Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Blaðsíða 12
72 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST2003
Útlönd
Heimurirm i hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson
Netfang: gube@dv.is
Sími: 550 5829
Á 12. þúsund létust úr hita
HITABYLGJAN: Hitabylgjan í
Frakklandi fyrstu tvær vikurnar
í ágúst varð 11.435 manns að
aldurtila, að því er bráða-
birgðatölur, sem franska heil-
brigðisráðuneytið sendi frá sér
í gær, sýna. Þegar verst lét fór
hitinn víða yffr 40 gráður.
Jean-Frart?ois Mattei, heil-
brigðisráðherra Frakklands,
sagði að hitabylgjan hefði
komið verst niður á þeim sem
veikburðastir eru og að hún
hefði snert alla landsmenn.
Sjúkrahúslæknar í Frakklandi
segja að áhrifa hitabylgjunnar
gæti enn og að fólk sé enn að
deýja af hennar völdum.
Dauðsföll af völdum hitabylgj-
unnar voru mun fleiri í Frakk-
landi en nágrannalöndunum
en engin ein skýring er þar á.
í hórukassann
ÞÝSKALAND: Þýskt kvennaknatt-
spyrnulið í Halle mun frá og með
næstu viku auglýsa hóruhús í borg-
inni á búningum sínum. Eigendur
vændishússins, fasteignafélag í Halle,
féllust á að borga fyrir nýjan búning
stúiknanna sem á er prentað að heim-
sókn í hórukassann sé alltaf ómaksins
virði. Að sögn þjálfara stúlknanna
finnst þeim ekkert að því að auglýsa
ágæti pútnahússins.
Áfall fyrir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands:
Campbell segir af sér
Helsti ráðgjafi Tonys Blairs,
forsætisráðherra Bretlands,
hinn baráttuglaði Alastair
Campbell fjölmiðlafulltrúi,
sagði af sér í gær, mitt í verstu
kreppu 6 ára valdaferils Blairs.
Campbeli, sem margir kölluðu
hinn raunverulega aðstoðarforsæt-
isráðherra, hafði látið í ljósi löngun
sína til að hætta en óhætt er að
segja að ákvörðun hans nú kom
fréttaskýrendum í opna skjöldu.
Fáir áttu von á því að hinn 46 ára
gamli Campbell myndi yfirgefa
skútuna á meðan mótbyr hús-
bónda hans er jafnmikill og raun
ber vitni vegna Íraksstríðsins og
eftirmála þess, einkum fullyrðinga
um að stjórnvöld hafi ýkt mjög
BÚINN AÐ FÁ NÓG: Alastair Campbell,
fjölmiðlafulltrúiTonys Blairs á Bretlandi,
er búinn að fá nóg af öllum látunum og
ætlar að verja meiri tíma með fjölskyld-
unni, konu og börnum.
hættuna af meintum gjöreyðingar-
vopnum íraka til að réttlæta stríð
gegn þeim. Fullyrt hefur verið að
Campbell hafi átt stóran þátt í því,
þótt hann neiti öllum ásökunum.
Campbell sagði að fjölskylda
hans hefði þurft að gjalda dýru
verði fyrir þær miklu annir sem
hafa fylgt starfi hans fyrir Tony
Blair og að nú væri kominn tími til
að snúa sér að öðru. Sambýliskona
Campbells, Fiona Miilar, hefur
starfað fýrir Cherie Blair en ætlar að
hætta um leið.
„Við eigum þrjú yndisleg börn og
ég hlakka til að verja meiri tíma
með þeim,“ sagði Campbeli. Hann
var blaðamaður áður en hann hóf
störf fýrir Verkamannaflokkinn og
Blair og ætlar meðal annars að
snúa sér aftur að blaðamennsku.
ÍHEFNDARHUG: Reiðir sítarhúslímar í Irak hétu því að hefna dauða erkiklerksins Mohammeds Baqr al-Hakims sem fórst (
sprengjutilræði í hinni helgu borg, Najaf, i gær ásamt túgum annárra.
