Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 10
10 Útgáfufélag: Útgáfufélagifi DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson A&alrltstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Afistoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Afirar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyrl: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Kortér Stjórnarflokkarnir eru að átta sig á að kosningar eru á næsta leiti. Forvígismenn þeirra eru að vakna upp við þann vonda draum að það eru kjós- endur sem ráða. Og því er tímaþært að lofa, hanna falleg bros á bæklinga og heita kjósendum gulli og grænum skógum. Töfra- orðið þetta herrans ár er skattalækkanir. Og svo sem ekki frumleg tillaga en virðist alltaf virka. Það er nú einu sinni svo að almenningur vill fremur greiða litla skatta en mikla. Og þetta vita ráðamenn á fjögurra ára fresti. Tímabært er að stjórnarflokkamir snúi af langri leið skattahækkana. Tímabært er að þeir hugsi um fólk í sama mæli og þeir hafa hugsað um fyrirtæki um langan tíma. Á átta ára valdatíma framsóknar- og sjálfstæðismanna hefur skipulega verið ráðist að lífskjörum venjulegra fjölskyldna í landinu. Skattakerfið hefur ekki einasta verið notað í þessum tilgangi heldur og misnotað. Tölfræðin í þessum efnum er öll á einn veg og vert úttektarefni fyrir Hagfræðistofnun Háskóla íslands. Mikilvægt er að minnast þess að sami gáflinn var á stjórn- arflokkunum fyrir fjórum árum og er á þeim núna kortéri fyr- ir kosningar. í kosningayfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins í að- draganda þingkosninganna 1999 var lofað skattalækkunum rétt eins og núna. Og reyndar lofaði flokkurinn því að efla fjöl- skylduna svo sem hann gæti. Framsóknarflokkurinn var eng- inn eftirbátur í loforðaflaumi sínum enda sagðist hann ætla að hafa fjölskylduna hvorki meira né minna en í fyrirrúmi. Það hefur komið annað á daginn. í fréttum síðustu daga hefur komið fram að enn vantar verulega upp á að vaxta- og bamabætur nái því raungildi sem þær voru í þegar núver- andi ríkisstjóm settist að völdum. Skerðing bamabóta náði sögulegu hámarki árið 2000 eftir að stjórnarflokkamir hétu því að gerast sérstakir bandamenn fjölskyldnanna í landinu, meðal annars með svonefndum barnakortum sem áttu að hressa við heimilin í landinu. Barnakortin urðu hins vegar aldrei að veruleika. Einn helsti skelfir stjórnarflokkanna í skattamálum, frétta- maðurinn Kristján Már Unnarsson, sagði í frétt sinni á fimmtudagskvöld að árið sem stjómarsamstarf ríkjandi vald- hafa hófst hefði bamabætur sem hlutfafl af landsframleiðslu verið um eitt prósent. Hlutfafl barnabóta hefði svo farið ört lækkandi. Loforðin fyrir kosningarnar 1999 hefðu ekki dugað til að stöðva skerðinguna því hlutfaflið hafi farið niður í 0,55 pósent árið 2000 sem þýðir litla helmingsskerðingu á fimm árum. Þetta er óvenjulegur árangur í skattamálum. Vissulega ber að taka hér fram að nokkuð hefur dregið úr skerðingunni á allra síðustu árum og var reyndar tilkynnt meö látum og frétta- mannafundum sem sérstök góðvild stjórnvalda við fjölskyldu- fólk. Góðvfldin hefur hins vegar ekki náð lengra en svo að stjórnvöld hafa aðeins skilað broti af því sem þau tóku af barna- fólki, hlutfall bamabóta er enn þá langt innan við það sem það var í upphafi valdatíma Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Við þetta bætist náttúrlega aukinn tekjuskattur. Rýmun persónuafsláttar á síðustu árum vegur þyngra hjá þorra laun- þega en lækkun