Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Page 42
46 Helqarblað X>V LAUGARDAGUR v. DESEMBER 2002 Jón Óttar Kagnarssan, stofnandi Stöðvar 2, snýr aftur í íslcnskt menningarlíf cftir 10 ára dvöl í Hollywood og hefur gert heimild- armyud um Stein Steinarr. DV-mynd E.Ól. Jón snýr Jón Óttar Raqn- arsson, stofn- andi Stöðvar 2, er byltingar- maður í íslensk- um sjónvarps- heimi og eld- hugiíbestu merkingu þess Það er meira en líklegt að margir sem eru yngri en 30 ára hafi varla hugmynd um hver Jón Óttar Ragnarsson er. En þeim sem voru komn- ir til vits og ára þegar Stöð 2 var stofnuð og horfðu á hljóðlausa opnunarávarpið og horfðu á siglingu fyrir- tækisins með himinskaut- um næstu árin á eftir, líður hann aldrei úr minni. Jón Óttar var Stöð 2 fyrstu árin. Hann var stofn- andi, sjónvarpsstjóri, þátta- gerðarmaður, menningarviti og gagnrýnandi. Allt í ein- um manni á einni stöð. Þar sem skjánum sleppti tók lit- rikt einkalíf hans og orðspor við og það er stutt síðan undirritaður heyrði Val- gerði Matthfasdóttur, sam- starfskonu Jóns, lýsa því í sjónvarpsþætti hvemig hún hefði verið frumkvöðull á sviði opinskárra tímaritsviðtala á níunda áratugnum. Þaö er eflaust rétt og Jón Óttar kom við sögu í mörgum þeirra. Er Jón kominn heim? Jón hvarf af klakanum og úr sviðsljósinu í byrjun 10. áratugarins og hefur búið tíu undanfarin ár í Los Angeles ásamt Margréti Hrafhsdóttur, eiginkonu sinni, og syninum, Einari Ragnari. Það var ekki laust við að margir rækju upp stór augu þegar fréttist af Jóni Óttari sitjandi við klippitölvu í myndveri Skjás eins við að klippa jólamynd hinnar ungu sjónvarpsstöðvar, nánar tiltekið heimildar- mynd eftir sjáifan sig um skáldið litríka, Stein Steinarr. DV náði í skottið á Jóni Óttari eftir nokkra snúninga og spurði hann hvers konar mynd þetta væri eiginlega. „Þetta er heimildarmynd um þennan mikla listamann sem er jafhframt liður í undirhúningi að stórri leikinni kvikmynd um hann og ævi hans en hana erum við með í smíðum. Steinn var ekki að- eins listamaður í þeim skilningi að hann orti frábær Ijóð heldur var hann eldhugi og uppreisnarmaður og þess vegna finnst mér saga hans eiga skýrt erindi við nútímann," segir Jón sem talar við mig í farsíma um það hil níu tímabeltum vestar á hnettinum. - Er til mikið myndefni af Steini Steinarr? „Það eru mest ljósmyndir og hljóðupptökur sem hafa varðveist með honum. Það eru enn lifandi mjög margir sem þekktu Stein og höfðu kynni af honum og við tókum viðtöl við þá og það fer ekki hjá því að manni finnist maður vera að bjarga ákveðnum menningar- arfi þó ekki væri nema með því. Þannig er myndin i rauninni að- dragandi eða prologus að stærra og allt öðru verki en um leið heim- ildasöfnun." - Þekktir þú Stein sjálfur? „Faðir minn, Ragnar Jónsson, var útgefandi hans og ég man fyrst eftir mér í heimsókn hjá skáldinu í Camp Knox þegar ég var níu ára en við komum oft til hans í Fossvog seinna. Hann dó þegar ég var þrettán ára en Steinn var sérlega bamgóður og indæll maður og ég tel að ég hafi lært mikið af honum og lít á hann sem einn af mínum helstu áhrifavöldum. Ég hef lesið Ijóð hans mjög mikið alla mína ævi en lagði þau nokk- uð til hliðar þegar ég flutti til Ameríku fyrir 10 árum og hélt að þau myndu kannski veðrast svolítið með tímanum en þegar ég tók þau fram aftur þá sá ég enn betur hvað þetta er stórkostlegt efni.“ Stórmyndin um Stein - Hvemig sérðu fyrir þér mynd um ævi Steins? „Það er saga hans sem baráttumanns fyrir lítilmagnann. Þetta er maður sem kynntist af eigin raun versta kerfi sem hefúr verið til í sögunni sem er íslensk sveitarforsjá en hann ólst upp á sveit. Hann missir móður sína 3 ára gamall og það markar hann fyrir lífstíð. Hann ánetjast seinna hugmyndakerfi sem er enn verra en það sem ól hann upp en hafði kjark til að risa gegn því. Þetta er mitt eigið handrit og gerist að mestu á stríðsárunum og fjallar um baráttumanninn og ástina í lífi hans. Þama verða Ásthild- ur og Louisa og svo aftur Ásthildur en á þessum stríðsárum orti hann nánast öll sín kvæði, nánar tiltekið á 10 árum, frá 1933 til 1943.“ - Jón Óttar segir að þegar séu þrjú handrit eftir hann í vinnslu eða skoðun hjá ýmsum framleiðendum en Jón Óttar býr í hjarta há- borgar kvikmyndaiðnaöarins í Hollywood. En hver er tilgangurinn með þessari jólasýningu á Skjá einum? „Ég er að skipuleggja næstu skref en ég er að vona að íslensk stjómvöld taki við sér og styrki mig í þeirri viðleitni að flytja út is- lenska menningu eins og hún birtist í ljóðum Steins og sögu hans. Það er búið að gera Halldór Laxness að útflutningsvöm og nú held ég aö tækifærið blasi við og Steinn er okkar maður sem hefúr allt til brunns að bera til að ná athygli alls heimsins. Hann er merkis- beri fyrir þá gullöld íslenskra lista sem Halldór var hluti af en það er ekki nóg fyrir Stein að vera frægur á íslandi. Við eigum að deila honum og fleiri listamönnum með heiminum öllum.