Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 H elcjo rblað H>V 39 / / e / c) ci rb l ct c) 3Z>V LAUGARDAGUR 22. FEBRUAR 2003 Menningar- verðlaun DV Ólafur Sveinsson: Hlemmararnir eru Ólafur Sveinsson vakti verðskuld- aða athygli með heimildamynd sinni um lífið á Hlemmtorgi og eflaust brá mörgum við að sjá þá miskunnar- lausu neyð sem þar blasti við. DV var í sambandi við Ólaf þar sem hann sat við klippitölvu í Þýskalandi, önnum kafinn, og lagði fyrir hann nokkrar spurningar? - Hver varð kveikjan að því verki sem þú ert nú verðlaunaður fyrir? „Eitthvert sumarið þegar ég kom heim og bjó hjá móður minni suður í Hafnarfirði, bíllaus eins og venjulega, þurfti ég að skipta um strætó á hverj- um degi á Hlemmi. Þá fór ég að sjá sömu andlitin þar aftur og aftur, sá að þama var heimur sem ég þekkti ekki en fannst mjög áhugaverður, þannig að ég ákvað að gera mynd um stað- inn.“ - Hvers vegna gera menn heim- ildamyndir en ekki leiknar myndir? „í sjálfu sér sé ég engan grundvall- armun á heimildamyndum og leikn- um myndum. Það sem máli skiptir er það hvort myndirnar eru góðar eða lé- legar, hvort þær hreyfa við áhorfend- um eða ekki. Kosturinn við heimilda- myndirnar er náttúrlega að þær eru miklu ódýrari en þær leiknu og þar af leiðandi auðveldari í framleiðslu." - Hver er staðan í íslenskri heimild- amyndagerð eða telur þú þig þýskan kvikmyndagerðarmann eða skiptir kannski þjóðerni engu máh? „Það hefur átt sér stað bylting í ís- lenskri heimildamyndagerð núna allra síðustu ár, sem er mjög ánægju- leg í aila staði. Það hafa verið frum- sýndar margar góðar myndir sem fjalla um hluti í samfélaginu sem skipta máli og maður hefur á tilfinn- ingunni að þetta sé bara byrjunin, að hetjurnar það eigi enn betri myndir eftir að líta dagsins ljós næstu árin. Hvað sjálfan mig varðar er ég íslendingur sem vinn jöfnum höndum sem kvikmynda- gerðarmaður á íslandi og í Þýska- landi.“ - Hefur það einhverja þýðingu að verðlauna menningarafrek almennt? „Þau eru náttúrlega alltaf ánægju- leg fyrir þá sem fá verðlaunin og sjálf- sagt einhvers konar gæðastimpill fyr- ir almenning. Hins vegar hef ég stund- um furðað mig á hvaða hlutir eru verðlaunaðir og hverjir liggja óbættir hjá garði. Þannig að ég þykist vita að það verði uppi raddir sem undrast það mjög að Hlemmur skuli fá þessi verð- laun. Ef hins vegar þau og myndin verða til þess að vekja athygli á að- stöðu þeirra sem Hlemmur flallar um - og vonandi bæta hana - þá á mynd- in verðlaunin virkilega skilin. Því Magnús Pálsson: Losna aldrei við leikhúsið Magnús Pálsson hefur verið virkur í íslensku menningarlífi í ríflega hálfa öld. Hann hóf störf sem leikmyndahönnuður 1951 og starfaði af fullum krafti í leikhús- inu í rúm 10 ár en þá segist hann hafa hætt að líta á leikhúsið sem sitt lifibrauð og snúið sér í vax- andi mæli að myndlist sem hefur verið viðfangsefni hans æ síðan. Magnús hefur verið búsettur í London síðustu 15 ár. Hann fær Menningarverðlaun DV fyrir myndlist en verk Magnúsar sáust á þremur sýningum á íslandi á síðasta ári. DV náði sambandi við listamanninn á heimili hans í London og spurði hvort næsta ár yrði jafn annasamt. „Næsta verkefni er þátttaka í sumarsýningu Royal Academy í júlí, síðan í Listasafni Reykjavík- ur í september og Kyoto í Japan í október. Þetta er það sem ég er að vinna að í augnablikinu,“ sagði Magnús. í rökstuðningi dómnefndar er minnst á húmor og kímni sem sagt er að einkenni verk Magnús- ar. Hversu mikilvægur er húmor í myndlist? „Húmor er mikilvægur í allri list. Hann losar um hömlur sem listin setur sér stundum og slíkar hömlur geta orðið að ramma sem lokar menn inni og háir þeim. Það er mjög misjafnt hve mikil- vægt menn telja þetta og sumir telja sig ná fram alvöru gegnum húmor.