Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Síða 57
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ2003 TILVERA 61
Sýnd kl.4,6,8 og 10.
ANGER MANAGEMENT:
Sýnd kl.6.
CONFIDENCE:
Sýnd kl.8 OG 10.
TÖFRABÚÐINGURINN:
Sýnd kl.4.
THEY:
Sýnd kl. 4,6,8 og 10. B.i. 16 ára.
IDENTITY:
Sýnd kl. 4,6,8 og 10. B.i. 16 ára.
HAOKAUP
_ AND
DUMSIREift
WHEN HARRY MET LLOYD '
Ef þú hélst að þú vœrlr
halmskur, þá hefurðu akkl hltt
Harry og Lloyd. Þalr aru komnlr
aftur, helmskarl an nokkru slnnl
fyrr I gaggjaðrl grlnmynd.
kl. 4,6,8 og 10. B. i. 14 ára.
THE LOVE
Fyndnasta myndin
sam þú sérð i érlnul
Losaðu þig við reiðina og hlæðu
þig máttlausan!
Sýnd kl.5.30,8 og 10.30.
Tölum við bílinn
Eitt sinn var sagt að ef maður tal-
aði við blómin myndu þau vaxa
hraðar og verða stærri og sterkari en
hin sem ekki var spjallað við. Nú
vilja fleiri fyrirbæri á þessar jörð
heija við okkur samræður, ef marka
má fréttir sem birtar voru f vikunni,
því búist er við því að talandi bíll
muni koma á markaðinn á næsta
ári. Þetta eru að sjálfsögðu gríðar-
lega mikilvægar framfarir. Maður
sér fyrir sér þær uppbyggilegu sam-
ræður sem eiga eftir að eiga sér
j stað.
Bíllinn: „... Birgitta vinnur pott-
þétt Evróvision í núna, ég meina,
það er ekki hægt að ganga fram hjá
henni í fjórða sk... Heyrðu! Assgoti
félagi, heldurðu að það hafi ekki
bara sprungið á mér! Þú hefðir bet-
ur hlustað á mig og látið gera við
varadekkið..."
Jafnframt vakti það athygli mína
að ökumenn munu geta sent tölvu-
póst með aðstoð bílsins. Þetta kem-
ur sér sjálfsagt vel fyrir einhverja,
eins og t.d. leigubílstjóra sem þurfa
að eyðá miklum tfma í bílnum án
þess að keyra hann, en afskaplega
hljómar þetta nú eins og verið sé að
troða inn tækni sem er algjör óþarfi.
Minnir mann eiginlega á allt æðið í
kringum farsímana sem voru af
hinni og þessari kynslóðinni og áttu
að geta sent tölvupóst eins og hver
önnur tölva. Aldrei hef ég samt
fengið tölvupóst sem sendur var úr
síma - jú reyndar einu sinni frá fé-
laga mínum sem vinnur hjá síma-
fyrirtæki og var að sýna hvernig
þetta virkaði. Hann sendi mér fjög-
urra stafa dónalegt orð sem tók
nokkrar mínútur að pikka inn - en
skildist svo ekki af því að íslenski
stafurinn sem er næstaftastur
komst ekki til skila.
STJÖRNUGJÖF DV
Nói albínói ★ ★★Á
Dark Blue ★ ★★
Respiro ★ ★★
Identity ★★★
X-Men 2 ★★★
They ★ ★Á
Agent Cody Banks ★ ★Á
Johnny English ★★i
Tricky Life ★★i
Anger Management ★ ★
2 Fast 2 Furious ★ ★
Kangaroo Jack ★ ★
Matrix Reloaded ★ ★
Bringing Down the House ★ ★
How to Lose a Guy in 10 Days ★ ★
Old School ★
Dumb and Dumberer ★
Al Pacino:
Stórleikari með
einstakan feril
A1 Pacino leikur aðalhlutverkið í
People I Know sem frumsýnd var í
gær. Pacino er einn þeirra sárafáu
leikara sem fylla hvíta tjaldið lífi
með viðveru sinni einni. Ferill hans
hefur verið nær samfelld sigur-
ganga og hefur hann slík áhrif að
þegar andlit hans sést á hvíta tjald-
inu fær maður alltaf á tilfinninguna
að eitthvað merkilegt sé að gerast.
Fornafn Pacinos er með réttu Al-
fredo og er hann af sikileyskum
ættum. Hann fæddist í New York
(Suður-Bronx) árið 1940 og var þar
alinn upp af móður sinni en faðir
hans yflrgaf þau er Pacino var
tveggja ára gamall. Þegar hann fór
að fullorðnast sýndi hann hefð-
bundnu námi lítinn álruga en leik-
list þeim mun meiri. Slíkt nám var
þó dýrt og varð Pacino taka að sér
ýmis störf (vann meðal annars sem
sendill, dyra- og húsvörður) sam-
fara því að leika á sviði annað slag-
ið. Árið 1966 urðu nokkur tímamót
en þá komst hann að í stúdíói Lees
Strasbergs (sem kenndi reyndar
einnig öðrum frægum New York-
leikara, Robert De Niro) og hófst þá
sviðsferill hans af krafti með til-
heyrandi verðlaunaafhendingum.
Árið 1969 lék hann í sinni fyrstu
kvikmynd, Me Natalie. Hlutverkið
var lítið en í næstu mynd á eftir,
The Panic in Needle Park (1971),
vakti hann nægilega athygli til að
veljast í hlutverk Michaels
Corleones í kvikmyndinni The
Godfather (1972). Hlaut hann fyrir
það hlutverk fyrstu óskarsverð-
launatilnefningu sína og var nafn
hans meðal tilnefndra næstu þrjú
árin (Serpico 1973, The Godfather
II 1974, Dog Day Afternoon 1975).
Það var svo ekki fyrr en árið 1992 að
hann fékk loks verðlaunin fyrir
Scent of a Woman. Pacino yfirgaf
þó aldrei leiksviðið og segja má að
sviðið og tjaldið renni saman í
fyrstu myndinni sem hann leik-
stýrði, Looking for Richard (1996).
Annað leikstjórnarverk Pacinos var
Chinese Coffee, leikhúskvikmynd
sem lítið hefur farið fyrir en var
fyrst sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Toronto. Næsta kvÚanynd Pacinos
er Gigli þar sem mótleikarar hans
eru kærustuparið Jennifer Lopez og
Ben Affleck.
RECRUIT: Al Pacino í einni af nýjustu
kvikmyndum sínum.The Recruit.
Kvikmyndir sem A1 Pacino hefur leikið í:
Me, Natalie, 1969
Panic in Needle Park, 1971
The Godfather, 1972
Scarecrow, 1973
Serpico, 1973
The Godfather, Part II, 1974
Dog Day Aftemoon, 1975
Bobby Deerfield, 1977
._ And Justice for All, 1979
Cruising, 1980
Author, Author, 1982
Scarface, 1983
Revolution, 1985
The SeaofLove, 1989
DickTracy, 1990
The Godfather, Part III, 1990
Frankie and Johnnie, 1991
Glengany Glen Rose, 1992
Scent of a Woman, 1992
Carlito's Way, 1993
Heat, 1995
CityHall, 1996
Looking for Richard, 1996
Donnie Brasco, 1997
The Devil's Advocate, 1997
The Insider, 1999
Any Given Sunday, 1999
Chinese Coffee, 2000
Insomnia, 2002
Simone, 2002
People 1 Know, 2002
The Recruit, 2003
BONUSVIDEO
Leigan í þmu hverfi
limTY^UIIIIT
I
!
í
I