Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Side 22
22
Helcjarblaö T
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002
e © ®
...kíkt í snyrtibudduna
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir er frískleq og
flott stelpa sem er annar umsjónamaður
unglingaþáttarins @ íríkissjónvarpinu. DV
fannst tilualið að fá að kíkja ísngrtibuddu
Siqrúnar sem segist regndar mála sig lítið
að staðaldri. Sigrún er þó mgnduð hér á
síðunni uel máluð enda uar hún að koma úr
sjónuarpsstúdíóinu þegar Ijósmgndari DV
smellti af henni.
Lancome-maskari
„Þessi maskari er bara
meira um hann að segja. ,
,basic“ og finn, ekkert svo sem
Vinsælt vinkonupúður
„Þetta púður frá Kanebo er algjör snilld, en allur
minn vinkonuhópur notar svona púður. Þetta er fast
púður sem er afskaplega létt en þekur vel.“
Kynlífsdraumar kvenna
Allar konur dregmir einhuern tíma erótíska drauma. Það sama á uið
um slíka drauma og aðra, það á ekki alltaf að taka þá bókstaflega
samkuæmt breska Cosmopolitan sem birti ngleqa grein um efnið.
Kgnlífsdraumar kuenna geta nefnilega haft mun meiri þgðinqu en
hreina löngun íkgnlíf eins og margir mgndu eflaust túlka þá. Hér
fgrir neðan er að finna skgrinqar bresks sálfræðinqs á algengustu
kgnlífsdraumum kuenna en að hennar sögn geta konur notað kgn-
lífsdrauma sína til að betrumbæta eitt og annað íuöku.
Kynlíf með ókunnugum
Ef þú ert í góðu sambandi en dreymir að þú hafir
náin kynni með algjörlega ókunnugum manni getur
það verið vísbending um þá eiginleika sem þú kannt
hvað best að meta hjá maka þínum. Svona draumar
eru algengir hjá einhleypum konum sem sakna kyn-
lífs eða hjá konum sem eru í sambandi sem þær eru
ekki ánægðar i.
Kynlíf með frægum manni
Dreymi þig heit ástaratlot með heimsþekktum karl-
manni eru allar líkur á því aö þér finnist sem kærast-
inn gefi þér ekki nógu mikinnn gaum og þú þráir að
verða eftirsótt í hans augum. Fyrir einhleypar konur
eru slíkir draumar oft tengdir óskum um kynlíf án
skuldbindinga. Auk þess getur karlmaðurinn sem þú
stundar kynlíf meö í draumnum sagt til um það hvers
konar eiginleikum þú leitar að hjá karlmanni í vöku.
Hópkynlíf
Ef þú ert virkilega gröð og ánægð í draumi sem
ijallar um hópkynlíf þá eru síikir draumar ekkert
nema góðir og sýna að þú ert hefur langanir og
fantasíur varðandi kynlif. Ef draumurinn er hins veg-
ar ruglingslegur getur hann verið vísbending um það
að þú tengist einhverjum hópi í daglegu lífi, t.d i vinn-
unni eða heilsuræktinni.
Kynlíf með fyrrverandi
Kannski ertu að endurupplifa hluti frá fyrra sam-
bandi í sambandinu sem þú ert I núna og af þeirri
ástæðu leitar þú andlega til baka í draumum um fyrr-
verandi. Einnig getur þinn fyrrverandi tengst einhverj-
um tilfinningum í daglega lífinu, t.d. ef einhverjum í
vinnunni gengur betur en þér og þú fmnur til afbrýði-
semi í hans garð, það gæti verið sama tilfinning og
þinn fyrrverandi kveikti á sínum tíma. Ef skilnaðurinn
var sársaukafullur og skildi eftir stórt sár geta slíkir
draumar verið að benda þér á að þú verðir að takast á
við tilfinningar þínar og komast yfir skilnaðinn.
Kynlíf með konu
Þig getur vel dreymt blautan draum um aðra konu
án þess að það þurfi að þýða að í þér blundi lesbískar
tilhneigingar. Slíkir draumar eru mjög algengir með-
al kvenna og geta verið tákn um þá ósk að fá fullnæg-
ingu án þess að þurfa að hafa mikið fyrir því, eða með
öðrum orðum án þess að þurfa að standa í ströngu við
að leiðbeina karlmanninum til þeirra starfa.
Kynlíf með yfirmanninum
Slíkir draumar hafa venjulega meira með vinnuna
þína að gera og hugsanlega ósk um stöðuhækkun held-
ur en beina kynlífslöngun í yfirmanninn. Draumurinn
getur líka þýtt að þú sért mjög upptekin af vinnunni
þinni og að þú eyðir jafnvel allt of miklum tíma þar.
Krítaðar augnabrúnir
„Ég er nýbúinn að uppgötva þennan
augnabrúnablýant frá Kanebo sem er algjör
snilld. Þetta er skrúfblýantur sem þarf aldrei að ydda
og það er bursti á hinum enda hans. Augnabrúnablýantur
þessi er eins og krít, og maður getur litað endalaust án þess að
útkoman verði eins og Frankenstein."
Hámæring fyrir karla
„Ég þoli ekki svona væmna sjampólykt og því
nota ég hárnæringu frá American Crew sem er eigin-
lega fyrir karlmenn. Það er svona piparmyntulykt af
henni sem er miklu betri en einhver blómalykt."
Bragðgóð gloss frá Laneome
„Ég gat ekki ákveðið mig hvaða lit ég ætti að
kaupa svo ég keypti alla. Það hefur reyndar verið
skammgóður vermir því nú get ég aldrei ákveð-
ið hvaða gloss ég á að nota. Þessi gloss lykta vel,
eru góð á bragðið og rosalega flott. Eini gallinn
við þau er sá að þau eru þykk eins og síróp
sem þýðir að ef maður fer með laust hár út í
rok þá límist hárið viö glossið. Ég mæli sem
sagt með teygju í hárið ef það er vindur.“