Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Qupperneq 20
20 H&lgarhlað 13 V LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 Látum hverri holu nægja sína þjáningu Rómeó og Júlía, Baldur og Konni, Adam og Eva, Egvindur og Halla, Silli og Valdi, Trist- an og ísold, Kjartan og Bolli, Fjölnir og Mel B, Grettirog Glámur, Karíus og Baktus. Allt eru þetta fræg pör. Aðeins eitt þeirra er með lögheimili milli tannanna á fólki: Karíus og Baktus. Karlus og Baktus sýndu fyrir hálfum mánuði í hund- raðasta skipti á Litla sviði Þjóðleikhússins. Þetta eru ekki frýnileg kvikindi en hafa samt náð að heilla ís- lensk börn í gegnum tíðina. Ég hitti Karíus og Baktus á Litla sviðinu skömmu eftir 100. sýninguna. „Jæja, já, jæja,“ segir Karius. „Baktus! komdu!“ „Ég er að koma!“ öskrar Baktus á móti. „Fyrirgefðu, ég var að ropa aðeins." Þeir setjast niður milli búninga úr jólaverkefni Þjóð- leikhússins Með fullri reisn. „Vá,“ segir Baktus, „mig langar í svona Karen Millen dress." Hann jafnar sig og nær fljótt fullri einbeitingu. Þið eruð búnir að sýna 100 sinnum, segi ég. „Já.“ Hvað eruð þiö gamlir? „Svona spyr maður ekki almennilegt fólk,“ segir Karíus. „Það er of löng saga að segja frá því. Þetta er eins og með köttinn og hans níu líf: hvenær byrjar maður að telja? Við erum búnir að vera svo lengi á milli tannanna á fólki aö það má segja að hver munn- ur sé nýtt líf.“ „Okkur hefur verið skolað út úr ótal munnum," seg- ir Baktus, „jafnt manna og dýra.“ Hver er besti munnur sem þið hafið verið í? „Ég held það sé hún Guðlaug sem bjó í Æsufellinu," segir Baktus. „Okkur fannst gott að vera þar og mikið að hafa.“ „Já, það er svona þegar fólk þrífur sig ekki,“ segir Karíus. „Og af hverju þrífur það sig ekki? Það er ekki gott að setja. Það getur verið vanræksla, slæmt upp- eldi, fátækt..." „Þekkingarleysi!" öskrar Baktus. „Já, þekkingarleysi, og þegar allt þetta fer saman er gósentíð hjá okkur,“ segir Karíus. „Það eru kjörað- stæður. Reyndar má segja að hjá okkur sé stöðug veisla því þessir þættir eru alltaf fyrir hendi.“ Bakkus bróðir Hvernig skilgreinið þið ykkur? „Ja, við heitum i höfuðið á þessu karies og bacteria," segir Karíus. „Það er útlenska." „Já,“ segir Baktus. „Þetta eru fín ættarnöfn og eiga rætur sínar að rekja til læknisfræði og annarra fræðigreina. Við erum tannsýkla og það er ekk- ert launungarmál. Maður getur ekki verið að þykjast vera annað en mað- ur er. En við erum svolítið merki- legri en tannsýkla per se.“ Það er varla hægt að segja að þið hafið almenningsálitið með ykkur. „Tja, við erum búnir að sýna hundrað sinnum og látunum linnir ekki,“ segir Baktus. „Einhvers staðar verða vondir að vera,“ segir Karíus. „Fólk leikur sér oft við eldinn. Allir eru á móti okkur en bursta samt ekki alltaf tennurnar. Það er eins með okkur og aðrar pest- ir og plágur að fólki finnst gaman að dansa við okkur.“ „Það sannar sig til dæmis með Bakkusi bróður," segir Baktus. „Ég hef reyndar ekki hitt hann lengi en það eru margir sem elta hann. Við fáum tækifæri til að leika við börn í leikskólum. Fólk treystir okkur fyrir börnunum sínum. „Við erum í svona haltumér-slepptumér sainbandi við fólk og við erum geysivinsælir innan viss ramma. ísland er þjóðfélag ofáts á öllum sviðum og er kjörlendi fyrir okkur. Nú á að fara að byggja virkjun. Okkur hefur verið boðið að vinna við liana. Við erum á leiðinni austur í Kárahnjúka þar sem við munum starfa sem ráðgjafar eða „consultants“,“ segja Karíus og Baktus. Það er hinn gullni meðalvegur sem gildir í þessu. Nú fer fólk að halda jólin hátíðleg með makkintosi og svoleiðis. Þá gleymir það sér, jájá, burstinn vill gleym- ast. Þetta er gósentíð." „Já, nú fá börnin í skóinn og dagatölin eru komin,“ segir Karíus. „Við hugsum okkur gott til glóðarinnar." Jólin hljóta að vera aðalhátíðin hjá ykkur. „Jájá, alveg eins og fyrir bókaormana," segir Karí- us. „Þetta er okkar tími. Það er oft glatt á hjalla hjá okkur bræðrunum um jólin.“ En svo kemur væntanlega kreppa eftir jólin. „Já, fram að páskum," segir Baktus. „Þetta er eins og eftir sykursjokk; blóðsykurinn fell- ur og slappleiki ræður ríkjum. Þá höldum við okkur til hlés,“ segir Karíus. „Það er líka uppsveifla aftur í kringum páskana," út- skýrir Baktus. „Þetta eru ekki nema nokkrir mánuðir. Við reynum þá helst að koma okkur fyrir í gervitönn- um. Það er erfitt að hreinsa þær. Þar er gott að halda til þessa mögru mánuöi.