Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2003, Síða 7
LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ2003 FRBTTIR 7
Manndráp og líkamstjón vegna gáleysis
OÓMSMÁL: Hæstiréttur hefur
staðfest eins mánaðar skilorðs-
bundið fangelsi yfir manni
vegna manndráps og líkams-
tjóns af gáleysi.Maðurinn hafði
ekið bíl sínum austur Suður-
landsveg á röngum vegar-
helmingi en á þeim vegarkafla
lá vegurinn í mjög krappri
beygju ofarlega í Kömbunum.
Hann var talinn hafa ekið án
nægilegrar aðgæslu miðað við
akstursskilyrði með þeim af-
leiðingum að bíllinn skall fram-
an á jeppa.Við áreksturinn lést
farþegi í framsæti bílsins nær
samstundis. Farþegar í báðum
bílunum urðu fyrir líkamstjóni.
Maðurinn hélt því fram að
rannsókn slyssins hefði verið
ábótavant og ekki væri útilok-
að að orsakir óhappsins væru
að rekja til þess að dekk á bíl
hans hefði sprungið.Af gögn-
um málsins var Ijóst að hjól-
barðinn hefði farið af felgunni í
árekstrinum en Hæstiréttur
taldi að maðurinn hefði engum
stoðum rennt undir þá tilgátu
sína að hjólbarðinn hefði
sprungið. Auk fangelsisrefsing-
arinnar var maðurinn sviptur
ökurétti í eitt ár.
Lögreglunni nóg boðið
HRAÐAKSTUR: Frá 1. janúar á
þessu ári hefur251 ökumaður
verið kærður af lögregiunni á
Sauðárkróki fyrir of hraðan
akstur.Á sama tíma árið 2002
voru 189 ökumenn kærðirfyrir
sama brot. í síðasta mánuði
voru 66 ökumenn kærðir af lög-
reglu fyrir of hraðan akstur og
það sem af er þessum mánuði
hafa 56 ökumenn verið kaerðir,
þar af 28 um síðustu helgi.
Fram kemur í dagbók lögregl-
unnar að henni þyki nóg um.
Ekki hefur verið um neitt um-
ferðarátak lögreglunnar að
ræða heldur hafa menn verið
teknir við vanabundið eftirlit,
bæði innan þéttbýlis og utan.
Einn af þessum ökuþórum var
t.d.tekinn á 100 km hraða þar
sem hámarkshraði er 50 km.
boltanum því að auk Beckhams
hefur hún umboð fyrir Michael
Owen, Steven Gerrard, Alan Shear-
er og David Seaman.
Tveir lykilmenn
Á bak við Beckham sjálfan eru
tveir lykilmenn innan SFX. Jon
Holmes er yfirmaður Evrópudeild-
ar SFX og var hann einn fyrsti um-
boðsmaður íþróttamanna á
Englandi. Hann hefur haldið utan
um alla stærstu auglýsingasamn-
inga Beckhams og að hans mati
felast helstu fjármunirnir á bak við
íþróttamennina í því frekar en
kaupum þeirra og sölu mannanna
sjálfra milli félaga.
Tony Stephens er markaðsstjóri
Evrópudeildar SFX og er aðal-
samningamaður Beckhams þegar
kemur að samningum varðandi
fótboltann sjálfan. Sjaldan heyrist
til hans í fjölmiðlum því að hann
vill helst vinna bak við tjöldin.
Telja fróðir menn að hann hafi sett
sig f samband við Real Madrid
strax í apríl. Stephens hefur þó
einnig komið að auglýsingamálum
Beckhams og tryggt honum tekjur
sem samsvara rúmlega tveimur
milljörðum króna á ári.
Allt að 15 starfsmenn SFX sjá um
málefni sem tengjast Beckham, þó
svo almannatengslamál séu í
höndum annars fyrirtækis sem
kallast Outside Organization. Það
Idýrustu fótboltamenn sögunnar
Þrátt fyrir að félagaskipti Davids Beckham hafi vakið gríðarlega athygli er at-
hyglisvert að sjá að hann kemst aðeins í 16. sæti yfir dýrustu knattspyrnumenn
i heimi. Útskýringin á því hefur verið að leikmannamarkaðurinn í fótbolta-
heiminum hafi verið (lægð undanfarin misseri.
Dýrustu fótboltamennirnir:
1. Zinedine Zidane - 5,8 milljarðar króna
Juventus-Real Madrid (júlí 2001)
2. Luis Figo - 4,5 milljarðar
Barcelona-Real Madrid (júlí 2000)
3. Hernan Crespo - 4,2 milljarðar
Parma-Lazio (júli 2000)
4. Gianluigi Buffon - 4 milljarðar
Parma-Juventus (júlí 2001)
5. Christian Vieri - 3,9 milljarðar
Lazio-lnter (júní 1999)
6. Rio Ferdinand - 3,7 milljarðar
Leeds-Man. Utd (júll 2002)
7. Gaizka Mendieta - 3,5 milljarðar
Valencia-Lazio (júlí 2001)
8. Ronaldo - 3,5 milljarðar
Inter Milan-Real Madrid (ágúst 2002)
9. Juan Veron - 3,4 milljarðar
Lazio-Man. Utd (júlí 2002)
10. Rui Costa - 3,4 milijarðar
Fiorentina-AC Milan (júli 2001)
16. David Beckham - 3 milljarðar
Man. Utd-Real Madrid (júní 2003)
fýrirtæki höndlar einnig með mál- dagblöð og tímarit Beckham talar
efni eiginkonu Beckhams, Victor- við, hversu oft og hvenær.
iu. Yfirmaður þess ræður hvaða kja@dv.is
A INNKAUPALISTA FERGUSONS
Fyrst búið er að selja David Beckham til Real Madrid hefur Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Manchester United, nokkurt svigrúm til að demba sér af
fullum krafti (leikmannamarkaðinn - bæði til að finna arftaka Beckhams og
einnig til að styrkja liðið á öðrum sviðum. Eftirtaldir leikmenn hafa verið
sterklega orðaðir við United siðustu daga:
Ronaldinho
Staða: Sóknarmaður
Félag: Paris Saint-Germain
Aldur:23
Áætlað verð: 1.200 milljónir króna
Harry Keweli
Staða:Miðvallarleikmaður/sóknarmaður
Félag: Leeds
Aldur:24
Áætlað verð: 730 milljónir króna
Patrick Kluivert
Staða: Sóknarmaður
Félag:Barcelona
Aldur: 26
Áætlað verð: 1.200 milljónir króna
Damien Duff
Staða: Miðvallarleikmaður
Félag: Blackburn
Aldur: 24
Áætlað verð: 1.800 milljónir króna
Paul Robinson
Staða:Markvörður '
Félag: Leeds
Aldur: 23
Áætlað verð: 360 milljónir króna
Robinson
15
26
19
29
03
2
sfeafflöi
EVOFaiDUR
LOLLaÐU a LOLLO.IS
NO seturðu sett lukkutðlurnar þfnar á luttðmiða á Netinu,
hvurt sem hfi velur eina rðð eða flelrl, eða bara sjálfval.
láttu vaða - oetta er kannskl þínn dasur!
secou
iÐ miLuönum