Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 Helgarblctö H>V 9 Sextándu aldar maðurirw Michel de Nostredame eða Nostradamus hefur verið kallaður mesti spámaður allra tíma. Hartn fæddist 1503, ellefu árum eftir að Kólumbus fann Ameríku, en lést 1566. Fjölskylda hans var af qyð- inqaættum en hafði tekið kaþólska trú. Sumir saqnfræðinqar telja að ætt Nostradamusar tilheyri týndum ætt- bálki qyðinqa sem laqði stund á stjörnuspá dóma oq dulspeki. Michel de Nostredame Skömmu fyrir 1550 fór að bera á forspárhæfileikum hjá Nostradamusi Samkunduhús gyðinga, and- laus og geld, veröa tekin herskildi af múslímum... (vms® Fjarlægari framtíð Nostradamus spáir því að styrj- öld araba og ísraelsmanna eigi eftir að breiðast út til Evrópu þegar múslímar og Sovétmenn ganga í banda- lag. Árið sem fólk er tilbúið að leggja sviksemi á hilluna munu tvö voldugustu ríki Asíu og Afríku herja alla leiðina aö Rín og Dóná. Síðan veröa óp og grátur og gnístran tanna á Möltu og ströndum Ítalíu. (wm) Eftir það mun andkristur hnekkja veldi múslíma í stríði sem tekur tuttugu og sjö ár með tilheyrandi hörmungum og geislavirku úrfelli. Staða íslands íslenskir fylgismenn Nostradamusar telja sig hafa fundið eitt og annað í spá- dómum hans um örlög íslands. Tii dæm- is eiga íslendingar að hafna hernaðar- stefnu Bandaríkjamanna með þeim af- leiðingum að ströng lög verða sett í landinu. Samkvæmt einni túlkun á spá- dómsljóðunum mun ísland standa utan við átökin í Evrópu til að byrja með en að lokum kynnast hörmungum þess í gegnum geislavirkt úrfelli, hungursneyð og drepsóttir. Þegar œðsti valdamaður Bandaríkj- anna hvetur til stríðs, mun Eyja stöðug- leikans fyrirlíta hann. Eftir ár velfarnað- ar veröur kviövœnlegt ástand þegar eignarnám og einrœði breyta búsœld Eyjar- innar. (X:36) Mikió hallœri verður vegna banvœnn- ar bylgju sem kemur með úrhellisrigningu frá noröurpólnum. . . . <vi:5> Nýgrœöingar munu byggja land án hervarna. .......Þau kynnast sulti og drepsótt- um en stríð veröur lengi fjarri þessu landi. Saddam Hussein, leiðtogi íraks Nostradainusi verður mjög tíðrætt um samskipti Vesturlanda og múslíma í spádómum sínum. Eftir þetta fara múhameðstrúarmenn sem eldur í sinu yfir Evrópu. Þeir gera innrás í Frakkland og Spán og kaþólska kirkjan bíður mikið afhroð. Meðfram Guadalquivir og í kringum Erbó og Granada veróa hersveitir kristinna manna flæmdar burtu af herliði múhameðstrúarmanna... <m:20) Blóði mun rigna yfir fjallgarðinn þegar konungur kemur úr austri til þess aö endurskipuleggja vestriö... (v:62> Þéttbyggð svœöi veróa gerö óbærileg til búsetu. Miklar deilur koma upp meóal þeirra sem vilja afla nýrra landa. Völdin verða í höndum óhœfra manna ... (ns5) ... Þá verður inntak sakramentisins endurnýjaö og þaö meótekiö á ósvikinn hátt. (VIII:99) Um sama leyti og múslímar herja á Evrópu munu Kínverjar byggja upp voldugan her og umsvif þeirra aukast. Arabar munu ryðjast inn í Evrópu, bera eld aó borgum og stráfella íbúa þeirra. Hinn stórvirki leiótogi Asíu byggir upp voldugan her á landi og sjó. Fólk með náfölt eöa gulleitt litaraft mun elta uppi kristna menn til aö farga þeim. - (nm Þegar líður á munu Bretar og Sovétmenn heyja hel- stríð á sjó og landi og Kinverjar blandast inn í átökin. Spádómar Nostradamusar Margir halda því frant að Nostradamus hafi spáð fvrir um Napóleonsstyrjaldirnar. kjarnorkusprengjuna, lendinguna á tunglinu