skattprósentunnar. Það þýðir hærri tekju- skattur. Þorri fólks, einkum ungt fólk með þunga framfærslu, fær 26 þúsund í skattaafslátt en ætti að fá um 40 þúsvrnd ef hann hefði fylgt verðlagsþróun. ASÍ kaflaði þetta á sínum tíma „meðvitaða ákvörðun um að þyngja skattbyrði og skerða bætur“. Það eru rétt eftirmæli við lok valdatímans. Sigmundur Ernir i kosningar LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003 DV DV-MYNDIR TEITUR Créme de la créme Fyrsti heiöursverðlaunahafi Menningarverölauna DV, Jónas Ingimundarson, ásamt Ágústu Hauksdóttur konu sinni á tali viö Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla íslands. Koppur uppi á borði Silja Aöalsteinsdóttir Fréttastjórí menningar Ritstjórnarbréf Menningarverðlaun DV voru af- hent á fimmtudaginn í 25. sinn í rúm- góðum og sjarmerandi húsakynnum veitingahússins Apóteks í hjarta höf- uðborgarinnar. Við þau tækifæri er hefðbundið að segja að þetta séu elstu menningarverðlaun á landinu og hafi llklega engin verðlaun á menningarsviðinu enst eins lengi og þau, nokkum tíma. Þar af leiðir að meðan þau lifa verða ekki önnur verðlaun eldri - og er gaman til þess að vita. Megi forsjónin þó forða þeim frá því að verða stíf og stirð stofnun, þau hafa einmitt lifað og dafnað á því að vera lítt fyrirsjáanleg, jafnvel ögrandi, og pínulítið kæruleysisleg. Þar setja engar reglur óþægilegar skorður ef andinn kemur yfir menn. Dýr sæti Þessi samkoma hefur auðvitað verið víðfræg í röska tvo áratugi og ekki laust við að á orðspori hennar hafi verið nokkur frímúrarabragur. í 23 ár var hún haldin í salnum Þing- holti á Hótel Holti, afar glæsilegum sal með dökkum, dýrum innviðum, þar sem komust fyrir 40 manns í sæti. 42 hámark. Þetta gerði að verk- um að afar vel varð að velja á gesta- lista og komust þá stundum færri að en hefðu þurft að komast þó að ævin- lega fengju allir sæti sem áttu það pantað, ef svo má segja. Tveir atburðir urðu til þess að opna augu mín fyrir því að þessar að- stæður væru of útilokandi. í annað skiptið hringdi til mín eiginkona verðlaunahafa sem hafði komið með honum utan af landi af því hún trúði ekki öðru en hún fengi að fara með honum á afhendinguna. „Hann fær kannski aldrei verðlaun aftur,“ sagði hún, sár og hneyksluð, „og svo er ég ekki þar til að njóta stundarinnar með honum.“ Þetta voru góð rök og vel hefði mátt eftirláta henni sæti sitt. En hvað þá með aðra maka? í hitt skiptið fékk ungur, upprenn- andi fatahönnuður listhönnunar- verðlaunin og með henni komu á vettvang umsjónarmaður tískuskrifa Times í London og islenskur fylgdar- maður hennar. Sú enska var að skrifa um íslenska hönnuðinn og fannst upplagt að fá að fylgjast með því þegar henni hlotnaðist svona upphefð. En því miður: það voru ekki til tvö sæti í viðbót. Tækifæri DV-verðlaunanna til að fá um sig Stelndór Andersen, kvæöamaður og verölaunahafi Kvaö rímu aö lokum eftir Bjarna Gíslason Húnvetn- ing og sendi alla viöstadda grátandi afgleöi út í sól- skiniö í Austurstræti. merka grein í Times gekk okkur úr greipum. Ég man ekki hvort ég hafði nokkra matarlyst þennan dag. Á að breyta? Eins og glöggir lesendur DV hafa tekið eftir voru birtar í janúar og núna í febrúar alls átta yfírlitsgrein- ar um Menningarverðlaun DV í til- efni af göfugum aldri þeirra, flestar eftir fræðimenn í viðkomandi grein- um utan blaðsins. Þar kom margt vit- urlegt ff am og var sérstaklega gaman að sjá hvernig verðlaunin endur- spegla sinn tíma í hverri listgrein og hvað þau geta í raun sagt mikið