Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Side 49
LAUGARDAOUR 27. SEPTEMBER 2003 DV HELGARBLAÐ 61
Sakamál
HVAÐ: Fjögurra ára stúlka hverfur.
HVAR: I Norður- eða Suður-Karólínu.
HVENÆR: Fyrir réttu ári...
1
Hver urðu örlög
Kynande litlu?
Tómlæti foreldranna vekur grun
Lögreglunni barst fjöldi ábend-
inga og meðal annars frá 30
manns sem sögðust hafa
skyggnigáfu og margir þeirra
tilkynntu að barninu hefði verið
rænt og selt á þrælamarkað í
Mexíkó. Ekkert mark var tekið á
ábendingum sjáendana því lög-
reglan í umdæminu vissi ekki til
að miðlar hefðu nokkru sinni
komið upp um glæpi, þótt lög-
reglumenn í öðrum umdæmum
leituðu iðulega til þeirra í þeirri
von að sakamál yrðu upplýst.
LÖGÐU LIÐ. Hundruð sjálfboðaliða lögðu sitt af mörkum í leitinni að týndu stúlkunni.
Því lengra sem líður frá hvarfl hlnnar fjögurra
ára gömlu Kynande Bennett verður mállð dular-
fyllra og flóknara. í fyrstu hélt lögreglan að um
brottnám stúlkunnar hefði verið að ræða og
jafnvel kynferðisglæp en síðar tóku málin
óvæntar stefnur og misvísandl. Litla stúlkan
hefur enn ekki fundist og eftir jpví sem málið er
lengur rannsakað verður fpað flóknara og erfið-
ara viðfangs.
Það var síðdegis laugardaginn 29.septem-
ber 2002 að móðir stúlkunnar, Vartasha
McCullough, tilkynnti verslunarstjóranum í
K-Mart útibúinu í Whiteville í Norður-Carol-
ina að dóttir sín væri horfin. Hún hefði síðast
séð hana á ráfi f leikfangadeildinni þar sem
hún var að skoða sig um en þegar hún ætlaði
að sækja barnið var það horfið. Starfsfólkið
fór þegar í stað að leita að stúlkunni en hún
fannst hvergi innan stórverslunarinnar.
Lýsing á Kynande var send út og myndir af
henni hengdar upp á lögreglustöðvum og þar
sem einhver von var til að einhver þekkti
hana. Henni var svo lýst að vera dökk á hör-
und með brún augu og hár sem fléttað var í
smáfléttur og var með fæðingarblett á hægri
handlegg, klædd grárri skyrtu, bláum galla-
buxum og með íþróttaskó á fótum.
Lögreglunni barst fjöldi ábendinga og
meðal annars frá 30 manns sem sögðust hafa
skyggnigáfu og margir þeirra tilkynntu að
barninu hefði verið rænt og selt á þræla-
markað í Mexíkó. Ekkert mark var tekið á
ábendingum sjáendana því lögreglan í um-
dæminu vissi ekki til að miðlar hefðu nokkru
sinni komið upp um glæpi, þótt lögreglu-
menn í öðrum umdæmum Ieituðu iðulega til
þeirra f þeirri von að sakamál yrðu upplýst.
Móðir Kynande sagði rannsóknarlögreglu-
mönnurn að hún hefði verið í tvær klukku-
stundir í versluninni ásamt dóttur sinni þeg-
ar hún hvarf. Lögreglan skipulagði þegar
viðamikla leit og um 70 sjálfboðaliðar gáfu
sig fram og aðstoðuðu við leitina. Þeir rann-
sökuðu yfirgefm farartæki og yfirgefm hús og
skúra í námunda við verslunina og kafarar
lögreglunnar mýrardý sem er kjörlendi snáka
þar í nágrenninu.
Konan sem skipulagði sjálfboðaliðasveit-
ina var frænka annarrar fjögurra ára stúlku
sem hvarf 1999. Einn leitarmanna sagðist
hafa grátið viðstöðulaust meðan á leitinni
stóð, en barn hans varð fórnarlamb öf-
ugugga. Hvarf Kynande vakti minningar um
þann atburð þegar hann gat ekki sofið og sú
hugsun var ágeng að hann ætti sjálfur sök á
hvernig fór fyrir barninu með því að líta ekki
nógu vel eftir dóttur sinni.
