Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Síða 32
44 DVHELGARBLAÐ LAUGARDAGUR27.SEPTEMBER2003
Úrfrétta-
spegli DV
Óður múgur
Sophia Hansen var slegin ( andlit og
fætur þegar um 200 manns gerðu aðsúg
að henni og fylgdarfólki hennar fyrir utan
dómsal í Istanbúl í morgun. Fólkið réðst
öskrandi á íslenska hópinn í morgun og
var meðal annars hrækt á fólkið. Um 50
lögreglumenn urðu að skakka leikinn
þegar fólkið var að ganga til réttarhald-
anna.
DVI september 1992
19 klukkustundir á 2 árum
Sophia hefur séð dætur sínar í samtals
19 klukkustundir á síðustu 867 dögum -
eða frá 15. júní 1990. Eins og fram hefur
komið hefur faðirinn ítrekað virt úrskurð
dómara um umgengnisrétt Sophiu að
vettugi. DVI október 1992
Börnin étin
„Þegar við vorum að gefa skýrslu birt-
ist faðir Halims. Þegar hann sá okkur
trylltist hann og hvítnaði í framan. Hann
opnaði munninn, sagði mér að horfa vel
upp í sig og sagði hvað eftir annað: „Ég er
búinn að éta stelpurnar". Hann sagði
mig vera gleðikonu, ráfandi villihund á
götum lstanbul og þræl djöfulsins," sagði <
Sophia Hansen við DV í gær eftir að hafa
farið í fylgd lögreglu til að fá að sjá dætur
sínar við heimili Halims Al. DVíjúll 1993
Hungurverkfall
Sophia Hansen fékk ekki að hitta dæt-
ur sínar eins og til stóð í gær. Þegar hún
kom að heimili Halims A1 til að ná í dæt-
ur sínar kom enginn til dyra og beið hún
og fylgdarlið hennar fyrir utan í þrjá tíma
án árangurs.
Sophia er nú staðráðin í að fara í hung-
urverkfall, eins og hún hafði lýst yfir, þar
sem öil loforð um að hún fái að hitta dæt-
urnar eru svikin og mun hún undirbúa
það á næstu dögum. DVIágúst 1993
Börnin heim
Endurskoðendur hafa farið yfir ráð-
stöfunarreikning vegna landssöfnunar-
innar Börnin heim. Þar kemur fram að
samtals 11,7 milljónir króna hafa verið
lagðar á reikninginn frá 2. nóvember
1992. Ráðstöfunarfé þann 6. september
var 43 þúsund krónur. Börnin heim
skuldar 12—13 milljónir króna í dag, að
sögn Sigurðar Péturs. DVloktóber 1993
Hneig niður
Sophia liggur nú á Grensásdeild Borg-
arspítalans en hún missti máttinn ( öðr-
um fætinum á Fimmtudag og hneig niður
er hún var á leið til íúndar við blaða-
mann DV. í gær kom síðan í ljós að
stöðugir bakverkir hennar á síðustu
árum hafa stafað af brjósklosi. -Sophia
fer líklega í brjósklosaðgerð fljótlega...
DVioktóber 1995
97% vilja opinbera aðstoð
f Rödd fólksins í DV lýstu 97 prósent
yfir stuðningi við opinbera fjárhagsað-
stoð við Sophiu.
„Ég varð undrandi yfir þessari niður-
stöðu en jafnframt hamingjusöm yfir því
að fá að vita að þjóðin er á bak við mig.
Ég hef hingað til þurft að leita til fólksins
í landinu og varla getað neitt annað. Mér
finnst ég varla geta ætlast tU þess áfram.
En þessi stuðningur ( könnun DV var
stórkostlegur og sýnir að það er fylgst
með mér. Ég er ekki ein,“ DVíoktóber 1995
Hitti dæturnar
Sophia Hansen hitti í gær og í fyrradag
dætur sínar, Dagbjörtu og Rúnu, í íjalla-
þorpinu Divrigi (Tyrklandi. Skv. úrskurði
hæstaréttar í Ankara á Sophia umgengn-
isrétt við dætur sfnar í júlí og ágúst ár
hvert en brot varð á umgengnisréttinum
á síðasta ári. DVIjúll 1998
Börnin sem komu
aldrei aftur
í vikunni sem leið kvað Evrópudómstóllinn í
Strasbourg upp þann dóm að Sophia Hansen
skyldi fá rúmar 8 milljónir í bætur frá tyrkneska
ríkinu og það skyldi einnig sjá til þess að hún
fengi að hitta dætur sínar tvær í Tyrklandi sam-
kvæmt dómsúrskurði. Áfangasigur, sögðu sum-
ir, en um hvað snýst þetta mál? DV rifjaði upp
helstu atriði þessa sérstæða málareksturs.
