Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 Hlifðargrindur bannaðar og líknarbelgir settir í stuðarann Evrópubandalagið er nú að undir- búa bann við svokölluðum „Safari- grillum“ sem á íslensku hétu hér áður fyrr kúaplógar - breiðar og öfl- ugar hlífðargrindur sem raunar eru hafðar framan við vatnskassahlífar og jafnvel að hluta eða öllu framan við stuðara. Þetta bann á að ganga í gildi árið 2005 og samtímis eiga læsivarðir hemlar (ABS) að vera skylda. Ekki er ljóst af þessum fyrstu fréttum hvort heimilt verður að hafa rofa á þeim þannig að mögu- legt verði - og leyfllegt - að taka læsivömina af þegar ekið er við sér- íslenskar aðstæður, svo sem í laus- um sandi á fjallvegum eða við aðrar aðstæður þar sem læsivömin hefur heldur þótt til óþurftar. Ástæðan fyrir því að Evrópu- bandaiagið vill banna hlífðargrind- umar er sú að árlega bíða um 9000 fótgangenda og hjólreiðarmanna bana í bandalagslöndunum við að verða fyrir bíl. Sívaxandi kröfúr era um að bílar séu þannig úr garði gerðir að þeir valdi sem minnstum skaða á fólki sem fyrir þeim verður. Það verður kannski ekki svo langt síðan skopmyndir frá öldinni sem leið, þar sem sýndir eru bílar með kodda reyrða utan um sig, verði að veruleika því að íhlutaframleiðend- ur, eins og Autoliv og TRW, eru þeg- ar famir að vinna að þróun líknar- belgja sem virka út frá bílnum, t.d. þegar maður verður fyrir bU, í því skyni að draga sem mest úr líkum á meiðslum hjá honum. Það er þá bara spumingin á hvað pokinn kemur tU með að skutla hon- um! -SHH cStí fjxi h íhii u d 3s lui i di Svo sem fram hefur komið er nú unnið að sögu bUsins á ís- landi, en senn er öld liðin frá því að fyrsti bíllinn kom hingað tU lands. DV-bUar mun á næstunni leggja hönd að þessu verki með því aö leita eftir upplýsingum. Þeir sem vUja leggja hönd á plóginn era beðnir að hafa sam- band við söguritara, Sigurð Hreiðar, í síma 893 3272 eða senda honum tölvupóst á net- fangið auto@simnet.is. Kolfastur í Sandá Hálendisferðir framan af áram voru mun harðsóttari en núna gerist. Þó Kjalvegur sé oft holóttur og heldur leiðinlegur þannig séð eru engar torfærar á honum nú tU dags. Áður fyrr var þetta með öðram brag. Þessi mynd er úr ferð Feröafélags ís- lands einhvem tíma á fimmta áratugnum, hugsanlega á stríðs- árunum, því þarna voru tveir setuliðsmenn með í ferð. Sandá norðan Hveravalla reyndist þessum ferðafélögum eftirminni- legur farartálmi því í henni varð bíUinn kolfastur. Þrautaráðið varð í lokin að gera stíflugarð ofan við bUinn og aftur fyrir hann svo hægt væri að komast að því að lyfta honum upp og púkka undir hann og dró enginn af sér - og engum datt í hug að telja þetta svik á ferðakaupum. Myndin er í eigu Ólafíu Pét- ursdóttur sem var í þessari ferð ásamt vinkonum sínum. Farar- stjóri var Einar Magnússon rektor og Ólafíu minnir að bU- stjórinn hafi heitað Guðni. En nú er spurt? Hver átti þennan bU, X-120? Hver var ökumaður í þessari ferð? FordGalaxy kyimtur í febrúar í lok febrúar mun Brimborg kynna nýjan bíl frá Ford, Galaxy-fjölnotabUinn sem er sjö sæta. Ford Galaxy er mest seldi bUinn I sínum flokki í Evrópu. Að sögn Egils Jóhannssonar, forstjóra Brimborgar, verður hægt með hagstæðum samning- um og skilvirkri birgðastýringu að bjóða Ford Galaxy á hag- stæöu verði eða frá kr. 2.595.000 í sjö sæta útgáfunni. „Ford Galaxy verður fáanlegur með fjórum vélargerðum, bæði bens- ín og dísil og bæði beinskiptur og sjálfskiptur. Hann verður að auki vel búinn með ABS-hemla- kerfi, samlæsingu með fjarstýr- ingu, fjórum öryggispúðum, upphituðum framsætum og loft- kælingu svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Egill. Helgarblað J3V Audi A4 einnig með 190 hestafla vél Ný, sérlega aflmikil gerð 1,8 lítra forþjöppuvélarinnar mun koma í Audi A4. Hún gefur 190 hestöfl og snúningsvægi upp á 240 Newtonmetra og þessi vél