Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Side 19
LAUOARDAGUR 30. ÁGÚST2003 DV HELGARBLAÐ 19 VÍKINGURINN: Víkingur Heiðar Ólafs- son er á öðru ári í Juilliard-tónlistar- háskólanum í New York. Hann þykir einn efnilegasti píanisti sem hefur kom- ið fram á (slandi um langa hríð. Hann fer utan á mánudag en kemur heim fljótlega aftur til að leika með Sinfóníu- hljómsveit (slands í annað sinn en Vík- ingurer 19 ára. Nokkuð svalurá því Víkingur Heiðar Ólafsson er 19 ára pí- anóleikari sem er á öðru ári við Juilliard- tónlistarháskólann í New York. DV ræddi við hann um pressuna, frægðina og geggjaða tónlistarmenn. Víkingur Heiðar Ólafsson er 19 ára og er af mörgum talinn einn efnilegasti píanóleikari sem hefur komið fram á íslandi. Hann er á förum til New York til að nema við Juilliard- tónlistarháskólann þar sem hann er á öðru ári, en hann fékk inngöngu í skólann og styrk eftir að hafa sigrað í píanókeppni hér heima fyrir tveimur árum. Víkingur hefur þrátt fyrir ungan aldur leik- ið einleik með Sinfóníuhljómsveit íslands á útskriftartónleikum sínum. Hann fer utan til Juilliard á mánudaginn en kemur aftur eftir rúmar tvær vikur til að leika með Sinfóníu- hljómsveitinni 20. september. Það má segja að Víkingur hafi snemma hneigst til píanóleiks en þegar móðir hans, Svana VQcingsdóttir pfanókennari, gekk með hann var hún einmitt að æfa lokaverkefni sitt í píanóleik við tónlistarháskólann í Berlín. Þannig er líklegt að Víkingur hafi á síðustu mánuðum meðgöngunnar iðulega verið í seilingarfjarlægð frá nótnaborðinu og óist upp við nær stöðugan píanóleik. Helgarblað DV drakk kaffí með þessum unga snillingi og spurði hvemig hann kynni við sig í Juilliard, frægasta tónlistarskóla heimsins? „Það er frábært. Skólinn er til húsa í Lincoln Center, sem er í hjarta borgarinnar, með Metropolitan-ópemna handan götunn- ar og Carnegie Hall rétt hjá. Þarna er gott að stúdera listir og margt að sjá og heyra ef mað- ur hefur augun og eymn opin,“ segir Víking- ur. Óheyrilega dýrt - Er þetta elcki óheyrilega dýrt? „Þetta er mjög dýrt. Þetta er einkarekið nám. Þessi skóli á langa hefð og sögu og hef- ur þann stimpil á sér að þótt mér hefði boðist hagstæðara nám í Evrópu þá vildi ég ekki hafna þessu tækifæri. Ég var svo heppinn að fá styrk frá skólan- um síðastliðið vor og þótt fjölmiðlar hafi tal- að um hann eins og fullan styrk þá er hann fyrir um það bil þriðjungi kostnaðar. En ég var líka svo heppinn að ýmsir aðilar hér heima vom til í að styrkja mig en það getur samt verið flókið að ná endum saman. Þarna em margir nemendur sem eru með millj- arðamæringa á bak við sig sem styrktaraðila en slíkt er óþekkt hér.“ Víkingur sigraði í píanókeppni vorið 2000, eða þegar hann útskrifaðist úr Tónlistarskóla Reykjavikur, og lék með Sinfóníuhljómsveit 'íslands á útskriftartónleikunum. Veturinn eftir tók hann sér frí frá píanónámi þótt hann ætti kost á plássi í Juilliard, en lagði áherslu á að ljúka menntaskólanámi. „Ég hefði getað verið á námskeiðum í sum- ar líka en ákvað að vera heima og undirbúa mig fyrir veturinn og vera með fjölskyld- unni.“ - Það em um það 800 nemendur í JuiUiard og stærstur hluti þeirra tónlistarnemendur, en þar em líka kenndar aðrar listgreinar, eins og leiklist, ballett og Ueira. Þarna em nem- endur frá öllum heimshornum og fjöldi um- sækjenda gríðarlegur og árið sem Víkingur komst inn vom 13 eða 14 nemendur telcnir inn í sams konar nám. Fólk spyr mig stundum hreint út hvort ég sé heill á geðs- munum og horfir á mann eins og klikkaðan vísindamann eða eitthvað. „Eftir að jámtjaldið féll hefur fjölgað mjög nemendum frá Austur-Evrópu sem búa að mjög sterkri tónlistarhefð. Þannig verður þetta algerlega alþjóðlegt umhverfi því Bandaríkjamenn em tiltölulega fáir í hópi nemenda. Mér fmnst þess vegna eins og ég sé ekki innan neinna sérstakra landamæra heldur á einhverjum stað sem er samþjapp- aður heimurinn allur." Rokkað með „Sinfó". - Hvað ætlarðu að spUa með Sinfóníunni 20. september? „Ég ætla að að spila píanókonsert eftir Jón Nordal sem ég er mjög hrifinn af. Þetta er æskuverk tónskáldsins og ég hef verið að vinna það með honum sjálfum sem er alger- lega ómetanlegt og mjög frábrugðið því að spila eitthvað eftir þá sem em komnir undir græna torfu. Svo ætla ég að spila píanókonsert eftir Prokofieff, sem er einnig æskuverk hans - sumir telja þetta fyrsta „alvöm"-verkið hans. Þetta er knappt í forminu, orkumikið verk, svo ég ætla að rokka með Sinfóníunni.