Bílsprengja varð að minnsta
kosti sjötíu og fimm manns að
bana, þar á meðal frammámanni
úr röðum sítaklerka, í hinni
helgu borg, Najaf í írak, í gær.
Sprengjan sprakk þegar fólk
streymdi út úr imam Ali moskunni,
einhverjum mesta helgidómi
sítamúslfma. Tilræðið er hið blóðug-
asta frá því stjórn Saddams Husseins
var steypt af stóli í apríl.
Nokkrir stuðningsmenn erkiklerks-
ins Mohammeds Baqr al-Hakims,
sem týndi Iífi f sprengingunni, sögðu
að þama hefðu áhangendur Saddams
verið að verki.
Stjórnmálaskýrendur bentu þó á að
allt frá lokum stríðsins hefðu inn-
byrðis átök sítamúslíma verið nær
daglegt brauð í Najaf.
Á leið burt
Hinn 63 á gamli Hakim var í margra
augum helsti leiðtogi síta í írak og
samvinna hans við bandaríska her-
námsliðið þótti skipta miklu máli fýr-
ir tilraunir Bandaríkjamanna til að
koma á lögum og reglu í Irak og inn-
leiða þar lýðræðislega stjórnarhætti.
„Það eru að minnsta kosti 75 látnir
og sú tala kynni að hækka upp í átta-
tíu. Særðir eru 142,“ sagði Safaa al-A-
needi, forstöðumaður sjúkrahúsSins í
Najaf, við fréttamann Reuters.
Þrjú bílflök' voru úti á götú við
bænahúsið og haft var eftir nokkmm
sjónarvottum að sprengingarnar
hefðu verið fleiri en ein. Hakim var að
aka í burtu þegar sprenging eyðilagði
bíl hans.
Talsmaður bandaríska hersins
sagði að enginn hermaður hefði verið
þama nærri þar sem bænahúsið væri
helgur staður.
Róstusamt hefur verið í Najaf frá
lokum stríðsins. Hafa vopnaðir menn
margsinnis beint spjótum sínum að
trúarleiðtogum sítamúslíma sem
vom undirokaðir á valdatíma Sadd-
ams þótt þeir séu í meirihluta meðal
landsmanna.
Valdabarátta í Najaf
Síðastliðinn sunnudag særðist
frændi Hakims í sprengingu sem varð
þremur mönnum að bana. Frændinn
tengist samtökum sem berjast fyrir ís-
lamskri byltingu í írak, rétt eins og
Hakim sjálfur. Skuldinni vegna
þeirrar sprengingar var skellt á annan
sítaklerk sem er andvígur veru er-
lendra hermanna.
Valdabaráttan milli síta í Najaf er
talin geta skipt sköpum fyrir framtíð
íraks. Stjórnvöldum í Washington er
mjög í mun að letja þá sem styðja
klerkaveldi í ætt við það sem er í ná-
grannaríkinu Iran. Margir írösku
sítaklerkanna dvöldu einmitt í útlegð
þar á valdatíma Saddams.
Enn var ráðist á, bándarísk.a her-
' inenn í Írak'í gær og félleinn,
t m
■
'
iiiiil,
I Kaupmannahöfn þarftu að:
Fá þér smorrebrod og bjór hjá Idu
Davidsen, Store Kotigensgade 70. Opið
til kl. 17:00 virka daga, lokað um helgar.
bar upplifir þú sanna danska stemningu.
á mann í tvíbýlí í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting
á Hótel Admiral, morgunverður, flugvallarskattar og
þjónustugjöld. Brottfarir 8. nóv., 16. jan. og 20. mars.
AT'
i. Tr '*•»
ICELANDAIR
Tugir fórust í hinni helgu borg, Najaf:
Blóðbað'
bænahúsi