Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Page 32
32 Helqctrblað 33V LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 Höfundur raunverulegrar spennu Óttor Sveinsson hefur skrifað níu metsölu- bækur íröð. Hann segir hér frá upphafinu, breytingum á hugmgndinni og áhuga manna erlendis á að taka Útkallsbækurnar upp á sína arma þvífreistandi tilboð eru að berast. Ekki eru margir rithöfundar á íslandi sem geta sagt að þeir hafi verið metsöluhöfundar allan sinn feril en þeir eru þó til. Óttar Sveinsson, höfundur Útkallsbókanna, er einn þeirra (metsala níu ár í röð) og hér flokkum við hann hiklaust með rithöfundum þótt ýmsir deili um það hvernig þeirri nafnbót sé útdeilt. Hér verður stuðst við þá rökfræði að þeir sem skrifi bækur og standist inntöku- skilyrði í Rithöfundasambandiö séu rithöfundar. Óttar skrifar ekki skáldskap heldur bækur sem fjalla um atburði sem raunverulega hafa gerst. Hann er blaða- maður með starfsreynslu sem talin er í áratugum og bæk- ur hans, sem kallaðar eru einu nafni Útkailsbækurnar, hafa samtals selst i meira en 50 þúsund eintökum innan lands og utan og kvikmyndatökulið frá Hollywood kom til Islands fyrir nokkrum árum, setti atburð úr einni bók Óttars á svið og sjónvarpaði svo efninu i yfir 40 löndum. í byrjun nóvember kom út níunda Útkallsbókin sem heitir Útkall - Geysir er horfinn og fjallar um þann dramatíska atburð þegar millilandaflugvélin Geysir, glæsilegasta flugvél íslendinga á þeim tíma, hvarf skyndi- lega í september 1950. Eftir fjóra sólarhringa hafði ekkert spurst til vélarinnar. Aðstandendur og flestir landsmenn höfðu gefið upp alla von um að sjá nokkurn úr áhöfninni á lífi. Samúðarblóm voru farin að berast og menn farnir að skrifa minningargreinar. Þá heyrði varðskip fyrir austan land ógreinilega morssendingu frá Geysi „staðar- ákvörðun ókunn ... allir á lífí“. Við tók björgunaraðgerð sem á sér varla neina hlið- stæðu en leiðangrar lögðu af stað frá Akureyri og Reykja- vík og stefndu inn á jökul þar sem Geysir hafði nauðlent á Bárðarbungu með sex manna áhöfn, átján hunda og sex tonn af lúxusvarningi. daginn í Palla Halldórs flug- stjóra og spurði hvort mögu- leiki væri á að skrifa bók um störf þeirra - kynnast störf- um þeirra betur - síðan fór boltinn að rúlla. Úr urðu ell- efu frásagnir og ég virðist hafa dottið niður á ákveðna formúlu þegar hugmyndin fæddist á ákveðnum stað í Biskupstungum. Þetta virk- aði greinilega." - Einhver líkti þessari for- múlu við að Alistair McLean skrifaði Þrautgóðir á rauna- stund. Er þetta nærri lagi? „Ég hef eiginlega ekki vit á því,“ segir Óttar og brosir. „En þetta er stíll sem varð al- gerlega til í mínu höfði. Þess vegna held ég að gagnrýnend- ur og fleira fólk hafi orðið hálfvandræðalegt í fyrstu. En það kom fljótlega á daginn að almenningur varð hriflnn - fólk segist lesa þetta og er spennt - þannig var þetta kannski líka hugsað." Óttar mótaði ritstíl sinn í blaðamennsku en seint á ní- unda áratugnum hóf hann störf á DV og skrifaði lengi lög- reglufréttir. „Ég var undir stjórn góðra manna, Elíasar Snælands Jónssonar og Jónasar Haraldssonar. Ég held að Elías hafi alið mig upp í dramatík. Hann kannski bað mig að hringja í sjómann sem var nýbúið að bjarga og taka við hann viðtal. Svo náði ég því, Elías kom og spurði spennt- ur „hvemig gekk?“ og ef svarið var jákvætt þá kom „hrammurinn" á öxlina og kreisti vel. Svo skrifaði ég.“ Þarna vísar Óttar til þess að Elías var ekki alltaf mað- ur margra orða þótt hann væri ánægður með störf þeirra en sló gjarnan þéttingsfast á öxl í viðurkenningarskyni. „Við náðum mjög vel saman - Elías ýtti mér fram á rit- völlinn og er eiginlega guðfaðir minn á þessu sviði. Hann og Jónas eru í hópi margra góðra samferðamanna minna sem hafa vísað leiðina að rökréttri hugsun." Óttar Sveinsson hefur skrifað níu metsölubækur á jafnmörgum árum - ekki er víst að margir rithöfund- ar á Islandi geti jafnað það. birst í brotum." Útkall í Djúpinu seldist upp löngu fyrir siðustu jól og Óttar steig óhikað enn lengra aftur i timann. Hann fjall- ar nú um Geysisslysið sem gengur jafnvel enn betur en „Djúpið“. „Mér finnst björgunin standa upp úr í því máli. Enn lif- ir mjög margt fólk sem var í hringiðu þessara atburða og flest fólk yfir 60 ára man hvar það var statt þegar Geysir fannst. Ég fann mjög margt sem ekki