“ Sjálfstæðisflokkurinn minn flokkur Hefur ykkur aldrei langað að brjótast út úr staðal- ímynd tannsýklunnar og verða góðir? „Sko,“ svarar Karíus. „Við höfum það mjög gott. Við erum elskaðir en fólki stendur líka stuggur af okkur." Svona eins og Jón Baldvin? „Já, fólk ber óttablandna virðingu fyrir okkur,“ seg- ir Baktus. „Það er mjög þægilegt." „Við erum í svona haltumér-slepptumér sambandi við fólk,“ segir Karíus, „og við erum geysivinsælir inn- an viss ramma. ísland er þjóðfélag ofáts á öllum svið- um og er kjörlendi fyrir okkur. Nú á að fara að byggja virkjun. Okkur hefur verið boðið að vinna við hana. Við erum á leiöinni austur í Kárahnjúka þar sem við munum starfa sem ráðgjafar eða „consultants“.“ „Við gröftinn," segir Baktus. „Við erum líka mjög eftirsóttir fyrir skemmtanir og höfum til dæmis veriö beðnir um að sjá um Edduhátíðina næsta ár. Það er samt ekki búið að skrifa undir. Svo er verið að skrifa handrit að bíómynd." „En við hlaupum ekki á eftir dægurmálum,“ segir Karíus. „Við höfum þráfaldlega neitað þessum pirr- andi spjallþáttastjórnendum að koma til þeirra. Við erum búnir að vera það lengi í þessum bransa að viö þurfum ekki á slíku að halda.“ Hefur ykkur aldrei dottið í hug að fara út í pólitík? „Karíus hefur verið meira á þeirri línu,“ segir Bakt- us. „Já,“ segir Karíus. „Á því sviði hef ég komið fram undir öðru nafni sem ég vil ekki gefa upp. Ég hef ver- ið á listum og það víða vegna þess að við erum tæki- færissinnar og það fer eftir vindum hvernig áherslur eru í heiðri hafðar." „Ég fer ekki i neinar grafgötur með það að ég er ma- teríalisti,“ segir Baktus. „Ég neita því ekki,“ segir Karíus, „að Sjálfstæðis- flokkurinn er minn flokkur frá því í gamla daga. Ein- staklingsfrelsið og markaöshyggjan ræður ríkjum þar og það er sá jarðvegur sem tannskemmdir verða til í. Þar af leiðandi fáum við flestum okkar málum full- nægt þegar hann er við völd.“ DV-mynd Sigurður Jökull Antígóna aldrei tilkippileg Ykkur líður sem sagt vel? „Já, mjög vel,“ segir Baktus. „Þetta er feitur tími.“ „Neyslan er það mikil,“ segir Karíus. „Það er verið að höggva í heilsugæsluna og hálendið og allt er þetta okkur mjög að skapi.“ „Einmitt," segir Baktus," það er verið að opna stór- ar verslunarmiðstöðvar sem eykur neysluna enn meira og nýlega klipptum við á borðann að nýju sæl- gætislandi.“ „Við sjáum fleiri skemmdir á líkama og sál,“ segir Karíus og Baktus bætir við: „sem er gott“. Þið hafið farið dálitið út úr leikhúsinu til að skemmta sem er til dæmis ólíkt því sem gengur og ger- ist með persónur úr leikritum. Til dæmis hafa Antí- góna og Lér konungur lítið sést meðal almennings. „Já, Antígóna var aldrei mjög tilkippileg í svoleið- is,“ segir Baktus. „Við höfum rætt þetta við hana en hún er eitthvað krumpuð blessunin," bætir Karíus við. „Ég held að við séum með beinskeyttari boðskap,“ segir Baktus. „Við erum heldur ekkert að fela hann. Verkið er ekki of langt og hentar því vel stuttu athygl- isspani nútímamannsins. Viö erum heldur ekki með neitt flúr eða yfirbyggingu í leikmynd. Svo erum við miklu vinsælli en Antígóna." „Boðskapur okkar er einfaldur og á barnamáli sem flestir skilja, lesendahópur Séð og heyrt til dæmis," segir Karíus. „Við erum með góða frasa sem ná til fólks." „Við viljum franskbrauð!" öskra bræðurnir. Hressari en Ödipus Það kemur fram í leikritinu að þið áttuð einu sinni fleiri systkini en þau eru horfin á braut. Hvernig hef- ur ykkur gengið að vina ykkur út úr sorgarferlinu? „Þetta er auðvitað „survival of the fittest“,“ segir Baktus. „Við leituðum mjög í sjálfshjálparhópa þar sem við reyndum að vinna úr tilfinningum okkar," segir Karí- us. „Síðan eigum við ættmenni víða. Við erum það gamlir að við munum eftir þeim sem fóru til Vestur- heims og hafa dreifst út um allar jarðir. Við sitjum eft- ir á íslenska markaðnum." Og þið kunnið því vel? „Já, virkilega, hér er mikil neysla og henni ætlar aldrei að linna,“ segir Baktus. „Og hér á ég heima eins og Björk segir i laginu," seg- ir Karíus. Má ekki segja að þið séuð svipuð tegund persóna og Anna Karenina? Höfundurinn hugsaði hana upphaf- lega sem víti til vamaðar öðrum konum en síöan verð- ur hún hetja. „Jú, nákvæmlega. Og ekki má gleyma Hamlet,“ seg- ir Karíus og Baktus bætir við: „mér finnst þau vera skemmdari en við“. „Jájájá, Ödipus og allt þetta lið. En viö erum bara svo hressir og alltaf til í allt,“ segir Karíus. „Við höf- um alltaf brosað í gegnum tárin og verið glaöir á góð- um degi.“ „Við erum ekki eins sjálfhverfir og Hamlet," segja tannsýklurnar. „Við látum hverri holu nægja sína þjáningu."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.