Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Side 36
48 DVHELCARSLAÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003
Pólitísk morð og drottinsvik engin nýlunda í Svíþjóð
Morðið á Örwu Lindh utanríkisráðherra í versl-
unarmiðstöð í miðborg Stokkhólms vekur dap-
• urlegar minningar í hugum Svía. Þótt liðnar séu
meira en tvær vikur frá því að ódæðið var framið
hefur morðinginn ekki enn verið ákærður og
engin fullvissa liggur fyrir um hver hann er. Olof
Palme forsætisráðherra var myrtur 1986 og enn
gengur morðingi hans iaus. En morð á fyrir-
mennum Svía eru ekki ný afnálinni. Tveir kóng-
ar þeirra hafa verið myrtir og núverandi kon-
ungsveldi spratt upp úr blóðbaði þegar nær allir
leiðtogar Svía sem tii náðist voru limlestir og
myrtiríStokkhólmi.
Fyrr á tíð voru Svíar duglegir að fóma
kóngum sínum til árs og friðar eins og lesa
má í ritum Snorra Sturlusonar. En það vom
ekki morð heldur athafnir sem þjóðhöfðingj-
ar gengust fúslega undir þjóð sinni til hags-
bóta.
Hins vegar vom fjöldaaftökurnar sem kall-
aðar em „blóðbaðið í Stokkhólmi" ekkert
annað en stórpólitísk morð, til þess gerð að
treysta Danakóng í sessi sem konung Sví-
þjóðar. Það mistókst þó hrapallega og Kal-
marsambandið leystist endanlega upp í kjöl-
-far þess ofbeldis og hryðjuverka sem Svíar
vom beittir. Þá höfðu sænskir ríkisstjórar
stýrt landinu um hríð en sterkar hreyfmgar
beitt sér fyrir því að sambandinu við danska
konungsveldið yrði slitið en það réð þá
einnig fyrir Noregi.
Samt sem áður hélt Kristján 2. til Stokk-
hólms og lét krýna sig þar þjóðhöfðingja Svía.
Hann sýndi þá göfugmennsku að veita öllum
aðskilnaðarsinnum sakamppgjöf og taka þá í
sátt. En þegar eftir krýninguna var öllum að-
alsmönnum og atkvæðamiklum áhrifa-
mönnum meðal Stokkhólmsbúa smalað
saman og þeir teknir af lífi 8. og 9. nóvember
1520.
Rúmlega 50 manns vom höggnir og aflim-
aðir og bútamir brenndir á almannafæri.
Meðal þeirra myrtu vom tveir biskupar. Síð-
>j an héldu hersveitir út á landsbyggðina og þar
var aftökum haldið áfram.
Blóðbaðið hleypti svo illu blóði í Svía að
þeir snemst gegn dönskum yfirráðum. Gúst-
af Vasa efndi til uppreisnar og tveimur ámm
eftir valdatöku Kristjáns 2. urðu konunga-
skipti. Hafa Svíar síðan lotið innlendri stjórn
þótt þjóðhöfðingar hafi stundum verið sóttir
til annarra landa en það var alsiða í Evrópu
þá og síðar.
Vasagangan er árlegur íþróttaviðburður í
Svíþjóð þar sem þúsundir skíðamanna keppa
og ganga sömu leið og Gústaf Vasa fór á skíð-
um með mönnum sínum þegar hann stóð
fyrir uppreisninni gegn erlendu valdi og
þurfti að komast til höfuðborgarinnar í flýti.
Vasagangan er til minningar um atburð í
stríði við erlent vald, svipað og maraþon-
vðhlaupið, sama vegalengd og tíðindamaður
hljóp frá vígvellinum í Laugaskaði og til
Aþenu á sínum tíma.
Byssan kom upp um morðingjann
Gústaf 3. var myrtur á grímudansleik í höll
sinni í Stokkhólmi í mars 1792. Hann var til-
þrifamikill höfðingi og barst mikið á. Hann
efldi herinn og konungsvaldið en þekktastur
er hann fyrir dálæti á listum og menningu.
Hann hélt uppi glaðværu hirðlífi og þótti
sumum trúuðum meinlætamönnum nóg
um.
Eftir höfðinu dansa limirnir. Tónlistar- og
leikhúslíf stóð með miklum blóma í tíð Gúst-
afs 3. og kostaði hann miklu til að efla menn-
ingarlífið. Glaðværðin fylgdi með og var kon-
ungur dyggur stuðningsmaður lífslista-
mannsins og trúbadorsins Bellmans sem orti
og söng og lifði lífinu ekki alltaf af hófsemi.
Enn eru lög og ljóð Bellmans leikin og sung-
in. Náði glaðværð hans langt út fyrir landa-
•>mæri Svíþjóðar og rataði meira að segja alla
ÓUPPLÝST MORÐ: Enginn veit með vissu hvers vegna Olof Palme var skotinn á götu í Stokkhólmi árið 1986. Morðingi hans er ófundinn og er málið enn (rannsókn. Hér er
hann í heimsókn hjá Vigdísi Finnbogadóttur ásamt konu sinni, Llsbeth.
leið til íslands
þar sem hvert
mannsbarn get-
ur slegið Gamla
Nóa á hljóm-
borð með ein-
um putta og
sumir með
tveimur.