tekur því við sem sú aflmesta í flokki fjögurra strokka véla í A4. Hröðun í 100 km er aðeins 8,2 sekúndur og hámarkshraðinn er 236 km. Þessi nýja gerð verður sú fyrsta af 1.8T sem verður búin sex gíra gírkassa sem staðalbún- aði. Vélin sem verður í boði í A4 Saloon og A4 Avant hefur verið endurbætt á ýmsa vegu. Quattro GmbH, sem ber ábyrgð í dag á vélunum í Audi RS4 og RS6, hef- ur bætt við öðrum millikæli, endurbætt forþjöppuna og gert grundvallarbreytingar á raf- eindastjórnbúnaði vélarinnar. Skildir með einkennandi rauðu „T“ á vélarhlífum og aftan á bif- reiðinni gefa til kynna hvaöa vél er í dag sú aflmesta í A4. Ef horft er á þessar afkastatölur þá kem- ur sparneytnin á óvart. A4 1.8T Saloon eyðir aðeins um 8,6 lítr- um af bensíni á 100 km (miðað við eyðslustaðla Evrópusam- bandsins). A4 1.8T kom í sölu í byrjun nóvember í Þýskalandi en að sögn Jóns Trausta Ólafs- sonar, kynningar- og blaðafull- trúa Heklu, liggur verð hér á landi ekki fyrir að svo stöddu. Eftirspurn eftir Ford Focus RS og Volvo XC90 Mikil eftirspurn er að verða eftir Ford Focus RS í Bretlandi og er stutt i að öll framleiðsla ársins verði uppseld. Ekki er bú- ist við að Brimborg fái bíla fyrr en seint á árinu en að sögn Egils Jóhannssonar, forstjóra Brim- borgar, er verð ekki komið á hreint en gæti orðið í kringum 3,5 milljónir. Sama er uppi á ten- ingnum varðandi Volvo XC90 en vegna mikillar eftirspurnar hafa Volvo-verksmiðjurnar ákveðið að auka afkastagetu við fram- leiðslu um 10% eða í 60.000 bíla á þessu ári. „Vegna þessarar miklu eftirspurnar hefur þurft að takmarka magn á öllum mörkuðum og nú er svo komið að Brimborg hefur selt nánast alla þá bíla sem fyrirtækið fær á þessu ári,“ segir Egill. Puma-fjórhjólin hjá Vélaveri kosta aðeins 413 þúsund krónur. Sýning og reynsluakstur er í dag hjá fyrirtækinu í Reykjavík og á Akureyri. Vélavei* með nýtt funbúlð fjórhjól Vélaver hf. hefur hafið innflutn- ing á nýrri gerði fjórhjóla sem bera heitið Puma. Puma-fjórhjólin eru léttbyggð - vega aðeins um 215 kg. Þau eru búin fjórgengis 10 kW, 230 cc bensínmótor með raf- og handstarti. Gírkassinn er með vökvakúplingu, 5 gírum áfram og einum aftur á bak. Afl til afturöx- uls er flutt með drifskafti sem er í lokuðu húsi. Stuðaragrind er framan á hjólinu og það er einnig með bögglabera að framan og aft- an, auk festingar fyrir dráttarkúlu á afturhásingu. Góður ijósa- og bremsubúnaður er einnig á Puma- hjólinu. Vélaver hf. fékk fyrstu Puma-fjórhjólin fyrir um mánuði og hefur á þessum stutta tíma af- hent 25 hjól, en auk þess bíða fleiri pantanir afgreiðslu hjá fyrir- tækinu. Sérstakt kynningarverð er á hjólunum, eða aðeins kr. 413.000 með skatti og skráningu. Kaupendur hjólanna hafa verið sumarbústaðaeigendur, veiði- menn, bændur og ýmsir þéttbýlis- búar sem eiga eða hafa aðgang að bújörðum. Vélaver verður í dag, laugardag, frá kl. 10-16, með sér- staka sýningu og reynsluakstur á Puma-fjórhjólum í Lágmúla 7, Reykjavík, og hjá Vélaveri hf. á Akureyri. -GG Suzuk Baleno Wagon 4x4 Skr. 8/99, ek. 75 þús. Verð kr. 1140 þús. Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk. Skr. 8/99, ek. 39 þús. Verð kr. 1150 þús. Suzuki Jimny JLX, bsk. Skr. 6/02, ek. 15 þús. Verð kr. 1480 þús. Suzuki Wagon R+ 4x4. Skr. 5/00, ek. 13 þús. Verð kr. 890 þús. Suzuki Grand Vrtara 2,0, bsk. Skr. 6/01, ek. 67 þús. Verð kr. 1790 þús. Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk. Skr. 6/00, ek. 74 þús. Kr. 1290 þús. Ford Fiesta Flair, bsk. Skr. 11/96, ek. 85 þús. Verð kr. 495 þús. Skoda Octavia Elegance, ssk. Skr. 10/02, ek. 1 þús. Verð kr. 1890 þús. Alfa Romeo 156, bsk, Skr. 9/98, ek. 60 þús. Verð kr. 1180 þús. Nissan Primera Comf., bsk. Skr. 7/01, ek. 25 þús. Verð kr. 1490 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---///y*------------- SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.