Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Blaðsíða 38
42 DV HEL6ARBLA0 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ2003 Sakamál Hvað gerðist: Kona var myrt Hvar: Windsor í Vermont-fylki í Bandaríkjunum Hvenær: Nóvember 1926 Krókajurtin kom upp um hann Það var mánudagsmorgun í borginni Windsor í Vermont-fylki í Ameríku í nóv- ember árið 1926. Frank Cone, forstjóri vélasölu í borginni, var pirraður yfir því að ritari hans var ekki mætt til venju- bundins morgunverðar þeirra. Stundvísi Ceciliu Gullivan var rómuð en hún hafði árum saman sinnt vinnu sinni af alúð eft- ir að svikull elskhugi hennar strauk úr borginni og giftist í Kaliforníu. Frank Cone las í blaði dagsins um skugga- iega atburði sem gerst höfðu í bænum um nóttina þar sem ráðist hafði verið á hjúkrun- arkonu aldraðrar konu og talið að innbrots- þjófur hefði verið á ferð. Frank ákvað að fara heim til fröken Gulliv- an og athuga hvað ylli seinkun hennar. Hann kom að ólæstum dyrum enda kvaðst fröken- in aldrei læsa dyrum sínum né gluggum þar sem hún ætti enga óvini. Barin til dauðs Fröken Gullivan reyndist liggja látin í rúmi sínu og mátti hverjum manni ljóst vera að hún hafði verið barin til dauðs. Frank hringdi þegar í stað á lækni og lögreglu sem komu á staðinn. Lögreglumennirnir sem komu á vettvang komu beint frá því að rannsaka hús- ið þar sem ráðist hafði verið að hjúkrunar- konunni og sáu fljótlega ummerki sem bentu til þess að sami maðurinn hefði verið á ferð á báðum stöðum. Sérstaklega vöktu síðan at- hygli Degnans lögregluforingja fjögur blóm krókajurtar sem loddu við teppið sem hafði verið fleygt yfir limlest lík fröken Gullivan. Engin merki sáust um átök sem benti til þess að ráðist hefði verið að henni sofandi. Það kom í ljós að árásarmaðurinn hafði fengið kolaryk á hendurnar í kjallaraglugga fröken Gullivan og kolarykið fannst einnig á hinum staðnum. Við nánari rannsókn fannst einnig blóm krókajurtar á heimili hjúkrunarkon- unnar svo ljóst var að hér var sami maður á ferð. Það voru blóm krókajurtar- innar sem loða við allt sem snertir þau sem komu lögregl- unni á sporið í sérstæðu saka- máli í Vermont árið 1926. Á seinni stigum blandaðist Clarence Darrow, frægasti lögfræðingur síns tíma, inn í málið. Hjúkrunarkonan sem ráðist var á sagðist hafa fundið megna áfengislykt af manninum og reynt var að hafa uppi á honum í hópi bar- gesta kvöldið fyrir árásina en slík leit bar eng- an árangur. Loksins rákust lögreglumenn á unga konu sem hafði verið áreitt af drukkn- um manni þetta kvöld. Þegar hún var leidd fyrir hóp manna sem vitað var að höfðu setið að drykkju þetta kvöld benti hún strax á John C. Winters sem var starfsmaður sama fyrir- tækis og fröken Gullivan en var einnig dæmdur sakamaður fyrir að hafa ráðist á ungar stúlkur. Játaði ekkert Winters bjó í norðurhluta Windsor með konu sinni og barni en hún bar annað barn undir belti og viðurkenndi fúslega að hafa setið að drykkju þetta laugardagskvöld en kvaðst ekkert muna sakir ölvunar. Hann þótti illur viðskiptis með víni, orðljótur og hafði oft í frammi ógnandi framkomu. Einn sam- starfsmanna hans bar við yfirheyrslur að Winters hefði sagt að sér litist vel á fröken Gullivan. Þegar lögreglumenn gengu leiðina sem Iá frá heimili Winters og yfir að morðstaðnum þurftu þeir að vaða gegnum breiður af króka- jurt og urðu allir meira og minna ataðir í blómunum sem loða við allt sem snertir þau. Sönnunargögnin hlóðust upp því sannað þótti að jurtaleifar sem fundust á buxum Winters væru leifar af krókajurt en enn skorti játningu. Enn fremur fannst kolaryk á buxum hans eins og á báðum árásarstöðunum. SAGÐIST EKKERT MUNA: John Winters sagðist ekkert muna eftir laugardagskvöldinu sem hann réðst á eina konu með hótunum og banaði annarri. SVAF V® OPtÐ: Cecilia Gullivan sagðist ekki eiga neina óvini og svaf alltaf við ólæstar dyr. Hún var myrt í svefni af manni sem réðst inn til hennar. Þegar hjúkrunarkonan sem ráðist var á var látin sjá Winters á staðnum þar sem árásin var gerð bar hún kennsl á hann sem árás- armanninn. Ákæruvaldið setti samt af stað réttarhöld sem vöktu miklar hneykslan því höfuð fröken Gullivan var sýnt í réttinum sem sönnunar- gagn. Þrátt fyrir að játningu skorti var Winters dæmdur til dauða á grundvelli krókajurtarinnar og fleiri sönnunargagna. Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn Mánuði síðar tók málið á sig óvænta mynd FRÆGASTUR ALLRA: Clarence Darrow, frægasti lögfræðingur Bandaríkjanna á þessum tíma, gaf sig óvænt fram og vildi verja Winters ókeypis til að endurgreiða skuld sem hann taldi sig standa í við Winters-fjölskylduna. þegar Clarence Darrow, frægasti glæpalög- fræðingur þess tíma, kvaðst myndu áfrýja málinu og verja Winters. Þetta átti sér þær orsakir að 20 árum áður hafði sonur Darrows í ógáti banað meðlimi úr fjölskyldu Winters og þá svarið að endur- gjalda fjölskyldunni með því að veita henni ókeypis lögfræðiþjónustu. Winters var aðeins sjö ára þegar loforðið var gefið og hafði ekki rænu á að setja sig í KONAN VAR GRUNLAUS: Alice Winters var barns- hafandi að öðru barni þegar maður hennar var handtekinn fyrir morð. samband við Darrow sem las um málið í blöðunum og gaf sig fram. Þegar verið var að undirbúa réttarhöldin áttaði ákæruvaldið sig á því að mikið skorti á að málatilbúnaður þess væri traustur. Þess vegna var tekin sú ákvörðun að bjóða Winters að semja um málið. Ef hann játaði þá yrði málið skilgreint sem annarrar gráðu morð og hann fengi lífstíðarfangelsi í stað líf- látsdóms. Mönnum til nokkurrar furðu gekk Winters að þessu og því varð ekkert úr áfrýj- un. Það má samt halda því fram að með þessu hafi Clarence Darrow endurgoldið skuld sína við Winters-fjölskylduna með því að bjarga einu mannslífl í stað þess sem sonur hans tók í ógáti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.