Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2003, Blaðsíða 26
26
/7 g / C) ct rb l a ö 33V LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2003
Lít á alla daga sem
sunnudaga
„Þegar menn eru ungir finnst þeim að tíminn sé óendanlcgur en liann er í rauninni það eina í lífinu sem er af
skornum skammti. Allt annað geta menn útvegað sér. Menn geta öðlast peninga og efnisleg gæði en þeir geta
ekki keypt sér mjög mikinn tíma í viðbót."
Hannes Hólmsteinn Gissurarson hélt upp á
fimmtugsafmæli sitt í vikunni. Mikiö var um dýrð-
ir enda er Hannes vinmargur maður. Það er sagt
að þegar karlmenn verði fimmtugir geri þeir upp
líf sitt. Á það við um hann?
„Mér er ekki vel við að vera fimmtugur en ég
held að hinn kosturinn væri miklu verri; að verða
ekki fimmtugur. Mér finnst að maður eigi aðallega
að hugsa um framtíðina en ekki dvelja mikið við
fortíðina þó ég eigi margar góðar minningar."
Hefuröu mýkst meö árunum?
„Ég held að það gerist hjá öllum sem eldast að
þeir fara að sjá hlutina í meira jafnvægi. Þetta
heitir víst þroski. En á hitt verður að líta að menn
mega aldrei verða svo þroskaðir að þeir missi eld-
móðinn og hugsjónirnar."
Eigum að styðja vöffin þijú
Hafa stjórnmálaskoöanir þínar ekkert breyst í aö-
alatriöum í gegnum árin?
„Ekki í neinum aðalatriðum. Ef eitthvað er þá
hefur miðjan færst nær mér fremur en ég nær
miðjunni. Gleymdu því ekki að mín doktorsritgerð
fjallaði um að það væri hægt að skapa sátt íhalds-
semi og frjálslyndis, þannig að það færi saman að
vera mjög harðskeyttur frjálshyggjumaður í efna-
hagsmálum, eins og ég er, en vera líka íhaldsmað-
ur, bera virðingu fyrir trúarbrögðunum, fjölskyld-
unni og fastmótuðum gildum sem við höfum feng-
iö í arf frá forfeðrum okkar. Ég held að við þurfum
að styðjast við reynsluvit kynslóðanna en ég sé
enga ástæðu til að slaka á baráttunni fyrir auknu
atvinnufrelsi."
Hefuröu kannski tekiö velferöarríkiö í sátt?
„Ég held nú ekki aö velferð fáist best með ríkis-
afskiptum, nema að takmörkuðu leyti. En það er
sátt um það í okkar þjóðfélagi að veita víðtæka vel-
ferðarþjónustu, til dæmis í heilbrigðs- og skólamál-
um. Við eigum að vinna út frá því. En til að tryggja
velferðina verður að koma til verðmætasköpun.
Mér finnst líka að auka megi valfrelsi fólks í fé-
lagslegum efnum. Við eigum að styðja vöffin þrjú,
velferð, verðmætasköpun og valfrelsi."
Nú er Samfylkingin á mikilli siglingu í skoöana-
könnunum. Helduröu aö hún haldi þessu fylgi í
kosningum?
„Það væri ekkert óeðlilegt þótt Samfylkingin
ynni talsvert á miðað við síðustu kosningar en þá
fékk hún miklu minna en flokkarnir sem stóðu að
henni. Ég yrði ekki hissa ef hún fengi núna rúm 30
prósent. En mér fannst talsmaður hennar, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, ekki fara vel af stað í ræð-
unni sinni í Borgarnesi á dögunum.“
En þér þœtti vont ef Sjálfstœóisflokkurinn yröi
ekki viö stjórn.
„Mér þætti það nú ekki eins vont og þjóðinni
myndi þykja það eftir nokkur ár. Undir forystu
Davíðs Oddssonar hefur ríkissjóður lækkað skuld-
ir sínar miðað við landsframleiðslu úr 34 prósent-
um niður í 19 prósent. Á sama tíma, undir forystu
Ingibjargar Sólrúnar, hefur borgarsjóður ellefu-
faldað skuldir sínar. Davíð boðar skattalækkanir
og hagvöxt en Ingibjörg Sólrún boðar skattahækk-
anir og skuldasöfnun. í stjórnartíð Davíðs hefur
verið fádæma stöðugleiki. Þetta færi held ég for-
görðum ef vinstrimenn komast að.“
Mikilvægt að gæta hófs
Nú er Davíö Oddsson meöal bestu vina þinna.
Hvaö kanntu best viö í fari hans?
„Ég kann best við það hvað hann er mannlegur
og hlýr persónuleiki. Ég hef stundum sagt að hann
sé óvenjulegur maður með venjulegar skoðanir því
sannleikurinn er sá að Davíö er með mjög svipað-
ar skoðanir og þorri íslendinga á flestum málum
en hann setur þær fram af meiri styrk og hann sér
lengra fram á veginn og hefur skarpari sýn en
flestir aðrir menn.“
En hvaö meö það sem andstœöingar hans kalla
ráöríki hans og einrœöistilburöi.
„Það hljómar eins og hörmulegustu öfugmæli
um mann sem hefur minnkað vald sitt jafnstór-
kostlega og hann og flutt ákvarðanir frá ríkinu til
einstaklinganna. Hann kann að vera ráðríkur en
hann sýnir ekki ofríki. Hann býr ekki yfir þeirri
hörku og ófyrirleitni sem mér finnst gæta hjá sum-
um öðrum stjórnmálamönnum. Hann er þingræðis-
sinni og góður í samstarfi, eins og allir hafa sagt
sem starfað hafa með honum í ríkisstjórn. Ég
kannast ekki við þessa mynd sem er verið að draga
upp af honum af sumum andstæöingum hans og ég
held raunar að þar fylgi ekki hugur máli.“
Nú hefur þú i mörg ár veriö mjög gagnrýninn á
Jón Ólafsson. Nú eru hans mál í skattrannsókn.
Hugsaröu þá meö þér: I told you so!
„Nei, alls ekki. Það er mjög ríkt í okkur íslend-
ingum að vilja ekki sparka í liggjandi mann. Ég
held að það eigi best við þarna. Ég óska Jóni Ólafs-
syni, og hans fjölskyldu sérstaklega, alls góðs í líf-
inu. En ég held að hann hefði átt að finna kröftum
sínum annan farveg en íslenska pólitík. Það er
mikilvægt að gæta hófs, hvort sem það er í kaup-
sýslu eða stjórnmálum, vinna innan ramma lag-
anna og taka tillit til annarra en vaða ekki áfram
í blindri hörku."
Aukakílóiii til vandræða
Víkjum aö þér og þínum högum. Hvernig er
venjulegur dagur hjá þér?
„Ég er svo lánsamur aö vera í starfi sem er
skemmtilegt þannig að ég lít á alla daga sem
sunnudaga. Ég vakna snemma, fer á skrifstofuna
mína og spjalla við samkennarana, fæ mér kaffi,
les og skrifa og afgreiði bréf og fer yfir ritgerðir.