Grunsemdir vakna
Hundruð manna sóttu bænastund þar sem
beðið var fyrir Kynande í sóknarkirkju móður
hennar og var þar lögð áhersla á að stúlkan
fyndist á lífi.
18. október hafði enn ekkert fundist sem
benti til hvað hefði orðið af stúlkunni. Fjöldi
sjálfboðaliða bauð sig fram til leitarinnar og
svæðið sem rannsakað var varð sífellt stærra.
Leitað var á landi og úr lofti og sérþjálfaðir
hundar fóru víða um en ekkert kom í ljós sem
bent gat til hver örlög barnsins voru. Einn
þeirra sem skipulögðu leitina sagði að öllum
væri ljóst að verið væri að leita að saumnál í
heysátu, en það væri auðséð að þeir sem
reyndu að hafa uppi á barninu lögðu mikið á
sig í þeirri von að erfiði þeirra bæri árangur.
Þegar frá leið sannfærðust lögreglumenn í
þeim umdæmum sem leitað var í um að
Kyande væri sennilega látin. En hver var
ábyrgur fyrir hvarfi hennar og hvaða hvatir
lágu að baki barnsráninu?
Gengið er út frá því sem vísu að fjögurra
ára gamalt barn vekur ekki kynferðislegar
fýsnir sæmilegra heilbrigðra manna, en lög-
reglan veit að frá því eru undantekningar,
eins og dæmi sanna. Sífellt streymdu ábend-
ingar inn til lögreglunnar og fleiri en svo að
það tækist að athuga þær allar og margar
voru bersýnilega rugl. Ein ábendinganna var
frá miðaldra konu sem sagðist hafa séð Kyn-
ande í hvítum Dodge-sendiferðabíl eftir að
hún hvarf.
Foreldrar stúlkunnar voru skilin að skipt-
um þegar hún hvarf, en ósamræmi í fram-
burði þeirra vakti grunsemdir rannsóknar-
lögreglumanna og leið ekki á löngu þar til
grunurinn beindist aðallega að þeim. Þau
bjuggu sitt í hvorum bænum og kom lögregl-
an sér upp eftirlitskerfi þar sem fýlgst var
með ferðum þeirra og sérstaklega hvort þau
hefðu samband sín á milli.
Faðir Kynande, Kevin Bennett, bjó hjá for-
eldrum sínum. Hann brást reiður við þegar
lögreglan leitaði upplýsinga hjá honum um
hvarf dótturinnar. Hann harðneitaði að
henni hefði verið misþyrmt eða gert nokkurt
mein og var mjög ósamvinnuþýður. Hann
staðhæfði að hvorki hann né barnsmóðir sín
ætti neinn þátt í hvarfi stúlkunnar.
Lögreglan í Conway, þar sem mæðgurnar
áttu lögheimili, var tekin við aðalrannsókn
málsins því að ekkert kom fram sem benti til
að Kynande hefði komið til Whiteville 29.
september eða í verslun K-Mart þar. Þann
dag var eftirlitskerfi verslunarinnar bilað og
engar upptökur til úr eftirlitsmyndavélunum.
Hins vegar komst lögreglan yfir myndband
Mivslng í hild
AÐEINS MINNING. Ef til vill er tilkynning á veggjum
um týnt barn hið eina sem minnir á að Kynande hafi
verið til.
sem tekið var upp þann dag á bensínstöð í
Conway, þar sem Kynande sást greinilega í
bflnum með móður sinni. En eftir það sá eng-
inn stúlkuna nema móðirin, því að starfsfólk-
ið í versluninni þar sem barnið átti að hafa
horfið mundi ekki eftir að hafa séð stúlkuna í
fylgd móður sinnar eða ráfandi um ganga
leikfangadeildarinnar né annars staðar í stór-
markaðnum.