Það sem kallað er í daglegu tali mál Sophiu
Hansen er ein langdregnasta og umtalaðasta
forræðisdeila sem hefur komið upp á íslandi.
í rauninni er málið ekki flókið og hægt að
rekja gang þess í tiltölulega fáum setningum.
Sophia Hansen, íslensk kona, giftist tyrk-
neskum verslunarmanni, Halim Al. Þau
bjuggu saman í allnokkur ár á níunda ára-
tugnum og voru búsett á íslandi, þar sem
Halim fékkst við verslunarrekstur. Svo kom
að því að leiðir þeirra lágu ekki lengur saman
og þau skildu eins og fjölmörg önnur íslensk
hjón. Þau áttu, þegar þar var komið sögu,
tvær dætur, Dagbjörtu Vesile Al, fædda 1981,
og Rúnu Ayisegul Al, sem var fædd 1982.
Skömmu eftir skilnaðinn flutti Halim Al,
fyrrverandi eiginmaður Sophiu, til Tyrklands
aftur og hélt þar áfram að stunda verslunar-
störf. Sophiu var við skilnaðinn dæmt for-
ræði dætranna tveggja, með skilyrðum um
umgengni við föðurinn. Það mun síðan hafa
verið árið 1990 sem dæturnar tvær, þá átta og
níu ára gamlar, fóru til Tyrklands í sumar-
heimsókn til föður síns. Þegar þær komu ekki
til baka til íslands á tilsettum tíma komust
menn fljótlega á snoðir um að faðir þeirra
hafði kyrrsett þær í Tyrklandi og kvaðst ætla
að ala þær þar upp samkvæmt venjum þar-
lendra og eftir þeim siðum sem tíðkast með-
al múham.eðstrúarmanna.
í kjölfar þessa hófst mikill og langdreginn
málarekstur þar sem Sophia Hansen barðist,
aðallega í réttarsölum, fýrir því að fá dætur
sínar heim til íslands aftur, eða að minnsta
kosti fá tækifæri til þess að hitta þær. íslensk-
ir dómstólar kváðu upp úrskurði sem studdu
málstað hennar en lengsta og tímafrekasta
baráttan fór fram fyrir tyrkneskum dómstól-
um, þar sem Sophia krafðist þess að fá for-
ræði og umgengnisrétt til vara. Heittrúaðir
múslímar efndu til mótmæla hundruðum
saman fyrir framan dómhúsið, þar sem rétt-
arhöldin fóru fram, og veist var með bar-
smíðum og formælingum að Sophiu og
stuðningsmönnum hennar.
Börnin heim
Þótt tyrkneskir dómstólar úrskurðuðu um
rétt Sophiu til þess að hitta dætur sínar hvað
eftir annað varð það ekki til þess að af því
yrði. Halim A1 ýmist hunsaði úrskurði dóm-
stóla algerlega eða brá á það ráð að flytja
dæturnar til afskekkts fjallaþorps í austur-
hluta Tyrklands, þar sem öll umgengni við
þær var afar erfið nema í augsýn náinna
skyldmenna.
Á íslandi sýndu menn baráttu Sophíu mik-
inn áhuga og á árunum 1992-1994 var hvað
eftir annað efnt til safnana henni til styrktar,
undir kjörorðinu: Börnin heim. Fjöldi sjálf-
boðaliða lagði nótt við dag við hringingar til
almennings, fyrirtæki lögðu sitt af mörkum
og hljómplata var gefm út til styrktar barátt-
unni sem óhætt er að segja að hafi notið
þjóðarhylli ( nokkur ár. Samstarfsmaður
Sophiu á þessum árum var sambýlismaður
hennar, Sigurður Pétur Harðarson, sem var
og er snjall skipuleggjandi í almannatengsl-
um og var á þessum árum þjóðþekkt persóna
sem vinsæll útvarpsmaður. Hann var þá, og
er enn, óþreytandi talsmaður Sophiu og and-
lit baráttu hennar út á við.
