Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Side 10
10 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 Utgáfufélag: Utgáfufélaglö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíö 24, 105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. — Dreifing: dreifing@dv.is Akureyrl: Kaupvangsstraeti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fýrir viðtöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Afþjóðum og sóðum Þegar gengið er um götur stór- borga á borð við Lundúnir og Los Angeles verður íslendingi star- sýnt á göngustíga og gangstéttir. Það er eins og sletturnar vanti. Hellurnar eru hreinar og nánast fægðar i samanburði við stéttirn- ar heima á íslandi. Það vantar tyggjóskellurnar, hrákann og annan viðbjóð sem spýtist út úr íslendingum á leið milli húsa. Það vantar þessa dæma- lausu sjónmengun sem blasir hvarvetna við á strætum og torgum og helstu verslunarmiðstöðvum íslands. Fáum ef nokkrum þjóðum finnst jafn sjálfsagt að sóða út umhverfi sitt og íslendingum. Þeir fara um samfélag sitt eins og það sé einnota varningur sem megi henda í dagslok. Þetta er nokkuð þróttmikil fullyrðing en er ekki sannleik- anum fjær en svo að æðimörgum ofbýður að klofa yfir breiðurnar af munngæti landans framan við söluturna og verslanir. Þar liggja haugamir af klessum og umbúðum af alls konar mæm og er langt i frá að götusóparar hafi und- an að þrífa upp skömmina. Æðimargir íslendingar virðast hugsa sem svo að lengi taki landið við. Það er viðtekin venja margra að fleygja msli hvar og hvenær sem er. Ökumenn sem biða þess á gatnamótum að gula ljósið kvikni henda því sem hendi er næst út um gluggann, þar á meðal tyggigúmmii og umbúð- um, og opna jafnvel dyrnar og hrista úr öskubakkanum á götuna. Fáir ef nokkrir kippa sér upp við svona háttalag enda virðist vera þegjandi samkomulag um að láta sóða- skapinn ekki fara í taugarnar á sér. Reykingafólk er margt hvert á meðal verstu sóðanna. Það hímir framan við aðaldyr fyrirtækja sinna og drepur i vindlingnum með hælnum og heldur svo aftur til vinnu. Margt af þessu fólki hefur lagt það í vana sinn að henda stubbunum út um bílgluggann eða einfaldlega húsgluggann ef það er að stelast til að reykja innan dyra. Það er eins og stubbarnir séu náttúruvænir og hverfi hreinlega af sjálfs- dáðum i umhverfinu. í samkvæmum þykir við hæfi að drepa i þeim í næsta blómapotti. Drykkjufólk er kapítuli út af fyrir sig. Margir íslending- ar virðast varla geta sötrað nokkra bjóra án þess að míga utan í næsta húsvegg. Fullir íslendingar hafa sérstakt lag á því að verða sér til skammar á almannafæri. í þeim tilvik- um nær heimskan og sóðaskapurinn nýjum lægðum. Þá er ekki úr vegi að skella skaufanum út um rennilásinn á tröppum Alþingishússins og míga framan á dyrnar. Og fátt er talið fyndnara en að kasta tómum bjórflöskunum inn i næsta garð eða í götuna. íslendingar er á stundum agalaus þjóð. Og er skítsama. Þeir komast upp með það. Reglur og almenn kurteisi eru oft á tíðum að þvælast fyrir þessu stóði einstaklinga sem byggja landið. Einstaklingshyggjan er gjarna meiri en svo að aðrir skipti máli. Sama fólk og skammar böm sin fyrir að hella úr gosflösku á parketið heima hjá sér gengur sama dag út á myndbandaleigu og skyrpir tyggjóinu út úr sér í dyragættinni. Þetta er ekki einasta tvöfalt siðgæði heldur og einföld heimska. Það er af þessum sökum sem íslendingur situr á bekk úti í löndum og hugsar um skilin á milli þjóða og sóða. Hann undrast ólík samfélög. Og hann veltir fyrir sér nokkrum ágætlega kunnum þrepum mannlífsins á borð við menning- arstig og þroskastig. Það er sagt um fólk sem getur ekki gengið þokkalega um hibýli sín