um það sem var efst á baugi og það sem féll I smekk hvers tíma. Ásgrímur Sverrisson, sem skrifaði yfirlitsgreinina um verðlaunin í kvikmyndum (15. febr.), bendir á að DV ætti að hugsa sinn gang nú þegar Eddu-verðlaunin hafa verið sett á fót, þau fái margfalt meiri athygli fjöl- miðla og komi svo skömmu á undan að DV-verðlaunin verði eins og eftir- bátur þeirra. Hann stingur upp á að DV-verðlaunin takmarki sig á ein- hvern hátt, til dæmis við frumsköp- un og nýjungar, til að skera sig frá Eddunni. Við hér á blaðinu höfum velt vöng- um yfir þessari hugmynd og ákveðið, að sinni að minnsta kosti, að halda okkar striki. Menningarverðlaun DV eru alveg út af fyrir sig. Þetta eru einu verðlaunin sem veitt eru í svo mörgum listgreinum, það er dagblað sem veitir þau en ekki aðstandendur listgreinanna sjálfir, hver dómnefnd er sjálfstæð og hefur enga aðra vinnureglu en þá að velja til verð- launa það sem skaraði fram úr að mati nefndarmanna, fór að einhverju leyti fram úr eölilegum væntingum, ef svo má að orði komast. Að vera fyrst með fréttimar Gunnar J. Árnason er markvissari í sínum hugmyndum um framhalds- líf verðlaunanna í yfirlitsgreininni um myndlistarverðlaunin (8. feb.) þegar hann hvetur dómnefndir til að hafa auga með því sem er á leið upp en forðast að láta viðurkenninguna verða nokkurs konar heiöursverð- laun. „Það væri oflátungsháttur af mér að þykjast geta gefið þrautreyndum fjölmiðla- berserkjum ráð um hvaða stefnu DV-verð- launin ættu að taka,“ seg- ir Gunnar. „En ef ég ætti að upplýsa um mitt auðmjúka álit þá fyndist mér ekki óeðlilegt að verð- launin leituðust við að endur- spegla þá ímynd og stööu sem blaðið vill skapa sér í hugum landsmanna, að það sé með puttann á púlsinum, að það hlusti eftir hjartslætti menn- ingarlífsins, sé fyrst meö fréttimar, helst áður en þær gerast. Til þess þurfa þau ákveöna áræöni og dirfsku, taka áhættu og vera mátu- lega ósanngjöm. Þau verða að koma á óvart og ganga jafnvel fram hjá augljósustu kandidötunum. ... DV ætti að vita það betur en flestir að það er fátt verra en að vera of seinir með fréttimar. Því er betra að sleppa því að flytja þær en að vera uppvís að því að vera siðastur að segja frá því sem er á allra vitorði.... DV ætti að notfæra sér það að blaðið er í að- stöðu til að geta hunsað listelítuna, akademíska forpokun og fræðilega hlutlægni og ætti að láta það eftir sér öðru hverju." Við þetta er því einu að bæta að fyrst og fremst verða verðlauna- nefndir að vera heiðarlegar og trúar eigin skoðunum. Láta ekki hræra í sér til að skapa sér vinsældir. Það versta af öllu er að þurfa að verja val sem maður trúir ekki sjálfur á; ef hugur fylgir máli þá er enginn vandi að mæta fjandaliði. Koppur uppi á borði Gunnar J. Árnason heldur áfram að segir: „Það má vera að akademíur og eddur eigi sviöið nú um stundir en það er þess virði að reyna að við- halda rödd í menningarlífinu sem er ekki ætlað að tala í öðm orðinu fyrir hagsmunum greinarinnar. Ef DV tekst að viðhalda sinni sérstöðu og afmarka hana og ef fólk finnur inn á fyrir hvað verðlaunin standa þá gætu þau orðið sá öflugi menningar- viðburður sem búist er við af þeim.“ Matthías Johannessen, nýr heiö- ursverðlaunahafi DV, hafði það eftir Steini Steinarr í þakkarræðu sinni að fólkið fyrir vestan setti koppinn sinn á stofuborðið og segði síðan: Þetta er heimslistin! Þar voru Vestfirð- ingar á undan sinni samtíð og það vilja Menn- ingarverðlaun DV líka vera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.