Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 45
H&lgarblcjö JD>"V
mjóiúsdtjéhinjL
^slundi
Um leið og verið er að skrifa
sögu bílsins í hundrað ár af mikl-
um myndarskap er umsjónar-
maður DV-bíla að skrifa sögu
mótorhjólsins i hjáverkum. Áætl-
að er að sú saga komi einnig út á
100 ára afmæli sínu, ári seinna en
100 ára saga bílsins sem kemur út
árið 2004. Þótt margt hafl safnast
af myndum og öðrum heimildum
eru enn margar eyður sem gam-
an væri að fylla upp í, og þá sér-
staklega gamlar ferðasögur, auk
upplýsinga um umboð og
innflutning. Einnig væru ljós-
myndir og aörar heimildir vel
þegnar en hægt er að hafa sam-
bandi við skrásetjarann, Njál
Gunnlaugsson, í síma 898-3223
eða senda póst á netfangið
njall@dv.is. Við byrjum á að
biðja um upplýsingar um fyrsta
mótorhjólamanninn.
Fyrsti mótorhjólamaðurinn
Fyrsti íslenski mótorhjóla-
maðurinn var einnig fyrsti bíl-
stjóri íslandsögunnar, Þorkell Þ.
Clementz vélfræðingur. Hann
flutti inn fyrsta mótorhjólið 20.
júní 1905 og fór í samkeppni við
Thomsen-bílinn. í blaðinu
Reykjavík 15. júlí 1905 stendur:
„Bifhjól eru til sölu. Þau eru svo
fljót í ferðum að farið hefur ver-
ið á þeim á 19 mínútum milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar."
Þorkell sótti um einkaleyfl á
vörumerkinu ELG fyrir mótor-
hjól sem hann ætlaði að selja en
fátt annað er um það vitað og
engin mynd til af gripnum.
Gaman væri því ef einhver lum-
aði nú á upplýsingum um málið
og ekki væri verra ef einhver
eftirlifandi ættingi Þorkels gæti
sagt frá honum. -NG
Þorkell Þ. Clementz vélfræðingur er þekktur sein fyrsti bílstjóri ís-
landsögunnar. Það sem færri vita er að hann var einnig fyrsti mót-
orhjólakappinn en eftir það er hljótt um hann. Þorkell er fvrir
miðri mynd en til vinstri stendur Tómas Jónsson og hægra inegin
eigandi Cudell-bílsins, Ditlev Thomsen kaupmaður.
Jeppar 2003 hjá BSL
Jeppar 2003 er yfirskrift 4x4-
sýningar sem opnuð verður um
næstu helgi hjá B&L. Að sögn
Helgu Guðrúnar Jónasdóttur,
kynningarstjóra B&L, verður
áherslan lögð á breytta jeppa. „Við
verðum með allan tröppuganginn,
alveg frá lítið breyttum á 31“ og
32“ dekkjum að mikið breyttum
38“ og 44“ jeppum. Auk 4x4-lín-
unnar frá Hyimdai, þ.e. Terracan,
Santa Fe og Starex, verður Land
Rover fyrirferðarmikill á sýning-
unni. Þar mun 44“ breyttur Def-
ender, sem er í eigu björgunar-
sveitarinnar Arsæls, eflaust vekja
mesta athygli.
Aðalpunkturinn hjá okkur er sá
að við erum komin með bæði
breitt og spennandi úrval af 4x4-
farartækjum sem spannar allt frá
hinum fjölhæfa Rx4 frá Renault og
upp úr. Jafnframt má geta þess að
fram undan hjá 4x4-klúbbnum er
1000 jeppa ferð og mun fólk geta
skráð sig í ferðina um sýningar-
helgina,“ segir Helga Guðrún.
Sýningin verður opnuð sem fyrr
segir helgina 1. og 2. mars og mun
standa í þrjár vikur. -GG
Buick Roadmaster á bílasýningunni í París. Algjört augnakonfekt!