að það sé ekki húsum hæft. Auðvitað á að segja um þá einstaklinga sem geta ekki geng- ið almennilega um landið sitt að þeir eiga ekki að vera löndum leyfðir. Sigmundur Ernir DV Hindrunarhlaup kvenna Fyrir örfáum dögum sendi stjóm Kvenréttindafélags íslands frá sér áskorun til stjómmálaflokka landsins um að tryggja jafnan hlut kvenna og karla á framboðslistum sínum. Þar sagði meðal annars: „Stjóm Kvenréttindafélags íslands hvetur stjómmálaflokkana til að ryðja úr vegi þeim hindrunum, sem hafa komið í veg fyrir að konur leiti inn á svið stjómmálanna og sjái til þess að konur og karlar hafi raunverulega jöfn tækifæri til pólitiskrar þátttöku." Spyija má, hvers vegna félagið sendi þessa áskorun ekki frá sér fyrr en löngu eftir að búið var að ganga frá fjölmörgum framboðslistum. Hefði ekki verið nær að gera það í haust, þegar undirbúningur og umræða fór af stað, eða að minnsta kosti áður en endanlega gengið var frá fyrstu list- um? „Betra seint en aldrei" segir mál- tækið og gott ef áskomnin náði ekki þrátt fyrir allt að birtast áður en geng- ið var frá skipan þess lista, sem einn stjómarmanna i Kvenréttindafélaginu sóttist eftir sæti á. Hvaða hindranir? I áskorun félagsins er ekki útskýrt hvaða hindranir það em, sem hafa „komið í veg fyrir að konur leiti inn á svið stjórnmálanna". Né em þar held- ur leiðbeiningar um það, með hvaða hætti stjómmálaflokkamir em ábyrg- ir fyrir þeim hindrunum og hvað þeir geta gert til að ryðja þeim úr vegi. Er verið að vísa til einhvers í skipu- lagi eða starfsemi sjálfra flokkanna? Kannski þær Sigríður Anna Þórðar- dóttir, formaður þingflokks Sjálfstæð- isflokksins, Bryndís Hlöðversdóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinn- ar, eða Þuríður Backman, varaformað- ur þingflokks Vinstrihreyfmgarinnar - græns framboðs, beri ábyrgð á því. Eða er verið að vísa til einhvers í samfélagsgerðinni? Að svo miklu marki sem stjómmálamenn fá ráðið við það sem þar kann að vera á ferð- inni hljóta slíkar hindranir að vera á ábyrgð ríkisstjómar og forsvars- manna sveitarfélaga - ekki stjóm- málaflokkanna. Nær væri því að beina áskorun af þessu tagi annars vegar tO Sólveigar Pétursdóttur, Valgerðar Sverrisdóttur og annarra ráðherra rík- isstjómarinnar, og hins vegar til Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur, Ásdísar Höllu Bragadóttur, Ragnheiðar Rík- harðsdóttur og annarra æðstu forystu- manna sveitarfélaga. Þröskuldar Nei, það er ekki auðséð - að minnsta kosti ekki frá „þröngum" sjónarhóli karlsins sem þetta skrifar - hvaða stórkostlegu hindranir standa í vegi kvenna sem vilja hasla sér völl í stjómmálum. Ekki er þar með sagt að ekkert sé í veginum; þröskuldar, ójöfnur eða jafn- „Til dæmis náðu konur kjöri til borgarstjómar Reykjavíkur þegar árið 1908 og árið 1922 náði kona fyrst kjöri til Alþingis. Til samanburðar hlaut kona fyrst prestsvígslu árið 1974, kona varð fyrst sýslu- maður 1980 ogfyrsti kven- dómarinn settist í Hœsta- rétt 1986. Kona varð ekki deildarforseti í Háskóla ís- landsfyrren 1997!“ vel hraðahindranir. Á móti má hins vegar benda á þröskulda í vegi karla, sem konur þurfa síður að yfirstíga til þess að fullnægja pólitískum metnaði sínum. Einn slíkur er til dæmis launa- munur kynjanna. Talsmenn kvenrétt- inda hafa margoft bent á að karlar hafi að jafnaði talsvert hærri laun en kon- ur. Samkvæmt því eru allar likur á að karl sem sækist eftir þingsæti sé hærra launaður en kona í sömu stöðu. Hann þarf því að fóma meiru í tekj- um, sé hann með hærri laun en alþing- ismenn, eða hækkar minna í launum en konan, sé hann með lægri laun en alþingismenn. Launamunur þessara tveggja frambjóðenda kann að vera argasta