þakklátir Bengaltígurnum Raiya sem hefur reynst miklu betri en lögregl-
an í aö hræöa innbrotsþjófa. Áöur en Raiya kom til þorpsins gerðu þjófar sig
þar heimakomna en nú er þaö sem sagt liöin tíö. Sem betur fer.
Forsætisráðherra Svíþjóðar einn á báti:
Persson sækir um
skilnað frá konunni
Göran Persson, for-
sætisráðherra Sviþjóð-
ar, hefur sótt um skiln-
að frá Anniku, eigin-
konu sinni, eftir að-
eins sjö ára hjónaband.
Að sögn sænska
blaðsins Expressen,
sem varð fyrst með
fréttina, var það álagið
sem fylgir forsætisráð-
herrastarfmu sem
gerði útslagið.
„Hann valdi starfið
og að vera í miðju
valdsins," sagði Ann-
ika Persson í viðtali
við Expressen f gær.
Hún sagðist hafa viljað bíða með
þetta fram yfir jól þar sem það sé
alltaf sérstaklega dapurlegt þegar
fjölskylda splundrast svona um jóla-
leytið. En Göran varð ekki hnikað.
Göran Persson
Álagiö sem fylgir því aö
vera forsætisráöherra Sví-
þjóöar var meira en hjóna-
bandiö þoldi.
„Auðvitað hefur eitt-
hvað farið úrskeiðis
þegar hjónaband fer út
um þúfur og ég er leið-
ur yfir þessu. Skilnað-
urinn er mjög persónu-
legur hlutur og ég vil
því ekki tjá mig frekar
um málið,“ sagði í yfir-
lýsingu sem Persson
sendi frá sér í gær-
morgun.
Annika Persson
sagði við Expressen að
vandræðin í hjóna-
bandinu hefðu byrjað
þegar maður hennar
varð forsætisráðherra, árið eftir að
þau giftu sig. Þau sáust sjaldan sam-
an á mannamótum, nema við opin-
berar athafnir. Þau áttu ekki börn
saman en hvort um sig á börn frá
fyrra hjónabandi.
Zakajev í Englandi
Akhmed Zakajev,
aðstoðarforsætis-
ráðherra tsjetsj-
ensku útlagastjóm-
arinnar, hefur sótt
um pólitískt hæli í
Englandi. Hann fór
frá Danmörku á
fimmtudag þar sem
hann hafði setið í gæsluvarðhaldi í
rúman mánuð, að kröfu Rússa sem
vilja fá hann framseldan. Zakajev
kemur fyrir rétt í næstu viku.
Skotar vilja Færeyjafisk
Mikill áhugi er fyrir þvi í
Skotlandi að fá ferskan fisk frá Fær-
eyjum til vinnslu þar sem skoskir
togarar hafa lítinn kvóta í Norður-
sjó og á heimamiðum.
Flækingur með fulla vasa
Starfsfólki geðsjúkrahúss í
ítölsku borginni Como brá óneitan-
lega í vikunni þegar þangað var
komið með áttræðan útigangsmann
og einstæðing sem var með andvirði
um 2,5 milljóna króna í vösunum,
allan ævispamaðinn.
Sex ríki fallast á skilmála
Sex af ríkjunum tiu sem gera sér
vonir um að ljúka aðildarviðræðum
að ESB í næstu viku hafa fallist á
tillögur framkvæmdastjórnar ESB
um fjárhagsaðstoð, með vissum skil-
yrðum þó. Hin fjögur vilja meira fé.
Húsleit tengist al-Qaeda
Laganna verðir gerðu í gær hús-
leit hjá hugbúnaðarfyrirtæki í
Boston, sem á viðskipti við stjóm-
völd, vegna gruns um tengsl við al-
Qaeda hryðjuverkasamtökin.
O’Neill beðinn að hætta
Paul O’Neill, íjár-
málaráðherra
Bandaríkjanna,
sagði óvænt af sér
embætti í gær og að
sögn ónafngreinds
heimildarmanns
gerði hann það að
beiðni Hvíta húss-
ins. O’Neill hefm sætt gagnrýni fyr-
ir klaufalega framkomu sína og hef-
ur ekki þótt frambærilegur talsmað-
ur efnahagsstefnu-stjórnvalda.
Franskir fundu fjöldagröf
Franskir hermenn sem gæta þess
að vopnahlé á Fílabeinsströndinni
sé virt hafa fundið fjöldagröf. Upp-
reisnarmenn og stjórnarherinn
saka hvorir aðra um fjöldamorð.
Bush undir jólatréð
Bandar íkj amenn
sem vita ekki hvað
þeir eiga að gefa
fjölskyldu eða vin-
um í jólagjöf geta
nú tekið gleði sína
á ný þvi á markað
er kominn talandi
dúkka í líki Bush
Bandaríkjaforseta. Dúkkan getur
meðal annars sagt: „Ég er frá
Texas.“ Dúkkan hefur sautján setn-
ingar á valdi sínu.
Danir auka reykingar
Danir hafa aukið reykingar sínar
undanfarin tvö ár en áfengisneysla
þeirra hefur aftur á móti dregist
saman, að sögn heilbrigðsyfirvalda.
Gjaldþrot líklegt
Forstjóri bandaríska flugfélagsins
United sagði í gær að líklega yrði fé-
lagið lýst gjaldþrota eftir að stjóm-
völd neituðu i vikunni að koma fé-
laginu til aðstoðar.