Safnanir gengu enda mjög vel á þessum
árum og voru upphæðir taldar í tugum millj-
óna sem fólk og fýrirtæki létu af hendi rakna.
Barátta sem þessi var mjög dýr, með tíðum
BlÐUR ENN EFTIR BÖRNUNUM: Sophia Hansen leyfði dætrum sínum að fara til föður síns ÍTyrklandi árið 1990.
Þær hafa aldrei komið aftur til fslands.
ferðalögum milli fslands og Tyrklands, lang-
dvölum þar ytra og ráða þurfti erlenda lög-
fræðinga til þess að berjast fyrir málstaðinn.
Smátt og smátt dró úr slagkrafti þessarar
baráttu og má sjálfsagt telja ýmsar orsakir
fyrir því.
Prins Póló til Tyrklands
Baráttan varð langvinn, án sýnilegs árang-
urs svo árum skipti, og sífelld umfjöllun um
málið missti með tímanum þann áhrifamátt
sem dramatísk uppsetning hafði í fyrstu ljáð
því. Á miðjum tíunda áratugnum komust
fjölmiðlar, sérstaklega Pressan, í ýmis gögn
sem vörðuðu fjármál söfnunarinnar Bömin
heim og birtu langar greinar um það sem
telja mátti áfátt í þeim efnum. Það er ekki frá-
leitt að þjóðin hafi hrokkið örlítið við þegar
hún las um Prins Póló kex í hraðsendingum
með DHL til Tyrklands, sem kostaði tugi þús-
unda, og fleiri dæmi sem bentu til að á köfl-
um hefðu verið óskýr skil milli persónulegra
fjármála Sigurðar Péturs og Sophiu annars
végar og hinnar vonlausu baráttu hins vegar.
Sophia sneri málarekstri sfnum að lokum
til Evrópudómstólsins í Strasbourg, sem kvað
upp þann dóm í síðustu viku að tyrkneska
ríkinu bæri að greiða henni rúmlega átta
milljónir króna og sjá til þess að hún fengi að
hitta dætur sínar. Þessi upphæð er aðeins um
tíundi hluti þess sem Sophia fór fram á og
hún og Sigurður Pétur hafa síðan sagt í fjöl-
miðlum að fjármálastaða þeirra sé afleit þrátt
fyrir þennan dóm.
Með lögheimili á Túngötu
Lengi vel hélt íslenskur almenningur að
strax og dætumar Dagbjört og Rúna yrðu
sextán ára yrðu þær giftar en samkvæmt tyrk-
neskum lögum er það heimilt. Þær hafa verið
aldar upp í strangri trú og hafa aldrei komið
til íslands síðan sumarið örlagaríka, þegar
þær fylgdu föður sínum til Tyrklands.
í dag eru þær báðar komnar yflr tvítugt en
ekkert hefúr heyrst um giftingar þeirra. Móð-
ir þeirra hefur hitt þær nokkrum sinnum, síð-
ast í febrúar 2002, og hefur hún lýst því svo í
viðtölum að þær séu í nokkurs konar stofu-
fangelsi á heimili föður síns. Móðir þeirra
hefur sagst munu halda áfram baráttu sinni
fyrir eðlilegri umgengni þótt eðli málsins
samkvæmt sé ekki lengur um eiginlega for-
ræðisdeilu að ræða. Erfið baráttan hefur tek-
ið þungan toll af heilsufari Sophiu sem mun
vera með slakara móti.
Hvað framtíðin ber í skauti sér veit enginn
og ef til viU rata tveir Tyrkir, sem þrátt fyrir
allt eru hálfir fslendingar, aftur heim á skerið
þegar stúlkurnar ráða sér sjálfar og aðstæður
breytast. Eitt er víst að í stóru húsi á Túngötu
32 er samkvæmt opinberum gögnum lög-
heimili Dagbjartar og Rúnu A1 enn í dag og
verður eflaust áfram. polli@dv.is/hlh@dv.is