hafði komið fram áður og vil segja að þarna sé verið að frumsýna björgun- ina í heild af fullri alvöru. Margir telja reyndar að í Geys- isslysinu hafi upphaf landbjargana markast á íslandi. Mér finnst þetta alltaf verða skemmtilegra og skemmti- legra," segir Óttar sem vill ekki gefa upp hvert næsta verkefni verður en það er augljóslega ákveðið og verður enn kafað í djúp tímans á vettvangi dramatískra atburða. Útrás raeð Útkall Upphafið með Elíasi - Það er freistandi að spyrja metsöluhöfundinn hverh- ig honum hafi orðið við þegar fyrsta bókin rauk af stað í sölu fyrir nærri tíu árum. „Ég spáði ekkert í það, ætli ég hafi vitað hvað metsölu- listi var því þeir tíðkuðust varla þá eins og þeir gera í dag,“ segir Óttar þegar hann rifjar upp með blaðamanni fyrstu skrefin á bókaritvellinum. Fyrsta bókin hét Útkall Alfa-TF SIF og fjallaði um þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Hver átti þá hugmynd? „Þetta var mín hugmynd," segir Óttar. „Ég hafði skrifað mikið um baráttima fyrir stærri björgunarþyrlu í starfi mínu á DV og kynntist vel þeim Gæslumönnum sem við það unnu. Svo hringdi ég einn Haldið aftur í tímann Útkallsbækurnar hafa síðan komið reglulega eins og jólasveinninn á hverju ári en segja má að með áttundu bókinni hafi orðið breyting á. Fram til þess höfðu bæk- umar alltaf fjallað um atburði sem gerst höfðu í nánustu samtíö en áttunda bókin fjallaði um óveður og mannraun- ir í Isafjarðardjúpi árið 1968 og ótrúleg björgunarafrek tengd því. Síðan stígur Óttar enn aftar í tímann með nýj- ustu bókinni eða fimmtíu ár. „Með þessu fór ég virkilega að hafa gaman af þessu - þegar ég fór að grafa upp menn eins og Harry Eddom, gamla varðskipsmenn og aldna togarasjómenn. Mér fannst ég vera að finna hluti sem fólk vissi ekki um og draga upp heildstæða mynd af atburðum sem áður höfðu Ein Útkallsbókin kom út hjá PP forlag í Danmörku árið 2001 undir nafninu Mayday Mayday en þar er lýst atburð- um sem urðu í hafinu milli íslands og Færeyja 1986 þeg- ar Suðurlandið sökk þar sem danskir björgunarmenn voru í lykilhlutverki. Áður hafði ein frásögnin úr bók tvö verið kvikmynduð af erlendum sjónvarpsstöðvum í þátta- röðinni Rescue 911 um hetjulegar bjarganir og sá þáttur var tekinn upp á Langjökli fyrir nokkrum árum og sýnd- ur um allan heim. Þetta er þó aðeins upphafið að því sem kalla má útrás Útkallsbókanna. Hvert stefnir eiginlega „Útkallinn"? „Mér var boðinn samningur í Bretlandi í síðustu viku um útgáfu á bók síðasta árs sem heitir á ensku „Doom in the Deep“ - Útkall í Djúpinu. Hún vakti greinilega mikla athygli á bókamessunni í Frankfurt í október. Síðan hef ég verið í viðræðum við útgefendur bæði í Bretlandi og einnig hafa stórir aðilar í Ameríku sýnt málinu mikinn áhuga. Þær viðræður standa yfir þessa dagana. Enn sem komið er eru mál á samningsstigi og erfitt að segja hvað gerist en það er greinilegt að við höfum náð athygli manna þarna úti,“ segir Óttar, en einnig hefur heyrst af áhuga danskra, þýskra og norskra kvikmyndagerðar- manna á Mayday Mayday svo ljóst er að útrásin er rétt að byrja. Raunveruleikimi er ævistarfið Eftir níu bækur er Óttar kominn með vinnubrögðin í nokkuð fastar skorður en tvær síðustu bækur hans hafa verið alveg skrifaðar i sumarhúsi í Biskupstungum þar sem honum finnst gott að vera. „Ég kann vel við mig „í skóginum" og þetta er sveitin þar sem hugmyndin fæddist upphaflega. Þarna er ég í samneyti við refi, rjúpur og þresti að ógleymdu yndislegu heimafólki í sveitinni." - En hvað skyldi spennusagnahöfundurinn lesa þegar hann er ekki sjálfur að skrifa? „Þessa dagana er ég „að drekka" bók Þórs Witehead í mig en ég verð að viðurkenna að ég les mest bækur sögu- legs efhis. Mér hefur lærst það í mínu starfi, og sé það oft í dómsalnum, að sannleikurinn tekur gjarnan skáld- skapnum fram. Mér finnst hins vegar líklegt að „þegar ég verð stór“ eigi ég einhvem tímann eftir að skrifa skáld- sögu þó raunveruleikinn og dramatíkin í honum virðist orðið mitt ævistarf.“ -PÁÁ Óttar hefur gefið út eina af bókum sínum hjá PP forlag í Danmörku og hyggur á frekari útrás erlendis. Hér sést Óttar a góðri stundu með meistarakokkinum Jamie Oliver sem einnig er gefinn út hjá PP-forlag. Það er haft fyrir satt að þeir piltar hafi talað um þorramat og barneignir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.