“ - Ertu þá að leita eftir fjármagni frá íslandi? „Við erum með leiðir að ákveðnu fiármagni hér en mín von er sú að ég fái táknrænan styrk til að láta þennan draum rætast. Það hef- ur tekið mig 10 ár að komast inn í þennan heim hér í Hollywoood og ég tel nú að ég skilji hann nógu vel til þess að vekja athygli kvik- myndaheimsins á íslandi. Við lifúm á nýjum víkingatímum og þetta er okkar tækifæri." Að opna rétta póstinn - Jón er virkilega búinn að ná sér á flug þegar hér er komið sögu og fer að rifia upp misjöfn viðhorf íslendinga á ólíkum tímum og vitnar aftur til fóður síns, Ragnars Jónssonar, bókaútgefanda og menningarjöfurs, sem jaftian var kenndur við Smára. „Hann fór á pósthúsið á hverjum degi og var vanur að henda út- lenda póstinum því hann sagði að það þýddi ekkert að vera að lesa þetta. Nú held ég að það sé nóg komið af naflaskoðun og afdalahætti Islendinga og nú er kominn timi til að fara að lesa póstinn frá út- löndum." - Ein helsta skrautfiöður Skjás eins er fyrrum samstarfskona Jóns, Valgerður Matthíasdóttir. Finnst þér þú vera að endurlifa árin á Stöð 2 þegar þú kemur inn á unga sjónvarpsstöð á íslandi? „Skjár einn er alger hliðstæða þess sem Stöð 2 var á sínum tíma. Þar iðar allt af sköpunarkrafti og þar er verið að gera að mörgu leyti það sem við vildum gera á Stöð 2 á sínum tíma áður en peninga- mennimir tóku af okkur völdin. Amerískar kvikmyndir áttu aldrei að vera annað en tæki til að fiármagna íslenska dagskrárgerð. Þær áttu ekki að verða aðalatriðið. Ég fmn þama að mörgu leyti sama kraftinn og ég leitaði að forð- um. En ef þetta tekst ekki núna og það fer á sömu leið og Stöð 2 þá hefúr RÚV að lokum sigrað í þessari samkeppni." Óorði kornið á brenniiínið - Finnst þér Stöð 2 vera á þeirri leið sem þú markaðir í upphafi eða sérðu bamið þitt í tröllahöndum þegar þú horfir til þess í dag? „Ég fylgist nú ekki svo með að ég vilji segja neitt um ástandið þar en í grófum dráttum má segja að þessi stöð sé að staðfesta tilvist RÚV í stað þess að berjast gegn henni. RÚV er enn sama einokunin og þar hefur ekkert gerst. íslensk menning er lykillinn að öUu og þær hugmyndir sem búa í íslendingum sjálfum. Þetta vildum við virkja á sínum tima en menning hefúr fengið á sig hálfneikvæðan stimpil með því að það er framleitt svo mikið af prumpi í nafhi menningar. Það kemur á hana óorði eins og rónar koma óorði á brennivínið. Þær tvær sjónvarps- stöðvar sem nú starfa fyrir utan RÚV verða að taka ábyrgð á ís- lensku framtaki því annars hefur RÚV sigrað." - Jón lýsir lífi fiölskyldunnar svo að það séu forréttindi að búa í Los Angeles en á þessum tíu árum hefur hann einnig fengist við rekstur myndbandaleigu og einnig verið umsvifamikill í sölu á Her- balife fæðubótareftium og er einn mikilvirkasti innflytjandi þeirra til íslands um árabil. „Við komum alltaf til Islands svona þrisvar á ári og það er hvergi betra að vera. Það eru hins vegar spennandi timar í Hollywood þar sem amerisk neðanjarðarhreyfmg sjálfstæðra kvikmyndagerðar- manna er að ná völdum smátt og smátt.“ Herbalife og smjörlíki -1 ljósi þess að faðir Jóns var eitt stærsta aflið i íslensku menn- ingarlífi meðan Jón var að alast upp og Jón er nú að snúa sér enn einu sinni að íslenskri menningu er freistandi að spyrja hann hvort hann sé að feta i fótspor fóður síns, hins þjóðkunna Ragnars í Smára, sem notaði smjörlíkissölu til þess að standa undir menning- arstarfsemi líkt og Jón Óttar virðist nota Herbalife. „Það er ekki persónulegur metnaður minn. Ég hef frekar eytt æv- inni í að reyna að forðast skuggann af fóður mínum sem var risa- stór. Við vorum vinir svo það er ekki um neina uppreisn að ræða en ég tók á mig króka í önnur verkefni eins og matvælafræði og næringarfræði og verkfræði því ég vildi finna minn sess í tilver- unni. Ég dróst samt aö íslenskri list eins og segli og þegar ég stofn- aði Stöð 2 fann ég að ég var kominn á rétta hillu og margt af þvi sem ég hef gert dregur óneitanlega dám af hans ferli og verkum." -PÁÁ orðs. Hann hef- ur verið búsett- ur í io ár í Hollgu/ood en sngr nú aftur inn ííslenskt menningarltf með ngrri heim- ildarmgnd um Stein Steinarr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.