Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003
DV
Skelfing
Jack Russel, söngvari rokksveitarinnar
Great White, grætur fyrir utan bruna-
staöinn, einn félaga hans i hljðmsveitnni
er meöal þeirra sem saknaö er.
Að minnsta kosti 65
klúbhgestip látnip
Aö minnsta kosti 65 munu látnir
og meira en 160 slasaðir eftir elds-
voðann í Station-næturklúbbnum í
West Warwick í Rhode Island í BNA
í fyrrakvöld en eldurinn mun hafa
komið upp um klukkan ellefu að
staðartíma þegar tónleikar rokksveit-
arinnar Great White, sem hlaut
frægð á áttunda áratugnum, voru að
hefjast á sviði klúbbsins. Óttast er að
tala látinna eigi enn eftir að hækka
þar sem einhverra er enn saknað og
aðrir illa haldnir á sjúkrahúsum.
Tónleikamir hófust með flugelda-
sýningu, sem heimildir segja að ekki
hafl verið gefið leyfl fyrir en sýning-
in mun strax hafa farið úr böndun-
um þannig að eldur kviknaði strax í
loftinu yfir sviðinu og barst þaðan í
eldflman vegg bak við sviðið.
Að sögn sjónarvotta varð klúbbur-
inn alelda á þremur mínútum en
sumir gestanna munu ekki hafa gert
sér grein fyrir hættunni og haldið að
logarnir væru hluti af sýningunni.
Mikil skelflng greip um sig eftir að
eldurinn magnaðist og reyndi fólkið
þá að hlaupa til útgöngudyranna með
þeim afleiðingum að fjöldi þeirra
tróðst undir. Robin Petrarca, einn
gestanna sem tókst að bjarga sér,
sagði að reykurinn hefði strax orðið
svo þykkur að ómögulegt hefði verið
að sjá til útgöngudyranna. „Ég stóð
aðeins nokkra metra frá dyrunum en
sá ekkert. Ég datt í allri kösinni en
tókst einhvem veginn að komast út.“
Að sögn Charles Hall, yfirmanns
slökkviliðsins í West Warwick, fund-
ust flest líkin framan við útgöngu-
dyrnar, sum illa brennd, en augljóst
að sumir höfðu látist af reykeitrun
og enn aðrir troðist undir. Að hans
sögn stóðst klúbburinn nýlega
venjubundið brunaeftirlit en þar var
ekkert vatnsúðunarkerfi fyrir hendi.
Bandaríkjamenn bíða
enn þá eftir svari Tyrkja
- máliö ekki lagt fyrir tyrkneska þingiö fyrr en samningar hafa náöst
Bandarísk stjómvöld biða enn þá
spennt eftir svari Tyrkja um það hvort
þeir leyfi Bandaríkjamönnum afnot af
herstöðvum sínum og höfnum til árása
komi til stríðs gegn írak.
Viðræður stóðu yfir í Ankara í allan
gærdag og sögðu tyrkneskir
embættismenn að aðeins hefði þokast í
samkomulagsátt.
Deilan virðist snúast um hve mikla
efnahagsaðstoð Bandaríkjamenn láta
Tyrkjum á té í skiptum fyrir
aðstöðuna, en Tyrkir vilja fá mun
meira í beinhörðum dollurum en
Bandaríkjamenn era tilbúnir að borga,
auk þess sem þeir vilja sjá meira en
loforðin ein fyrir efnahagsaðstoðinni.
Yasar Yakis, utanrikisráðherra
Tyrklands, sagðist i gær fullviss um að
Abdullah Gul.
samkomulag næðist næstu daga, fyrr
yrði beiðni Bandaríkjamanna ekki
lögð fyrir tyrkneska þingið.
Á meðan bíða bandarísk herskip
hlaðin hergögnum og hermönnum úti
fyrir ströndum landsins í óvissu um
það hvað verða vill, því leyfi Tyrkir
ekki afnot bíður þeirra ekkert annað
en sigling um Súes-skurð til Persaflóa.
