Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 28.JÚNI2003 DV HELGARBLAÐ 25
DV-myndir Pjetur
Freysteinn Gíslason, kokkur á
Sólon, leggur hér síðustu
hönd á kjúklingaspjót á
svepparisotto.
Risottoið er sett á pönnu
smástund meðrjóma.Gaman
er að elda risotto og drekka
gott vín með.
Salat með kjúklingastrimlum
er einn af þessum léttu og
Ijúffengu sumarréttum.
Kjúklingaréttir eru mjög
vinsælir á Sólon en þar er
einnig lögð áhersla á fiskrétti.
Carmen frá Chile og Pasqua
frá íta I í u
Er val Heiðars Birnirs Kristjánssonar hjá RJC
fASQi/A Vmtm * CANTJNfc SPA
VFRONA - JTAUA
3,000 Mie 12%vol
Nú um hásumarið er fólk frekar á
léttum nótum í víni og mat, ekki
síst þegar veðrið leikur við mann-
skapinn. Matreiðslan hér til hliðar
er einmitt á afar léttum nótum og
það var Heiðari Birnir Kristjánssyni
hjá Rolf Johansen & Co. einkar ljúft
að finna til ljúffeng vín með þess-
um krásum. Hann leitaði fanga í
Chile og á Ítalíu, hjá gamalgrónum
vfnfyrirtækjum.
Carmen er eitt af elstu vínfyrir-
tækjum Chile, stofnað árið 1850. Á
áttunda áratug síðustu aldar var
farið að flytja þessi vín á alþjóða-
markað en fram að því höfðu þau
eingöngu verið fáanleg í Chile. Car-
men var einmitt eitt af fyrstu vínum
Chile sem fóru um heiminn þegar
„nýjaheimsbyltingin" varð í vín-
heiminum. Víngerðin er við rætur
Andesfjalla, á einum fegursta stað
landsins. Þar hafa ný tækni og
gamlar hefðir gert Vina Carmen að
einum framsæknasta vínframleið-
anda Chile. Carmen Chardonnay
einkennist af ferskum ávexti og
góðri fyllingu. Eikin er undirliggj-
andi en ekki of áberandi.
Þetta vín tónar vel við fylling-
una í kjúklingabringunum,
sérstaklega skinkuna og
tómatana. Carmen
Chardonnay kostar 1090
krónur í ÁTVR.
fslendingar þekkja
Pasqua-vínin vel því til
fjölda ára hafa Merlot og
Pinot Grigio í, 1,5 lítra
flöskum verið ein af
mest seldu vínunum hjá
ÁTVR. Þetta fyrirtæki
framleiðir vín víða á ítal-
íu en einna helst norðar-
lega eins og í Soave og
Valpolicella. Pasqua -
Vigneti e Cantine er rót-
gróið fjölskyldufyrirtæki,
stofnað árið 1925, og er
nú stjórnað af sonum
upphafsmannana.
Pasqua Chardonnay (3 1
kassavín) er ferskt og
gott vín með mjúkum
ávexti og passar vel við
salatið og dressinguna.
Pasqua Chardonnay fæst
í ÁTVR og kostar 3 1 kassi 3.160
krónur.
Risotto er norðurítalskur matur
sem bæði er gaman að elda og
ekki síður að njóta, sérstaklega
með góðu víni. Þar kemur Al-
legrini Valpolicella Classico inn í
myndina. Allegrini Valpolicella
er frá einum besta og virtasta
vínframleiðandanum í
Veneto á Ítalíu. Vínin frá Al-
legrini hafa fengið frábæra
dóma undanfarin ár og þótt
með þeim bestu sem koma
frá Veneto-héraðinu.
Valpolicella frá Allegrini er
úr þremur þrúgum, Corvina,
Rondinella og Molinara, allt
klassískum ftölskum þrúg-
um. Allegrini Valpolicella er
ávaxtaríkt og ferskt, með
góðri fyllingu, vel uppbyggt
með góðu jafhvægi á milli
ávaxtar og sýru. Betra er að
drekka það örlítið kælt, við
14-16 gráður. Allegrini
Valpolicella fæst í ÁTVR og
kostar flaskan 1350 krónur.