Lífsstíll Gúst-
afs 3. og kostn-
aður við menn-
ingarrekstur og
hernaðarupp-
byggingu aflaði
honum óvin-
sælda meðal að-
alsins og ann-
arra þeirra sem
töldu auð og
völd frá sér tek-
in. Gerðu nokkr-
ir ungir aðals-
menn samsæri gegn kóngi. Ungur liðsforingi
sótti grímudansleik í konungshöllinni og þar
voru einnig tveir félagar hans og vitorðs-
menn. Þegar leið á dansleikinn gekk
Ankerström að kóngi og skaut hann til bana.
Þar sem allir voru grímuklæddir þekktist
morðinginn ekki og komst undan. En athug-
ulir ballgestir tóku eftir vopninu og áttuðu sig
á að það var skammbyssa Ankerströms sem
notuð var til að skjóta kónginn. Hann var
handtekinn daginn eftir, dæmdur fyrir drott-
insvik og tekinn af lífi hið snarasta.
En Gústaf 3. var ekki fyrsti sænski
kóngurinn sem féll fyrir annarra hendi því að
sama henti Karl 12., stríðsjálkinn mikla.
Fyrstu stjórnarár sín vann hann mikla
hernaðarsigra á Dönum, Rússum og Söxum
og hlutaðist til um málefni Póliands. Ungur
að árum fór hann f mikla hernaðarleiðangra
var myrtur á grímudansleik í
höll sinni árið 1792. Morðinginn
þekktist á byssunni sem hann
hélt á. Var hann handtekinn
daginn eftir og dæmdur til líf-
láts.
Anna Lindh utanríkisráðherra
var, eins og Palme, atkvæða-
mikil i þjóðlífinu og lét til sín
taka á alþjóðavettvangi.
Henni var spáð enn meiri
frama á vettvangi stjórnmála
og talin líkleg til að taka við
formennsku í Jafnaðar-
mannaflokknum og verða þar
með forsætisráðherraefni
flokksins. En þær vonir brugð-
ust og ferlinum lauk með
skjótum og óvæntum hætti.
og í einum þeirra náði annar atkvæðamikill
stríðsmaður, Pétur mikli Rússakeisari,
austurhéruðunum á sitt vald. Eftir að hafa
unnið frægan sigur á hinum stríðsóða
voru tugir áhrifamanna í borginni sviknir í tryggðum
og tugir þeirra líflátnir, höggnir í spað og brenndir.
Þau illvirki drógu dilk á eftir sér; Svíar gerðu uppreisn
gegn dönsku valdi og tóku ráð ríkisins í eigin hendur.
Myndin sýnir hvernig umhorfs var á torginu þar sem
aftökurnar fóru fram þessa daga.
sænska kóngi við Poltava í Úkraínu 1709
lagði hann grunninn að borg sinni, Sankti
Pétursborg, og náði um leið aðgangi að
Eystrasalti og þar með heimshöfunum öllum.
Enn skal minnt á að Pétur nefndi borgina
ekki eftir sjálfum sér heldur heilögum Pétri
og virkið, sem varð fýrsti vísir að veldi Rússa
við Eystrasaltið, er nefnt eftir postulunum
heilögu Pétri og Páli.
Þegar Karl 12. var búinn að vinna og tapa
ótal orrustum fjarri heimalandinu var ríkið
orðið févana og stjórnlítið og kynslóðir ungra
manna failnar í valinn. Þá sneri kóngur sér að
Noregi og hóf hernað þar til að sýna norskum
hver réði landi þeirra.
Þá voru Svíar orðnir svo örþreyttir á
endalausum hemaði kóngs og stjórnleysi
hans heima fyrir að honum var hugsuð
þegjandi þörfin. Árið 1716 lá víglínan miili
herja Svía og Norðmanna við Fredriksten.
Þar lágu hermenn í skotgröfum eða virkjum
og var orrusta í aðsigi. Þá var skotið á Karl
kóng og dó hann samstundis.
Fuilvíst er talið að það hafi verið hans eigin
menn sem stóðu að morðinu. Byssukúlan
kom í hnakkann og síðari rannsóknir sýna að
banaskotinu var hleypt af á stuttu færi. Lftið
var gert í málinu og látið í veðri vaka að
konungur hefði faiiið í bardaga við óvinina.
Flestir Svíar vom fegnir að vera lausir við
vandræðagripinn sem helst gerði ekki annað
en fara með ófriði gegn erlendum þjóðum,
lék eigin þegna grátt og var á góðri leið með
að leggja eigið ríki í rúst þegar gripið var í
taumana með lítilli blýkúiu.
Enginn veit...
öðm máli gegndi þegar sú frétt barst að
skotið hefði verið á Olof Palme forsætisráð-