“ - Hefur það breytt sýn þinni á föðurlandið að hafa verið búsett- ur í London í 15 ár? „Ég er mikil flökkukind í eðli mínu og vil vera á ferðinni. Ég hef aldrei slitnað frá íslandi svo ég veit ekki hvort þetta hefur breytt mér. Ég verð að koma reglulega til íslands og ferðast því mikið á milli. En stundum finnst mér líka mjög gott að kom- ast í burt frá íslandi aftur.“ - Magnús segir að í 20 ár eftir að hann sagði skilið við leikhús- ið hafi hann alltaf tekið að sér verkefni á þeim vettvangi en það hafi minnkað með árunum. „Ég losna sjálfsagt aldrei við leikhúsið, sem betur fer, og það sést áreiðanlega í verkum mínum Andri Snær Magnason: Skrifuð í hræðslukasti Andri Snær Magnason rithöf- undur fékk Menningarverðlaun DV fyrir fyrstu skáldsögu sína, LoveStar. DV hitti skáldið og spurði það nokkurra spurninga. - Hvað varð kveikjan að þess- ari bók sem þú færð verðlaunin fyrir? „Það voru lokaorðin í Pilti og stúlku, fyrstu íslensku skáldsög- unni. Mig langaði til að ramma inn þetta tímabil í bókmennta- sögunni og semja síðustu skáld- sögu íslands." - Finnst þér sanngjarnt aö bera hana saman við frægar framtíð- arspár og ádeilur eins og Brave New World og 1984 og ef svo er hvað var það í okkar samtíma sem þér fannst kalla á slíka ádeilu? „Ef við lítum á þessar sögur sem bókmenntagrein þá var það meðvituð ákvörðun að skrifa svona bók. Þær sem þú nefndir eru báðar 50 ára gamlar og mér fannst nýir tímar þurfa nýja bók. Alræði auglýsinganna þar sem allar tilfinningar hafa verið virkjaðar. Sagan er skrifuð í dá- litlu hræðslukasti. Ekkert stöðvar hugmynd og sérstaklega ekki á íslandi, þær smitast hratt, æða yfir landið eins og svartidauði og eira engu.“ - Það er til mýta sem segir að sé miklu lofi hlaðið á fyrstu skáldsögu ungs höfundar setji það á hann óbærilega pressu. Hefur þetta verið þín upplifun? „Þegar ég gaf út Bónusljóð sagði vinur minn: „Þú toppar þetta aldrei!“ Menn sögðu líka að það myndi reynast erfitt að fylgja Bláa hnettinum eftir. Ég fylgdi honum eftir með LoveStar. Nú spyrja menn hvort ekki verði erfitt að fylgja þessu verki eftir en ég held að svo verði ekki svo lengi sem maður reynir ekki að endurtaka sig. Það er höfund- um hvatning að vera lesinn og keyptur en aðalpressan hlýtur alltaf að koma innan frá. Ef menn skynja aðeins pressu utan frá en hafa ekkert að segja eru þeir á rangri hillu.“ - Að hverju ertu að vinna um þessar mundir og hvert verður næsta verkefni þitt sem lítur dagsins ljós? „Ég var í þessum LoveStar heimi í rúmlega eitt og hálft ár og síðustu tvo mánuðina fór ég varla út í búð. Sumir segja að nýtt verk sé eins og barn sem maður fæðir í heiminn, mér finnst frekar eins og ég hafi fæðst út úr verkinu. Sagan var eins og - öruggur móðurkviður og ég gat dvalið í þessu öryggi frá morgni til kvölds en nú þarf maður að fóta sig í nýjum heimi og þráir ekkert heitar en að hjúpast réttu sögunni og finna öryggið á ný.“ -PÁÁ Jón Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson: Steinunn Sigurðardóttir: Hef hannað alla ævi er gamall draumur að vinna sjálf- stætt og að koma á framfæri prjónavöru sem hefur hátískueigin- leika en er í verðflokki sem margir geta ráðið við.