Abdullah Gul, forsætisráðherra
Tyrklands, tók undir orð utanríkis-
ráðherrans og sagði að enn væri
nokkur ágreiningur um upphæðir og
önnur lykilatriði sem ræða þyrfti
betur. „En þeir skilja okkar vandamál
og við þeirra," sagði Gul og bætti við
að Bandaríkjmenn yrðu líka að taka
tiilit til almenningsálitsins í Tyrklandi
en meirihluti Tyrkja er andvígur stríði
gegn írökum.
Bandarískir embættismenn sögðust
í gær bjartsýnir á að samkomulag
næðist en töldu ólíklegt að tilboð
þeirra yrði hækkað.
AP-MYND
Reykjarmökkur yfir New York
Mikill eldur kom upp í eldsneytisbirgöastöö Exxon Mobil á Staten-eyju, rétt fyrir utan New York, í gær eftir aö sprenging varð viö
affermingu tankskips, sem var viö bensínflutninga til stööva í nágrenni New York. Mikinn reyk lagöi upp frá stööinni og náöu
eldtungur tugi metra í loft upp þegar eldurinn var sem mestur en hann var í rénun þegar leiö á daginn. Tveggja skipverja er saknaö
eftir sprenginguna og einn starfsmaður stöðvarinnar var fluttur slasaöur á sjúkrahús.
mssmmm
Króatar sækja um formlega aðiid
„Að verða þátt-
takendur í evr-
ópsku samstarfi
er vissulega
markmiö okkar
en það eru líka
örlög okkar,“
sagði Stipe Mesic,
forseti Króatíu,
eftir að Ivica Rac-
an, forsætisráðherra landsins, hafði
lagt fram formlega umsókn um inn-
göngu Króata í Evrópusambandið
árið 2007 hjá Costas Simitis, forsæt-
isráðherra Grikkja, sem nú fer með
forystuhlutverkið í ESB.
Feitasti köttur í heimi
Feitasti köttur i
heimi, sem vigtar
meira en 20 kíló,
var nýlega upp-
götvaður í Rúss-
landi. Kötturhm,
sem heitir Katy,
er fimm ára göm-
ul læða og hefur
að sögn eigandans
misst áhugann á öllu nema að éta.
„Hún sporðrennir heilli pylsu á
innan við einni og hálfri mínútu og
það dugar ekkert minna en heill
pakki í mál,“ sagði eigandinn. Til
stendur að koma Katy á spjöld
Guinness-heimsmetabókarinnar en
þar er fyrir ástralski kötturinn
Himmy sem vigtar um tveimur
kílóum minna en Katy.
Pútín bauð í ferð á stolinni rútu
Fjölmiðlar í
Rússlandi sögðu frá
því í gær að Pútín
Rússlandsforseti
hefði notast við
stolna rútu þegar
hann bauð fulltrú-
um sambands fyrr-
um sovétríkja, CIS,
í útsýnisferð um Moskvu á þingi
sambandsins í Kreml fyrir tveimur
árum. Um var að ræða lúxusrútu
með öllum þægindum en það sem
Pútín vissi ekki var að henni hafði
verið stolið frá þýskum eigendum
þegar hún var á ferð í borginni Brest
í Hvita-Rússland og síöan seld ferða-
þjónustuaðilum i Moskvu með folsuð-
um pappírum.
. ' :
Veghæð 17,5 cm
SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17. Sími 568 51 OO. www.suzukibilar.is
Verð aðeins
1.580.000
SUZUKIIGNIS: Aflmikil og sparneytin 16 ventla vél, meðaleyðsla aðeins 6.9 L á hundraðiö. Meöal staöalbúnaðar er: Fjórhjóladrif, ABS hemlar, álfelgur, upphituð framsaeti, þakbogar
og rafdrifnar rúður.
Langódýrasti 4-hjóladrifni fólksbíllinn
Veghæð eins og á jepplingi
Sparneytinn og lipur í umferðinni
Fæst sjálfskiptur
Bk
——
IGNIS 4x4