óréttlæti, en hann er engu minni þröskuldur í vegi karlsins fyrir vikið. Stjómmál og fleira Vert er að benda á, að engin teikn eru um að erfiðara sé fyrir konur að komast til áhrifa í stjómmálum en á öðram „áberandi" sviðum samfélags- ins. Þvert á móti. Til dæmis náðu konur kjöri til borg- arstjómar Reykjavíkur þegar árið 1908 og árið 1922 náði kona fyrst kjöri til Alþingis. Til samanburðar hlaut kona fyrst prestsvígslu árið 1974, kona varð fyrst sýslumaður 1980 og fyrsti kven- dómarinn settist í Hæstarétt 1986. Kona varð ekki deildarforseti í Há- skóla íslands fyrr en 1997! Konur era meira en þriðjungur þingmanna og þykir það of lítið. „Burt með hindranimar!" segir Kvenrétt- indafélagið við stjómmálaflokkana, en hefur ekki svo vitað sé sent stjómum helstu fyrirtækja landsins sambæri- legt bréf. Það hefur þá farið fremur hljótt. Kannski hefur farið fram hjá félag- inu sú staðreynd, að litlu auðveldara er að frnna konu í stjóm fyrirtækis sem skráð er í Kauphöll íslands en strá í stórum haug saumnála. Mjög lausleg athugun bendir til þess, að ekki sé út i bláinn að giska á að hlut- ur kvenna í stjómarherbergjum lands- ins sé í kringum 5%. Framboðslistar Ekkert lát er á lærðri umfjöllun um að konur hafi orðið „homreka“ við skipan á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins. Það er rétt, að karlar náðu þar talsvert betri árangri en konur. Það er líka rétt, að miðað við nákvæm- ustu útreikninga sem hægt er að gera á því hvernig þingsæti skiptast á milli flokka ef úrslit næstu kosninga verða þau sömu og síðast, verður hlutfall kvenna í þingflokki Sjálfstæðisflokks- ins lægra en hjá Framsóknarflokki og Samfylkingu - en þó hærra en það var hjá Framsóknarflokknum eftir síðustu kosningar. Hitt er rangt, að það stefiii í að hlut- ur kvenna rými svo um muni í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins eða á Al- þingi yfirleitt. Samkvæmt áðumefnd- um útreikningum - sem vissulega eru aðeins nálgun, en þó sú besta sem völ er á - stefnir í að það fjölgi um tvo karla en fækki um eina konu í þing- flokkum Samfylkingarinnar og Sjálf- stæðisflokksins. Aftur á móti er útlit fyrir að konum í þingflokki Framsókn- arflokksins fjölgi, þannig að konur haldi sínum hlut á Alþingi þegar upp er staðið. í grein í DV í vikunni var bent á, að útlit væri fyrir að hlutur kvenna rým- aði ívið meira í Samfylkingunni en í Sjálfstæöisflokknum. Þessu hefúr ver- ið mótmælt og því haldið fram, að fækkun úr 8 konum í 7 hljóti að vera hlutfallslega meiri en fækkun úr 9 í 8, óháð stærð þingflokkanna. En þá er verið að mæla fækkun kvenna, sem skiptir augljóslega minna máli en breyting á hlutfallslegum styrk þeirra í hópnum. Hugsum okkur til dæmis 10 manna þingflokk A sem í era 6 konur, og hins vegar 100 manna þingflokk B sem í era 6 konur. Nú fækkar konum í báðum þingflokkum úr 6 í 5. Er það jafnmfkil fækkun? Nei: Augljóst er, að hlutur kvenna í þingflokki A rýmar meira, enda missa þær við það meiri- hluta! Af þessari ástæðu er túlkun DV augljóslega rétt. Þetta kemur Mestu máli skiptir, að útlit er fyrir að fjölmargir nýir og hæfir einstak- lingar, konur og karlar, setjist á þing að loknum næstu kosningum. Ekki verður séð að neyðarástand ríki í stjómmálum hvað jafnrétti varðar - ahra síst í samanburði við ýmis önnur svið þjóðlífsins - en vissulega er ástæðulaust fyrir Kvenréttindafélag Is- lands að sofna á verðinum. Ágætt er til þess að vita að það standi vaktina - og samkvæmt heimasíðu þess á Net- inu er starfið raunar í fullum blóma: Þar kemur meðal annars fram að fréttabréf félagsins kemur út fjórum sinnum á ári - síðast í október 2000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.