Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 44
48
Helqarfolað IDV LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003
H
Smuki Grand
Vitara V6
Kostir: Betri innrétting, kraftur
Gallar: Tveir höfuðpúöar í aftursœti
Suzuki-bílar hafa nýlega kynnt nýja útgáfu af
Grand Vitara jeppum sínum, með nýrri innrétt-
ingu. Einnig hefur bíllinn fengið nýja og öflugri
V6 vél, ekki það að honum hafi verið afls vant.
Það var því tilvalið að rifja upp kynnin af þess-
um skemmtilega og oft á tíðum vanmetna jeppa.
Breyting til batnaðar
Það er óhætt að segja að breytingin innandyra
sé til batnaðar og í stað gamaldags innréttingar
er nýtískulegur blær yfir öllu. Þar ber fyrst að
telja mælana sjálfa sem eru nú með baklýsingu
líkt og Optitron-mælarnir í Toyota-bílunum. Efn-
isval í innréttingunni er mun betra og silfurlitur
og mattsvart notað í bland. Hljómtækin eru búin
geislaspilara og eru nú stærri um sig og búið er
að bæta við útihitamæli. Meðal meiri búnaðar í
innréttingu eru þrjár 12 volta innstungur, fimm
glasastatíf og miðjustokkur með færanlegri arm-
hvílu. Að öðru leyti er bíllinn hinn sami, pínulít-
ið þröngur en dugar þó vel fjórum fullorðnum. í
aftursæti eru bara tveir höfuðpúðar en hönnuðir
Suzuki hefðu alveg mátt bæta þeim þriðja við
fyrst innréttingin var til endurskoðunar. Þó er
búið að bæta við Isofix-festingum fyrir barnabíl-
stóla sem er kostur. Rafdrifin sóllúga er staðal-
búnaður í Exclusive-útgáfunni sem við höfðum
til reynsluaksturs.
Góð blanda afls og léttleika
í akstri finnst strax að hér er jeppi á ferðinni.
Hann á það til að leggjast nokkuð í beygjurnar og
sérstaklega er hann viðkvæmur fyrir undirstýr-
ingu þegar verið er að pikka bensíngjöfina í
beygjum. Bíllinn er líka í hastara lagi enda stutt
á milli hjóla en þeir sem vilja meiri mýkt fá sér
þá frekar stærri XL-7 sem er ekki mikið dýrari.
Helsti kostur hans i akstri er örugglega V6 vélin
sem er nú þýðari og hljóðlátari þrátt fyrir fleiri
hesta. Honum verður aldrei afls vant og í svona
léttum bil verður blandan mjög skemmtileg, ekki
sist ef bilnum er breytt til aksturs á fjöllum.
Þrátt fyrir mikið afl, yfir 150 hestöfl, er eyðslan
viðunandi eða aðeins 11 lítrar á hundraðið með
sjálfskiptingunni. Sjálfskiptingin sjálf mætti
vera mýkri I skiptingum enda snögg að skipta
þegar gefið er í. Hemlalæsivörn er staðalbúnað-
ur og bremsurnar þokkalegar. -NG
o Bíllinn hefur V6 vél sem er þýð og hljóðlát og
gefur bílnum nægan kraft. 150 hestafla vélin
eyðir um 11 lítrum á hundraðið.
© Gott aðgengi er að farangursrými. Afturhurð
opnast vel.
© Optition-mælar með baklýsingu virka vel fyrir
augu ökumanns.
© Nýtískublær er á mælaborði, hljómtæki stærri
og bætt hefur verið við útihitamæli.
1 SUZUKI GRAND VITARA V6 EXCLUSIVE I
Vél: 2,5 lítra, V6 bensínvél
Rúmtak: 2493 rúmsentímetrar
Ventlar: 24
Þjöppun: 9,5:1
Gírkassi: 4ra þrepa sjálfskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: Sjálfstæð
Fjöðrun aftan: Fimm arma, heill öxull
Bremsur: Loftkældir diskar/skálar, ABS
Dekkjastærð: 235/60 R16
YTRI TÖLUR:
Lengd/breidd/hæð: 4215/1780/1740 mm
Hjólahaf/veghæð: 2480/195 mm.
Beygjuradíus: 10,6 metrar
INNRI TÖLUR:
Farþegar m. ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 4/2
Farangursrými: ? lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 11 lítrar
Eldsneytisgeymir: 66 lítrar
Ábyrgð/ryðvörn: ? ár
Grunnverð: ? kr.
Umboð: Suzuki-bílar hf.
Staðalbúnaður: 2 örygi með 4 hátölurum, hae með mjóbaksstillingu, upphitaðir speglar oq læsingar, rafdrifin sólí gispúðar, útvarp/geislaspilari ðarstillanlegt ökumannssæti rafdrifnar rúður og speglar, I framsæti, fjarstýrðar sam- úga, álfelqur.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: ?(116)/6200
Snúningsvægi/sn.: 213 Nm/3500
Hröðun 0-100 km: ? sek.
Hámarkshraði: 170 km/klst.
i Eigin þyngd: 1405 kg.
Heildarþyngd: 1950 kg.