“ - Hvað varð til þess að þú ákvaðst að leggja fyrir þig hönnun? „Ég hef búið til föt síðan ég man eftir mér, og áhuginn á að búa til fatnað sem var ólíkur því sem var í kringum mig hefur alltaf fylgt mér. Það var eiginlega óumflýjanlegt að mennta mig í hönnun og leggja það fyrir mig. Mér finnst það gefandi að skapa og segja eitthvað með fatn- aði.“ - Er ísland nógur stór markaður fyrir hönnuði eða er allur heimur- inn viðfangsefni þeirra? „Það er örugglega ólíkt eftir því við hvers konar hönnun er átt en það er allavega mjög erfitt fyrir fatahönnuði að fóta sig á svo litlum markaði, enda miðast öll fataverð við fjöldaframleiðslu. Það er nú hins vegar skemmtilegt í dag að það eru engin landamæri fyrir góð; hönnun frekar en til dæmis tón list.“ - Orðið hönnun er ekki ýkja gam alt í íslensku máli. Hefur viðhor fólks til starfs hönnuða breyst á síð ustu árum? „Ég er nú líklega ekki sú sem gei ur svarað því best, þar sem ég he verið mjög mikið erlendis síðusti tvo áratugi, en mér sýnist viðhorfii vera að byrja að breytast. Það virð ist vera aukinn skilningur á verð mæti góörar hönnunar en við eig um samt óralangt í land til ai standa jafnfætis þjóðum eins oi Ítalíu eða Danmörku." Hafa menningarverðlaunin ein: og þessi einhverja sérstaka þýðingi fyrir þína starfsgrein? „Já, mér finnst þetta viss viður kenning á fatahönnun sem atvinnu grein. Það hafa margir hér atvinm af henni og henni er heiður sýndu með því að veita þessi verðlaun í á til fatahönnuðar." -PÁ/ Steinunn Sigurðardóttir, sem er verðlaunuð fyrir textíl og fatahönn- un, stýrði prjónahönnunardeild Calvin Klein í sex ár og er í dag yf- irhönnuður hjá La Perla á Ítalíu. Þannig má segja að hún sé einn ör- fárra íslenskra hönnuða sem hefur verið í aðstöðu til hafa áhrif á al- þjóðlega hönnun á sínu sviði. Hún stofnaði eigið fyrirtæki á síðasta ári og hefur sett í framleiðslu fata- línu undir eigin nafni sem er seld víða um heim. DV náði sambandi við Steinunni milli flugferða og spurði hana nokkurra spurninga. - Hver varð kveikjan að þeirri hönnun sem þú ert nú verðlaunuð fyrir og hvað lagðir þú til grund- vallar við hönnunina.? „Þetta á sér nú ansi langan að- draganda en ég hef veriö að byggja upp mitt eigið fyrirtæki smám sam- an í nokkur ár, samhliða því að vinna sem hönnuður hjá tískufyrir- tækjum í New York og Mílanó. Það meira og minna. Þetta situr djúpt í manni enda er ég alinn upp í leikhúsi og eyddi þar mótunarár- um mínum.“ -PÁÁ Lýðræðisleg byggingarlist Hilmar Örn Hilmarsson: Teikn frá guðunum Þeir sem hlustuðu á Hrafna- galdur Óðins á Listahátíð í Reykja- vik vorið 2002 munu aldrei gleyma þeirri stund enda sátu áheyrendur sem steini lostnir þegar flutningi verksins lauk og óskuðu sér þess að byrjað yrði að nýju. Á sviðinu voru höfundar verksins: Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld og hljóm- sveitin Sigur Rós ásamt öðrum flytjendum, Steindóri Andersen, Schola Cantorum, strengjasveit, Páli á Húsafelli og steinhörpu hans, Maríu Huld Markan og stjórnandanum Árna Harðarsyni sem hélt öllum þráðum í styrkri hendi sinni. Hvað varð til þess að þeir kraft- ar komu saman sem sköpuðu Hrafnagaldur Óðins? „Kvæðið Hrafnagaldur Óðins hafði lengi verið mikil della hjá mér og segja má að tónverkið hafi átt tuttugu ára aðdraganda," segir Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld. „Eysteinn Björnsson hafði safnað öllu því sem tengdist kvæðinu og borið saman mismunandi útgáfur og kynnti fyrir mér. Kvæðið er mjög skrýtið og því minna sem maður skilur, því meira heillandi er það. Mér fannst alltaf að ég þyrfti að gera eitthvað