Bjúkkarah*
ailtaf augnayndi
Hjartsláttur margra þeirra
sem muna eftir blómatíma Bu-
ick-bíla á sjöunda áratugnum
eykst eflaust þegar þeir berja
augum mynd af bleikum Buick
Roadmaster með 300 hestafla vél
sem var á alþjóðlegu bílasýning-
Ný gerð af Toyota Harrier var
kynntur í Tokyo sl. mánudag.
Áætlað er að selja um 2.500 bíla
af þessari tegund á mánuði í
Japan og um 9.000 bíla á banda-
ríska markaðinum. í Bandaríkj-
unum verður bíllinn seldur und-
ir heitinu Toyota Lexus RX-330.
unni í París í byrjun þessa mán-
aðar. Þessi glæsilegi Buick var
einn af 17 bílum á sýningunni
sem tilheyrðu hollenska bjór-
bruggaranum Albert H. Hein-
eken. Bjúkkinn var seldur á
„litlar“ 3,2 milljónir króna. -GG
Hingað kemur þessi Toyota-bíll
í vor, þ.e. RX-300 gerðin, sem er
með minni vél. Verð hefur ekki
verið gefið upp en ætla má að
það liggi á bilinu 4,9 til 5,3 millj-
ónir króna með leðursætum og
viðarklæðningu. -GG
Yfirhönnuður
Renault
verðlaunaður
Yfírhönnuður Renault, Patrick
le Quément, tók nýlega við hinum
eftirsóttu verðlaunum Raymond
Loewy-stofnunarinnar sem veitt
eru fyrir lifsstarf í þágu skapandi
hönnunar. Áður hafa hönnuðir á
borð við Karl Lagerfeld, Peter
Lindbergh, Bruno Sacco og Ingo
Maurer hlotið verðlaunin en
markmið þeirra er að vekja at-
hygli á mikilvægi hönnunar í dag-
legu lífi okkar. Hinn nýi Mégane
II er meðal þeirra bifreiða sem
þykir lýsa stíl le Quéments afar
vel en frumleiki og þor til að fara
óhefbundnar leiðir eru helstu ein-
kenni hans sem hönnuðar. Af öðr-
um verkefnum le Quéments fyrir
Renault má nefna Twingo, Scénic
og Kangoo og frumeintökin Tal-
isman og Ellypse. Hönnunarverð-
laun Loewy-stofnunarinnar eru
talin meðal æðstu viðurkenninga
á sviði hönnunar.
Alfa Romeo
í Genf
Einn hugmyndabílanna sem
verða á Genfar-bílasýningunni
þann 7. til 17. mars 2003 er hinn
mjög klassíski Alfa Romeo. Hér er
á ferðinni einstaklega fallegur og
áhorfanlegur bíll (ekki alltaf það
sama!): Mjúkar og hreinar línur
eins og teknar beint úr draumi
hvers manns um hinn fullkomna
GT (Grand Touring) bíl. Drif að aft-
an og V-8 vél að framan. Sérstak-
lega skemmtilegt „andlit“ á bíln-
um, með ljósin sem augun, grillið
sem nefið og loftgötin sem glotta
eins og væntanlegir eigendur. En
það er væntanlegt að 400 ha. vélin
verði eitthvað niðurtjúnuð eins og
vanalegt er með endanlega út-
færslu á bílum. Þó er varla hægt að
tóna útlitið mikið niður því bíllinn
er ekki eins ýktur og frumhug-
myndir eiga það til með að vera.
Vonandi er það bara tæknilegt at-
riði sem hverfur í framleiðsluút-
gáfu bílsins, líkt og rafræna
demparakerfið eða ljósnemakerfið
sem ákvarðar hversu dökkt glerið
er í þakinu er. -GG
NýrLexus
RX-300 lúngað í maí
<r
• Magellan GPS-tækjum
• GPS-aukahlutum s.s. plast-
pokum, tengjum, loftnetum o.fl.
• Talstöðvum, bíla-, báta- og
handtalstöðvum
• Aukahlutum fyrir talstöðvar
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Þjófavarnarkerfi
• Hljómflutningstæki fyrir bíla,
magnarar á frábæru verði,
mikið úrval hátalara
• GSM-handfrj áls húnaður
• Radarvörum
• Hleðslutækjum
afsl
AUIKARAF
Sendum í póstkröfu
-r