Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Blaðsíða 9
0V Fréttir
LAUGARDAQUR 13. DESEMBER 2003 9
Englar á Norðurlöndum
sex lögreglumenn ofan
á honum og hann var
yfirbugaður.
Lögreglan sneri upp
á hendina á honum til
að koma á hann hand-
járnum.'‘Höndin á mér,
djöfulsins," veinaði Jón. „Ég er ró-
legur, alveg rólegur núna."
„Þetta er annar tveggja íslend-
inga sem komu með hópnum,"
sagði jóhann R. Benediktsson,
sýslumaður á Keflavfkurflugvelli.
„Hann tengist Fáfni og var með
ögrandi framkomu. Hrækti á lög-
reglumann og neitaði að framvísa
vegabréfmu. Þegar hann sló til ann-
ars lögreglumanns var hann hand-
tekinn," sagði Jóhann.
Peace and love
Norðmennimir níu voru teknir
afsíðis og af þeim teknar skýrslur.
Þeir em allir með langa sakaskrá.
Eftir skýrslutökur eru upplýsingar
sendar Útlendingastofnun þar sem
ákvörðun er teldn um það hvort
mönnunum skuli vísað úr
landi eða leyft að vera.
Samkvæmt heimildum
DV er ekki líklegt að þeir
muni staldra lengi við. Eft-
ir að mesti æsingurinn var
um garð genginn óskaði
blaðamaður DV eftir viðtali við einn
af Vítisenglunum. Lögreglan heimil-
aði viðtalið eftir að hafa ráðfært sig
við einn af Vítisenglunum sem var
tilbúinn að tala við fjölmiðla.
„Við erum í fríi og ætlum í Bláa
lónið að skemmta okkur," sagði Vít-
isengillinn Hans og bætti við að
hópurinn væri vonsvikinn með mót-
tökurnar. „Það hefði verið skemmti-
legt að heimsækja Reykjavík og kíkja
á Gullfoss og Geysi." Hans er frá
Noregi og tók fram að þar væri hann
mun betur liðinn. „Ég get ferðast
hvert sem er í Noregi og Skandinav-
íu. Það er ekkert vandamál." Hans
kvaðst ekki vita af hverju lögreglan
tæki svona á móti þeim. Þeirra
mottó væri „peace and love."
simon@dv.is
Fyrir utan deildir virkra með-
lima Hells Angels og Bandidos
starfa áhangendahópar. Hjá Hells
Angels heitir þessi hópur „Red
and white support crew". Þeir sem
vilja verða meðlimir í Hells Angels
þurfa að fara í gegnum íjögur þrep
og eru áhangendur það lægsta en
meðlimir það hæsta. Áhangendur
reyna mikiö til að sanna sig og
komast upp þrepin. Þeir safna
merkjum til að komast upp. Al-
ræmdasta merkið er „Filthy few“
sem menn fá þegar þeir hafa drep-
ið mann. Miðað er við að 150
manns séu virkir félagar í hverjum
klúbbi. Hells Angels í Danmörku
em byggð þannig upp að það
starfa níu klúbbar í landinu.
Bandidos starfrækir tíu klúbba.
Rassía í Noregi
Lögreglan í Noregi hefur lagt
í miklar rassíur hjá Vítisenglum
á síðustu dögum. Lögreglan
sagði í gær að henni hefði tekist
að ganga svo nærri vélhjóla-
gengjunum að þeim tækist ekki
að safna nýjum félögum. Á
miðvikudag réðust lögreglu-
menn inn í skrifstofur Hells
Angels í Þrándheimi og Osló.
Verið var að rannsaka um-
fangsmikið áfengissmygl í þetta
sinn.
í fyrradag voru tólf liðsmenn
vélhjólagengja handteknir í
Þrændalögum. Þetta vom með-
limir Black Crows, sem tengist
Hells Angels.
Tilbúnirað
mæta þeim
um hverja
helgi
„Þeir sögðu það síðast,
og þeir hafa sagt það áður,
að þeir muni reyna í okkur
þolrifin og að þeir muni
ekki láta okkur né nokkurn
annan stöðva sig," segir Jó-
hann R. Benediktsson
sýslumaður á Keflavíkur-
flugveUi sem stýrði aðgerð-
um lögreglu í gær. „Þeir
sögðu við komum aftur og
aftur, en við erum tilbúnir
að mæta þeim hér um
hverja helgi."
Þegar hann er spurður
um skýringar Vítisenglanna
á veru sinni hér á landi seg-
ir Jóhann að þeirra fram-
koma og brotasaga segi allt
um það sem þeir séu að
gera á íslandi. „Þeir eru
ekki líklegir að breyta út frá
því.“ Hann segir að ekkert
sérstakt sé hægt að gera til
að koma böndum á starf-
semi vélhjólaklúbbsins
Fáfnis annað en að hafa
góðar gætur á mönnum
þar.
Jóhann segir aðgerðina
hafa gengið vel og ákveðið
hefði verið að vera með
mikinn viðbúnað. „Okkur
bauð í grun að eitthvað
gæti farið úrskeiðis," segir
Jóhann. „Um síðustu helgi
gerðu menn sig líklega til
að ráðst á fulltrúann minn
þannig að það mátti búast
við því að þeir yrðu með of-
beldi."
Magnús Scheving
Fær ólíkindalegar og
skemmtilegar hugmyndir sem
hann ákveður að hrinda í
framkvæmd. Hefur algerlega
óbilandi trú á því sem hann
tekur sér fyrir hendur og hlífir
sér hvergi. Er glaðvær í
fullkomnunaráráttunni.
Kostir & Gallar
Sést oft ekki fyrir þegar hann
virkjar aðra á leið sinni að
settu marki. Áðurgreind
fullkomnunarárátta þykir í
hugum margra vera Ijóður á
ráði manns sem ella kæmi
miklu meira í verk - þó það
væriekki allt fullkomið.