varðandi kvæðið en það hafði ekki komið út á prenti mjög lengi og það var sú leið sem ég sá fyrir mér fyrst um sinn. En svo laust því allt í einu niður í mig að setja Hrafnagaldur fram í tónlistarlegu samhengi. Þaö voru ýmis teikn á lofti þeg- ar leiðir mínar og Sigur Rósar lágu saman við gerð tónlistar fyrir Engla alheimsins. Mér fannst þeir vera ákjósanlegur samstarfsaðili í verkefni á borð við Hrafnagaldur. Ég var enda eltur af hröfnum á þessum tíma og upp úr dúrnum kom að þeir væru búnir að stofna fyrirtækið Krunk. Við sáum það sem teikn frá guðunum. Þeir höfðu hafið samstarf við Steindór Andersen sem ég hafði vitað af í gegnum tíðina og þetta varð til þess að við Steindór hittumst loksins. Þetta varð því allt mjög lógískt og gekk mjög skemmtilega upp. Þegar Þórunn Sigurðardóttir, stjórnandi Listahá- tíðar í Reykjavík, frétti af hug- myndinni varð hún ástfangin af henni. Þórunn sýndi mikið hug- rekki þegar hún fékk okkur til að þróa verkið fyrir Listahátíð. Það hafa því verið örlög þessa verkefn- is að rétta fólkið birtist alltaf á réttum tíma.“ Er hægt að staðsetja Hrafnagald- ur Óðins innan einhverrar tónlist- arstefnu? „Nei, ég held ekki. Og það er sjarminn við verkið. Hrafnagaldur kviknaði að miklu leyti út frá steinhörpu Páls á Húsafelli. Út frá henni varð til ákveðin beinagrind. Ég held að Hrafnagaldur sé engu líkur: verkið er ekki tónlistarsagn- fræði, ekki klassík og ekki popp. í verkinu mætast sterkustu þættir hverrar hefðar og eru notaðir skömmustulaust. Við þorum að vera einfaldir, rómantískir og við þorum líka að vera með hávaða og læti. Þegar ég lít til baka er eins og þetta hafi alltaf átt að vera svona þótt ferlið hafi ekki alltaf verið mjög raunsæislegt." -sm Sveinn Einarsson: Forréttindi að glíma við auðug verk Sveinn Einarsson er leiklist- arunnendum að góðu kunnur. Hann hlýtur í ár Menningarverð- laun DV fyrir uppfærslu sína á Hamlet Williams Shakespeares hjá Leikfélagi Akureyrar. Ungir leikar- ar voru þungamiðjan í uppfærslu Sveins en með hlutverk Hamlets og Ófelíu fóru ívar Örn Sverrisson og Arnbjörg Hlíf Valsdóttir. Nánustu samstarfsmenn Sveins voru Elín Edda Árnadóttir sem hannaði leik- mynd og búninga, Sverrir Guðjóns- son sem samdi tónlist og Egill Ingi- bergsson sem hannaði lýsingu. „Ég byrjaði feril minn í leikhúsi sem leiklistarfræðingur og hafði því lesið Hamlet oft áður en ég byrjaði að vinna praktískt í leik- húsi. Ég veit nákvæmlega hvernig ég kynntist Hamlet fyrir alvöru: ég hafði lesið þýðingu Matthíasar Jochumssonar þegar ég var um fermingu en Hamlet lifnaði fyrst fyrir mér þegar ég sá kvikmynd Laurence Öliviers. Þá var ég í landsprófi og sá Hamlet fimm sinn- um. Eftir það sat verkið mjög í mér. Ég var þó ekki tilbúinn til að setja verkið upp fyrr en nú - eftir fjöru- tíu ára starf í leikhúsi. Hefði ég sett verkið upp fyrir fjörutíu árum eða tuttugu hefði uppfærslan orðið mjög ólík því sem varð haustið 2002 vegna þess að maður tekur alltaf mið af reynslu sinni þegar maður glímir við leikhúsið. Ég hef séð fjölda uppfærlsna af Hamlet og þaö fyrsta sem maður setur sér fyrir er að láta það ekki hafa áhrif á sig. Leiksýning er einskis virði nema maður komi með persónulega túlkun sína sem leikhópurinn er samþykkur og leggur sitt af mörkum. Þessi sýning var meðal annars mótuð af starfi mínu fyrir UNESCO þar sem við glímum við stór vanda- mál, til dæmis hvernig bregðast á við ofbeldi. Hamlet upplifir ofbeldi þegar hann verður þess áskynja að faðir hans hefur verið myrtur. Samfélagið