Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Side 56
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn, Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHLÍÐ24 105 REYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMI550 5000
• Andrúmsloftinu á Veður-
stofunni er nú einna helst líkt
við óveður og ýmsar tilfæringar
“'í^angi. Magnús Jónsson veður-
stofustjóri mun
ætla að flytja for-
stöðumenn til í
starfl auk annarra
breytinga sem falla
í misjafnan jarðveg
innanhúss. Hefur
veðurstofustjóri
lýst því yflr að
breytingarnar verði kynntar
strax í upphafi næsta árs. Sam-
keppni „frjálsra" veðurfræð-
inga við veðurfræðinga Veður-
stofunnar mun fara fyrir brjóst-
ið á Magnúsi sem hefur meðal
annars kvartað við fréttastjóra
Stöðvar 2 vegna veðurfrétta þar
á bæ sem veðurstofustjóra
þykja helst til glannalegar. Hafa
'*£3ér þó ekki staðist síður en
spár rtkisstarfsmannanna á
Veðurstofunni sem margir eru
uggandi um sinn hag í þeim
vindsveipum sem þar ganga
yflr.
Ég er í kirkjufríi
ItllMHIHtHltmiIlg't
Jolahugvekja Martröðin i Frikirkjunni
Heyrði um daginn auglýst að
Gísli Marteinn ætti að flytja jólahug-
vekju í Fríkirkjunni. Allir velkomnir.
Rann kalt vatn milli skinns og hör-
unds. Ekki vegna Gísla Marteins,
heldur hins að martröðin rifjaðist
upp. Jólahugvekjan mín á sama stað
fyrir mörgum árum. Jólahugvekja
sem snerist upp í hrylling.
Séra Cecil, sem þá var Fríkirkju-
prestur, hafði hringt og beðið um
stutta tölu á aðventukvöldi hjá sér í
kirkjunni. Þyrfti ekki að vera langt;
aðeins nokkur orð í tilefni jóla.
Fannst sjálfsagt og sagði já. Eins og
fífl. Datt í hug að leggja út af setning-
unni: „Þar sem ljósið er skærast er
skugginn lengstur." Páraði það á
blað og mætti á tilsettum tíma.
Brá dálítið þegar ég sá að kirkjan
var smekkfull. Lét þó á engu bera og
sté í pontu. Þúsund augu hvfldu á
mér í þrúgandi þögn kirkjunnar.
Heyrði ekkert nema hvin í
nagladekkjum leigubfls fyrir utan.
Bauð gleðileg jól og hóf ræðuna um
ljósið og skuggann. Fann fljótt að
engin heyrði í mér. Míkrafónninn
var bilaður. Fólk á aftasta bekk hróp-
aði: Hærra, hærra! Aðrir á fremri
Á bakinu með Eiríki Jónssyni
bekkjum litu hver á annan öWiristu
höfuð. Mér fannst allir í kirk)
hrista höfuðið. Reyndi að
röddina en gekk illa því þurrkurinn'
munninum jafnaðist á við sólríkan
dag á Suðurlandi í miðjum heyönn-
um. Þegar allt þornar.
Veit ekki hvernig ég komst í gegn-
um þetta. Reikaði ringlaður út og hef
ekki síðan séð Fríkirkjuna í réttu
ljósi. Get helst ekki gengið Sóleyjar-
götuna án ■ þess að
verða ómótt. Reyndi
einu sinni að gefa
öndunum við Tjörn-
ina en ældi þá yflr j
þær. Veit ekki enn /
um hvað þessi jóla-
hugvekja mín fjall-
aði. Mamma
sagði mér síðar 40
að henni hefði
heyrst ég segja að Sin- alco væri
betra en Pepsí.
Vona að Gísla Marteini hafi geng-
ið betur. Hálf kjánalegt að fríka
svona út i Fríkirkjunni.
GEFÐU (MYNDUNÁRÁFLINU
LÁUSÁN TÁUMINN!
Þú getur byggt nœstum
því ollt med GEOMAG!
Útsölustaðir: Reykjavfk: Penninn • Eymundsson • Málogmenning
Utan Rvk: Penninn - Bókab. Keflavfkur • Penninn - Bókab. Andrésar, Akranesi • KB-Borgarnesi • Verst. Sjávarborg, Stykkishólmi • Hrannarbúdin, Grundarfirái
Versl. Kassinn, Ólafsvfk • Penninn - Bókhlaðan, (safirdi • KH, Blönduósi • Bókab. Brynjars, Sauðárkróki • Penninn - Bókval, Akureyri • Bókav. Pór. Stefáns., Húsavfk
Urð, Raufarhöfn • Bókab. Hlöðum, Fetlabce • Veiðiflugan, Reyðarfirði • Eskja, Eskifirði • Tónspil, Neskaupstað • Stöðvfirzka verzlunarfélagið • Eymundsson, Selfossi
Mosfell, Hetlu • Penninn - Bókabúð, Vestmannaeyjum • Saga Boutique • lceland Express • Fríhöfnin Keflavfkurflugvelti.
f Heildsöludreifing: ísöld ehf. Sími: 554 7700
■INÍittNÍltfMMIlNÍMIINHIIilÍttlNtMlMMÍMIMÍIMNIttttlMilHttMkllfeHlttMttÍlHttMMlNllttMMHNIIIHHÉíNMMNM^