“ - Nú telja áreiðanlega margir að þeir sem hafa valið sér svona krefjandi verkefni eins og þú séu lokaðir inni í litlum heimi klassískrar tónlistar og daglangra æfinga og sjái aldrei út úr honum. Er þetta rétt? „Ég sé ýmsa samnemendur mína í Juilliard loka sig einum of mikið af svo þetta er rétt að hluta. Ég er sjálfur ekki að hlusta á neina popptónlist eða rapptónlist eða neitt af því tagi. Ef maður kemst inn í heim klassískrar tónlistar verður ekki aftur snúið. Það er svo margt sem maður þarf að heyra og kynnast í tónlistinni. Ég tek stundum tímabil þar sem ég hlusta bara á eldgamla tónlist, t.d. frá endurreisnar- tímanum eða munkasöng eða eitthvað, svo leggst ég eingöngu f nýja tónlist, svo kemur kannski jassskeið eða gömlu meistararnir. Þegar ég hlusta á popptónlist þá er það helst eitthvert „alvöru-stöff', eins og Björk." ímynd geggjunar - Ég var að lesa blað fyrir ungt fólk, Undir- tóna, áður en þú komst. Þekkirðu þig í þeim heimi sem þar er lýst? „Eiginlega ekld. Mér finnst margt af vin- sælli tónlist byggjast um of á minimalskri endurtekningu. Lög sem byggjast á einni melódíu eru ekki mér að skapi, án þess að það sé neitt neikvætt. Ég hef bara nóg annað að hlusta á.“ - Nú hafa konsertpíanistar á sér nokkuð sérstaka ímynd sem var kannski best lýst í kvilcmyndinni Shine, þar sem hálfgeggjaður maður fór algerlega yfir mörldn þegar hann tókst á við 3. píanókonsert Ralchmaninovs, eða Rach 3 eins og hann var alltaf kallaður í myndinni. Heldur fólk að þú sért alveg á mörkunum? „Það var fyndið hvernig sú kvikmynd breytti viðhorfí fólks til pfanóleiks þótt þetta væri algjör Hollywoodmynd sem ýkti álla hluti mjög mikið. Þessi óspilandi konsert er ekki jafn erfiður og mætti halda, þótt hann sé auðvitað mjög erfiður, en það eru margir pí- anóleikarar sem kunna hann og æfa hann og sumir þeirra eru með mér f skólanum. Fólk spyr mig stundum hreint út hvort ég sé heill á geðsmunum og horfir á mann eins og klikk- aðan vísindamann eða eitthvað. Ég sá nýlega kvikmynd Polanskis, sem hét The Pianist, og mér fannst hún mjög góð. Ef kvikmyndir eins og þessar auka áhuga fólks á klassískri tónlist og píanóleik sérstaklega þá er það ffnt," segir Víkingur og hlær. Eins og að borða eða anda - Þannig að þú lifir í raun í tónlistarheimi og gerir ekki annað? „Fyrir mér er það eins og anda, borða eða sofa að spila á hljóðfæri. Það gerist bara og ég sest stundum við píanóið á skrýtnum tímum og trufla nágrannana. En ég á fleiri áhugamál og hef mikinn áhuga á að kynna mér aðrar listgreinar, bæði bókmenntir, leiklist og myndlist, og skoða hvað hefur verið að gerast í þeim listgreinum á sama tíma og sú tónlist sem ég hef áhuga á. í New York eru stórkost- leg myndlistarsöfn þar sem hægt er að sjá allt sem mann langar til. Annars held ég að tónlist hafi alltaf verið til. Hún er eitthvað sem við skynjum í náttúr- unni og alls staðar. Það finnst mörgum að þeir þurfi endilega að skilja til hlítar allt sem þeir heyra en það á bara að hlusta og ekki hugsa of mikið." Mikill keppnismaður - Nú hefúr þú fengið margvíslegan stuðn- ing, styrki og góð tækifæri ásamt skólavist við bestu fáanlega skóla. Upplifir þú væntingar fólks sem þrýsting eða pressu? „Ég hef verið mjög heppinn og finnst stundum eins og ég hafi verndarengil. Ég fékk fullkominn kennara í upphafi, Erlu Stefáns- dóttur, sem var bæði „amma" og kennari. Svo var ég hjá Peter Máté og þá tók alvara lífs- ins við. Þegar ég var barn þá var píanóið skemmtilegasta leikfangið, en það var ekki fyrr en á unglingsárum sem þetta varð alvara. Ég á auðvelt með að útiloka mig frá vænt- ingum og þrýstingi. Það er gott að fá hrós og uppörvun en ég á auðvelt með að halda mér í jafnvægi. Það er auðvitað pressa og vænt- ingar að spila með Sinfóníuhljómsveitinni svona ungur. En ég er svo mikill keppnis- maður að mér finnst gaman að takast á við pressuna og væntingarnar og geri sjálfúr mestar kröfur til mín. Ég hef aldrei verið hræddur við það hvað öðrum finnist um það sem ég ætti að geta eða gera. Ætli ég sé ekki bara nokkuð svalur á því.“ polli@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.