Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Side 20
20 DVHELCARBLAÐ LAUQARDAGUR 30. ÁGÚST2003 STÍFLUSTÆÐIÐ: Utan í Fremri-Kárahnjúk eru vinnuvélar stöðugt að undirbúa gerð stíflunnar stóru. Fyrir neðan er Flafrahvammagljúfur en báðum megin ryðja tröllauknar jarðýturnar jökulruðningi niður í Jöklu sem tekur efnið með sér - náttúran er látin sjá um að fjarlægja það. DV-myndir GVA f 1400 menn af um 15 þjóðernum með þrenn trúarbrögð munu byggja sér mislanga framtíð í stærstu framkvæmd íslandssögunnar: Fjallabergmál ítröllslegum ofu rfra m kvæ m d u m Stærstu framkvæmdir fslandssögunnar eru svo magnaðar að okkur leikmennina setur hljóða þegar við virðum fyrir okkur afeigin raun og fræðumst um ofur-stíflugerð við Kárahnjúka, 69 kílómetra langa gangagerð og virkjun sem mun auka orkuafl landsins um 65 prósent - þar sem samspil hátt í 1400 vinnumanna og - kvenna afum 15 þjóðernum og þrennum trú- arbrögðum fer fram þegar mest mun ganga á. Heilu fjöllin hreinlega tengjast með stíflu sem verður jafnhá þremur Hallgrímskirkju- turnum og hátt í jafnlöng og álversskálarnir í Straumsvík. Og 600 metra þykk við botninn! „Hvurs lags ógnarósköp eru þetta?“ datt upp úr blaðamanni þegar hann virti fyrir sér hverja 100 tonna jarðýtuna á fætur annarri róta upp jökulburði og ýta niður tuga metra háa gilbarma Hafrahvammagljúfurs með miklum gauragangi og óhljóðum sem berg- máluðu í íjöllunum - þar sem stíflan á að koma. Borarnir þrír þurfa meira en heila virkjun „Þeir eru að ryðia niður á fast - þá fyrst er hægt að byrja á að fylla upp fyrir stífluna sjálfa,“ segir fýlgdarmaður okkar. Ýtutröllin virðast eins og dvergar utan í hlíðunum og stöðug ýlfrandi píphljóð dynja í gljúfrinu og fjöllunum - þetta eru viðvörunarhljóð eins og við heyrum líka í þéttbýlinu þegar vinnu- vélum er bakkað. Já, þetta er alveg eins þarna. Bara miklu, miklu stærra og meira. Svæðin þar sem stórir trukkar og fleiri ýtur og tæki standa í röðum uppi á geymslusvæði og bíða þess að komast í notkun kalla fslend- ingarnir á svæðinu „dótakassana“. Ekki furða því þessi stórkarlalegu tæki virðast svo lítil í þessari stórbrotnu en hrjóstrugu nátt- úru. Þegar horft er til ganganna - allra 69 kíló- metranna sem munu samsvara vegalengd- inni frá Reykjavík og austur að Þjórsárbrú - þá gefúr það augaleið hve manni finnst mannvirkið verða ofboðslegt þegar okkur er sagt að þrír borar verði árum saman að gera göngin á þremur stöðum í einu. Til að koma þeim fyrir á réttum stöðum í fjöllunum þarf hins vegar að bora þrenn sérjarðgöng - og bara þau verða svipuð að lengd og Hvalfjarð- argöngin öll - þetta eru einungis svokölluð aðkomugöng, en þar verður einnig frá- rennsli og aðkoma fyrir menn og tæki. Burt- moksturinn fer hins vegar fram á færibönd- um. Og borarnir þrír munu taka svo mikið rafmagn að Lagarfossvirkjun öll (7 megavött) „DÓTAKASSINN.": (slendinga á svæðinu skortir ekki orð en svona tala þeir um tækin stóru sem bíða þess að verða notuð við virkjanaframkvæmdirnar.Trukkarnir eru sjálfir 60 tonn að þyngd og taka þeir 100 tonn af efni á pallinn - (örfáum skóflum því gröfurnar eru heldur engin smásmíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.