Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Síða 30
30 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003
Miðillinn
á skjánum
Þórhallur Guðmundsson er þekktasti
mlðlll á íslandl og hefur fengist við
miðilsstörfí rúmlega 20 ár. Hann hef-
ur verið með vikulegan útvarpsþátt í
13 áren færirnú út kvíarnar með sjón-
varpsþætti og bók. Þórhallur ræddi við
Helgarblað DV um miðilsgáfuna, ein-
veruna og einkalífið.
Þórhallur Guðmundsson er ekki
eins og fólk er flest. Hann er einn
þekktasti miðill núlifandi á íslandi
og hefur starfað sem slíkur í rúmlega
20 ár. Þórhallur hefur verið með vin-
sælan útvarpsþátt á Bylgjunni um
þessi efni í 13 ár og um mánaðamót-
in hefúr göngu sína á Stöð 2 sjón-
varpsþáttur þar sem Þórhallur setur
sig í samband við handanheima og
færir áhorfendum í stúdfói boð frá
framliðnum. Þetta er í fyrsta skipti á
Islandi sem þetta er gert en slíkir
þættir njóta talsverðra vinsælda í
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Þórhallur er innfæddur Reykvík-
ingur, fæddur 1961 og alinn upp í
Laugarneshverfmu. Hann var erfitt
barn, „slæmur í byljunum" eins og
hann orðar það sjálfur, en róaðist.
Þessi gróni Reykvíkingur tók sig upp
fyrir sex árum og flutti norður í land,
fyrst til Svalbarðseyrar en síðan inn
á Akureyri þar sem hann býr nú við
Þórunnarstræti og segist hvergi vilja
annars staðar vera.
Þórhallur settist niður með Helg-
arblaði DV og fyrst varð fyrir að
spyrja hvort það hefði ekki verið
erfitt að yfirgefa Reykjavík?
„Nei,“ segir Þórhallur ákveðinn.
„Ég þurfti á breytingum að halda
og þá verður að láta hlutina gerast.
Ég var staddur á Kanaríeyjum vetur-
inn 1997 og það var ýmislegt sem
gekk ekki vel í atvinnulegu tilliti.
Mér fannst ég vera á einhverjum
krossgötum. Ég fann að það var
þarna ný leið en ég þurfti að fmna
hana sjálfur.
Ég gekk niður á strönd einn um
kvöld, leit upp til himins og sagði:
Gefið mér nú eitthvert svar; hvert á
ég að fara og hvað á ég að gera? Það
eina sem ég heyrði var: Þú hefur fús-
an og frjálsan vilja.
Það var eins og tonn væri tekið af
mér og ég segi við sjálfan mig: Mikið
væri gaman að vera fararstjóri hérna
á Kanaríeyjum.
Þetta var í febrúar. í maí var ég
búinn að fá íbúð á Svalbarðseyri og í
júní var mér boðið starf sem farar-
stjóri á Kanaríeyjum veturinn eftir.“
Þurfti að æpa á þögnina
- Þórhallur segist hafa verið við
fararstjórn einn vetur og líkað prýði-
lega en hefur ekki átt við það síðan.
Hann hefur starfa af miðilsstörfum
og heldur fundi um allt land, hefur
farið til flestra landa þar sem fslend-
ingar búa og haldið skyggnilýsinga-
fundi eða einkafundi.
„Mér leið vel á Svalbarðseyri en
breytingin var svo mikii og þögnin
svo sterk að stundum reis ég æpandi
upp úr rúminu um miðjar nætur. Ég
vandist þessu þó fljótt og svo keypti
ég fbúð á Akureyri sem var sú fyrsta
sem ég eignaðist. Þar er gott að
búa."
- Eftir 13 ára feril í útvarpi ætlar
þú að stfga skrefið yfir í sjónvarp,
sem er í fyrsta sinn sem slíkt efni er
sýnt í íslensku sjónvarpi ef frá er tal-
inn einn skyggnilýsingafundur sem
Hafsteinn miðill hélt f sjónvarpi
1972. Hvernig verða þessir þættir?
„Þetta er sniðið að erlendri fýrir-
mynd. Þetta er ekki bein útsending
heldur erum við að ljúka við tíunda
„Fólk virðist hafa áhuga
á þessu og á sumum
heimilum er ekki tekið á
móti gestum á þriðju-
dögum. Ég held ég eigi
íslandsmetið í því hve
margir fara í rúmið með
mér."
þáttinn. Þetta eru að hluta til
skyggnilýsingar í sjónvarpssal. Það
voru 730 manns sem skráðu sig á
Netinu og vildu koma í sal og við
getum tekið 70-80 manns í einu.
Síðan, þegar fólk fær eitthvert sam-
band eða lýsingu, þá er það tekið í
viðtal daginn eftir og látið segja frá
reynslu sinni og upplifun af þvf sem
það sá og heyrði. Þar gefst fólki kost-
ur á að koma með mynd eða eitt-
hvað og útskýra fyrir áhorfendum
hvað fólst í reynslu þess."