heimtar auga fyrir auga og tönn fyrir tönn en hann er ekki viss um að það sé rétta svarið því þá viðurkennir hann að morð sé lausnin. Þessi spurning er sú sama og við stöndum frammi fyrir nú í sambandi við írak. Ég vildi hafa mjög ungt fólk í hlutverkunum því að mér finnst minni kynslóð ekki hafa tekist sér- staklega vel að stjórna þessum heimi. Mér sýnist yngri kynslóðin ekki almennilega vöknuð til þess að gera betur. Við reyndum því að lesa í ákveðna þætti verksins á annan hátt en vani er til og sendum um leið skýr skilaboð. Það er óskaplega gaman að fást við auðug verk því þau auðga mann sjálfan. Það eru því ákveðin forréttindi að fá að glíma við verk eins og Hamlet." -sm Hlemm- aramir mínir, eins og kalla þá, eru hinar raun- verulegu hetjur þessarar myndar, ekki ég.“ -PÁÁ Arkitektarnir Jón Ólafur Ólafs- son og Sigurður Einarsson, hjá arkitektastofunni Batteríið Arki- tektar, hljóta Menningarverðlaun DV fyrir þjónustuskálann við Al- þingishúsið. Jón Ólafur og Sigurður komu að byggingum Alþingis árið 1987 en þá unnu þeir að öðru verkefni sem verið hafði niðurstaða samkeppni. „Við höfum verið í mjög spenn- andi díalóg við embættismenn og forsætisnefnd Alþingis um þróun svæðisins. Það hefur verið spennandi en um leið mjög krefjandi," segir Sigurður. „Við höfum starfað með fjórum forsetum Alþingis frá árinu 1987 þannig að póli- tískt landslag hefur breyst mjög frá því við byrjuð- um,“ segir Jón Ólafur. „Ferlið hefur verið mjög lýðræðislegt og allir þeir sem komið hafa að verk- inu eiga hlut í endan- legri niðurstöðu." „Ég tel að lýðræðisleg niðurstaða vinnunnar end- urspeglist í Skálanum. Við tókum mið af gamla Alþingishúsinu varð- andi steinklæðninguna og hlutföll nýbyggingarinnar. Skálinn er lýð- ræðislegur að því leyti að hann er opinn og gegnsær og sýnir Alþingi að störfum," segir Sigurður. „Já- kvæðustu ummæli sem við höfum heyrt um bygginguna eru að það sé eins og hún hafi alltaf verið þarna." Jón Ólafur og Sigurður segja að það hafi mikil þróun verið í arki- tektúr á þeim árum sem liðin eru frá því þeir komu að verkefnum við Alþingishúsið. „Það jákvæða við arkitektúr í dag er að hann er orðinn tímalaus- ari og breiðari en sú þróun sést einnig í fata- og hártísku nútím- ans,“ segir Jón Ólafur. „Fyrir fimmtán árum hengdu menn sig frekar í stíla. Eftir módernismann kom póstmódernisminn, dekon- strúktívisminn og upp úr því varð allt leyfilegt. Við hönnun þjónustu- skálans má segja að við höfum tengt saman annars vegar nasjónalisma, sem er hinn róman- tíski hluti hússins og tengist Al- þingishúsinu, og hins vegar módernisma eða funkisstíl sem birtist í notkun glers.“ Þeir segja að það sé grundvallar- atriði í vinnu þeirra að bygging- arnar sem þeir hanna séu merkis- berar þeirra tíma sem hannað er á. „Við viljum að byggingar okkar séu framlag til byggingarsögunnar en ekki endursköpun löngu liðins augnabliks. Það hefði verið hægt að byggja í anda þinghússins en við gátum ekki hugsað okkur það.“ Jón Ólafur og Sigurður hafa lagt mikla áherslu á rannsóknir varð- andi vind og veðurfar. „Við teljum að þættir varðandi vind og veðurfar séu vanmetnir í íslenskri byggingarlist. Það hefur verið aukin ásókn í að byggja há- hýsi á íslandi á þeim forsendum að það sé það sem nútímabyggingalist í útlöndum sé að fást við. Við verð- um hins vegar að átta okkar á því að Madríd er á 42. breiddargráðu en ísland á 66. breiddargráðu. Við sækjum í sólina en ekki skugg- ann.“ -sm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.