Hins vegar mundi afgreiðslufólk eftir að
hafa séð Vartasha eina þar á ferð það laugar-
dagssíðdegi. Það vakti þá spurningu meðal
rannsóknarlögreglumannanna hvernig stóð
á því að konan hafði ekið 180 km leið frá Suð-
ur-Carolina til Norður-Carolina til að versla
til helgarinnar. Hún féll á prófi í lygamæli og
barnsfaðir hennar neitaði að láta yfirheyra
sig í svoleiðis græjum.
STÚLKAN SEM HVARF. Kynande var aðeins fjögurra ára
þegar hún hvarf frá móður sinni, en hvar það var hefur
aldrei verið upplýst og nú er móðirin líka horfin.
Hvará að leita?
Blóðprufur og önnur sýni voru tekin íbúð
Vartasha og bflar hennar og barnsföðurins
voru sendir í rannsóknarstofur ríkislögregl-
unnar, sem er ekkert að flýta sér, því að um
miðjan desember sl. lágu engar rannsóknar-
niðurstöður fyrir.
í Suður-Carolina þarf ekki áþreifanlegt lík til
að ákæra meinta morðingja. En málið virðist
vera að lognast út af vegna skorts á sönnun-
um. Þegar leitin var í hámarki tóku 700 manns
þátt í henni, en nú eru það aðeins örfáir sem
reyna að fylgja málinu eftir. 5.000 dollarar
hafa verið boðnir hverjum þeim sem getur
komið lögreglunni á sporið við að upplýsa
hvarf Kynande. Aðeins tvær ábendingar bár-
ust eftir það og báðar marklausar.
Það sem hefur vakið bæði undrun og grun-
semdir rannsóknarlögreglumannanna sem
hafa með málið að gera er hve tómlátir nán-
ustu ættingjar litlu stúlkunnar hafa verið um
örlög hennar allt frá því að hún hvarf. Enginn
af þeim nánustu hringdi þá né síðar til að leita
frétta af leitinni og hvort barnið væri fundið.
Að jafnaði hringja mæður týndra barna fimm
til fimmtán sinnum á dag f lögregluna til að
spyrja um árangur leitar. En engu var líkara en
nánustu aðstandendum Kynande stæði ná-
kvæmlega á sama um örlög hennar.
Foreldrar stúlkunnar tóku þátt í leitinni í
stuttan tíma þegar hún hófst en hurfu brátt af
vettvangi. Þegar fréttamenn ætluðu að ná tali
af móðurinni tók Bennett um axlir hennar og
leiddi hana burt. Þau óku á brott í sendiferða-
bfl og liafa ekki verið til viðtals síðan hvorki við
lögreglu né aðra sem leita dóttur þeirra eða
frétta af hvarfi hennar.
Móðir Vartasha segir að dóttir sín og
tengdasonur hafi verið lögð í einelti af vitleys-
ingum sem hringdu stöðugt í þau eftir að lög-
reglan upplýsti að þau væru jafnvel grunuð
um að vera völd að hvarfi litlu stúlkunnar.
Lögreglufulltrúi í Whiteville segir að
Vartasha hafi ekki sýnt mikla móðurumhyggju
þegar hún tilkynnti lögreglunni fyrst hvarf
dóttur sinnar og að Bennett hafi ekki tekið
þátt í leitinni nema stutta stund og látið sér í
léttu rúmi liggja hvort stúlkan fyndist eða ekki.
Hann telur að athyglinni og rannsókninni á
barnshvarfinu hafi verið beint allt of mikið að
leit að líki fremur en að meintum morðingjum
öflun sönnunargagna gegn þeim.
Síðast þegar til fréttist var liðinn langur tími
frá þvf að foreldrarnir hurfu og veit lögreglan
ekkert hvar þau eru niður komin og þykir lak-
ara að geta ekki náð til þeirra fari svo að Kyn-
ande litla finnist, lífs eða liðin.
Eins og málin standa núna er hvarf
stúlkunnar óupplýst og ef ekki berast nánari
upplýsingar um hvarfið eða frekari sönnunar-
gögn veit lögreglan ekki í hvaða áttir á að
beina leit og rannsókninni.
r
4-