og morðið á Kennedy. Andkristur mun fljótlega eyða þremur. í tuttugu og sjö ár varir styrjöld hans. Andstœóingar hans verða deyddir, fangelsaóir og geröir útlœgir. Blóó manna litar vötnin og jörðin verður undirlögö höggum. mtrn Pílan mun fara hringferó um himininn. Gífurleg slátrun, sumir deyja í miöjum samræóum. Tré og steinar tætast sundur. Hin eldheita þjóó verður auðmýkt. <n:70) Eftir fall múslima verður Evrópa sundurtætt en stríðið heldur áfram. Sovétmenn hrekja hersveitir Bandaríkjamanna frá Pýreneafjöllum og Rómáborg verður lögð í rúst. Eftir það hefjast ofsóknir gegn kirkj- unni og páfmn er myrtur í Lyon. Skammt frá Pýreneafjöllum veröur einn sem leiðir öflugan her gegn Erninum. Blóðió mun fossa ... ovm) Ógrynni hersveita nálgast frá Rússlandi. Tortímandinn mun eyðileggja hina fornu borg. Ítalía verður eitt flakandi sár og enginn veit hvernig lœgja má öldur ófriðarins. (m> Rómarpáfi, gœttu þess aó nálgast ekki borgina sem er vötnuð tveimur fljótum. Blóó þitt og fylgdarmanna þinna mun seytla á þeim stað þegar rósir blómstra. (u:<m ... Níðingsverkiö verður unniö við ármót Rónar og Sónar. ... ax:<m Blóði kirkjunnar manna verður úthellt, eins og vatn mun það renna í straumum. í langan tíma veröur þaö ekki hindrað. (vmss) (11:19) Þegar fram líða stundir mun mikill skörungur fæðast á íslandi og mun ný stjómskipan í landinu vekja mikla at- hygli og verða öðrum til fyrirmyndar. Þar sem þrjú höf liggja aó landi fœöist sá sem gerir Þórsdag að hátíðisdegi. Frœgó hans, völd og vegsauki mun vaxa þegar Asía riðlast vegna styrjalda á sjó og landi. (1:50) Fyrirmenn kirkjunnar munu lúta höfði við komu hins mikla löggjafa. Hann upphefur hina hógvœru og refsar hinum mót- þróafullu. Enginn honum líkur birtist aftur á jÖrÓU. (V:79> Efasemdir um áreiðanleika Landflótta Nostradamus átti í útistöðum við rannsóknarréttinn í Frakklandi og flutti til Ítalíu um tíma til að kom- ast hjá ákæru. v £ S ’ “ PRO.P.H ETIES Dfi M. MICHEL NÖSTR.ADAMVS. Dont il cn y Irrot's cems qui n*om encoresiamats Spádómsbók Nostradamus gaf út fyrsta hluta spádómsbókarinnar, Centuries, árið 1555 en hún var ekki gefin út í heild fvrr en eftir dauða liaiis. Hvað sem trú manna á framtíðarspá Nostradamusar líður er ekki annað hægt en að velta vöngum yfir spádóms- gildi þeirra. Gagnrýnendur geta rétti- lega bent á að Nostradamus tali um fer- tugustu og funmtu breiddargráðu en að New York sé á fertugustu og fyrstu gráðu og að tímasetningar séu mjög óná- kvæmar hjá honum. í spádómi Nostradamusar um uppgang Hitlers kallaði hann nasistaforingjann Hister en þrátt fyrir það þykir mörgum spá- dómurinn óþægilega nákvæmur. Ná- kvæmni skiptir vissulega máli en það verður að taka tillit til þess að Nostradamus skráði spádóma sína á sextándu öld. Efasemdamaðurinn James Randi hefur bent á að Nostradamus nafngreini menn í 104 spádómum og að í 103 hafi hann haft rangt fyrir sér. Randi segir reyndar að Hister sé gamalt nafn á Dóná og gæti spádómurinn því átt við að vatnsborð Dónár hækki. Það geröist reyndar í fyrrahaust þegar áin flæddi yfir bakka sína og olli gríðarleg- um skemmdum í Prag og víðar. Nostradamus spáði því að framtíðarsýn hans yrði lít- ils metin í fimm hundruð ár en að hann hlyti viður- kenningu árið 2066. -Kip Óvinir okkar? Stríð liefur hörmulegar afleiðingar í för með sér, ekki síst fyrir börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.