Sjónvarp og bók
Þórhalli til fulltingis verður Guð-
rún Möller, sem annast viðtölin. í
þáttunum verður einnig fjallað um
sorg, sorgarviðbrögð og rætt við að-
standendur látinna. Það verður fjall-
að um heilun og tarotspil, rætt við
prest og sagðar sögur af Indriða
miðli sem starfaði á íslandi á fyrstu
áratugum síðustu aldar og þótti hafa
ótrúlega miðilshæfileika.
„Það hefur verið gaman að vinna
þetta með Önnu Katrínu pródúsent,
Önnu skriftu og öllu tökuliðinu. Það
hafa allir verið svo opnir og tilbúnir
að láta þetta ganga upp."
Eins og þetta nýmæli sé ekki nóg
þá kemur fyrsta bókin eftir Þórhall
út hjá Hólum fyrir jólin. Þetta er bók
sem heitir Hvað segir þitt hjarta?
„Þetta er svona náttborðsbók,
hugleiðingar um lífið og tilveruna,
dauðann, sorgina og gleðina."
- Eftir 13 ár í útvarpi hlýtur þú að
vera búinn að tala við hálfa þjóðina.
„Það hringdi í mig kona um dag-
inn sem sagðist hafa beðið eftir
samtali við mig í átta ár. Ég lýsti
mörgu fyrir henni sem hún kannað-
ist við en þegar ég spurði hvort hún
væri sátt, þá sagði hún: Nei, ég er
búin að bíða í átta ár og ég vil fá
meira.
Fólk virðist hafa áhuga á þessu og
á sumum heimilum er ekki tekið á
móti gestum á þriðjudögum. Ég
held ég eigi fslandsmetið í því hve
margir fara í rúmið með mér," segir
Þórhallur og hlær.
Undir handleiðslu ömmu
- Þórhallur ólst upp með fólki sem
skildi hans sérstöku hæfileika og
hann var 18 ára kominn í bænahring
hjá Sálarrannsóknarfélaginu með
það fyrir augum að beisla þessa
orku og koma henni í jafnvægi.
„Móðuramma mín, Snjólaug Jó-
hannesdóttir, sem bjó heima hjá
okkur, þekkti kauða og vissi hvað
var að honum. Fyrir henni var líf fyr-
ir handan jafn sjálfsagt og að draga
andann. Hún var óskaplega næm og
við vorum hænd hvort að öðru.
Amma Jónína, í föðurætt, var mikið
fyrir fýrirbænir og á sunnudögum
hittist föðurfólkið mitt hjá henni á
Hringbrautinni og það voru pönnu-
kökur."
Þeir hæfileikar sem Þórhallur hef-
ur birtast fyrst og fremst í sterkri
dulheyrn og hann skynjar hluti
fremur en að hann sjái. Hann segir
að mikilvægt sé að bæla þessa orku
ekki niður heldur flnna henni far-
veg.
„Þetta er orka sem þarf brautar-
gengi og það þarf að stilla hana og
fínpússa rétt eins og aðra hæfíleika,
t.d. söngrödd eða leikhæfileika. Ég
þekki dæmi þess að fólk hefur farið
með börn sem hafa slíka hæfíleika
til sérfræðinga og látið þau á lyf sem
bæla þessa skynjun niður. Það er
ekki rétt. Þetta eru hæfileikar sem
verða ekki teknir frá fólki og það er
ekki alltaf rétt að fara til læknis.
Maður getur lokað íyrir næmi á
þessu sviði með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Hefði Mozart ekki ver-
ið settur á rítalín á okkar dögum?
Hann hefði þá kannski ekki ratað
rétta leið.
Fólk sem hefur hæfileika en veit
ekki hvað á að gera við þá á númer
eitt að biðja um hjálp, leiðbeiningu
og skjól. Kennarinn birtist þegar
nemandinn er tilbúinn. Það er ekki
víst að fólk sem hefur svona hæfi-
leika eigi að hlaupa beint í smáaug-
lýsingar og segja: Strekki dúka, spái í
bolla. Kannski er betra að snúa
orkunni inn á við og byggja sig upp
andlega með hjálp hennar."
Engin forskrift til
- Kemur til þín fólk sem er með
dulræna hæfileika og vill fá leið-
sögn?
„Já, það hefur gerst. En það er ekki
hægt að rétta fólki stundaskrá og
segja því hvað það á að gera. Það eru
engir tveir eins. Það getur enginn
ráðið þér heilt nema þú sjálfur. Ef
hjarta þitt vill fara til hægri þá geta
engin ráð frá 100 miðlum, páfanum
eða Davíð Oddssyni breytt því."
- Er samkeppni milli miðla?
„Við þekkjumst og við tölumst við
en ég myndi ekki segja að það væri
nein samkeppni."
- Hefur þú ekki dálítið öflugt for-
skot á aðra á þessum markaði með
Er bara Þórhallur: Þórhallur flutti frá
Reykjavík til Svalbarðseyrar fyrir fáum árum
en býr nú á Akureyri og hefur keypt þar
sína fyrstu íbúð. Hann segist frá frið á Akur-
eyri, enda sé hann einfari og þurfi að vera
einn með sjálfum sér.
DV-mynd ÞÖK