Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Side 28
28 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 Fókus 3DV Hin árlega kjötsmökkun DV fór fram á Þrem Frökkum hjá meistara Úlfari Eysteinssyni. Henný Bjarnadó Sæbjörnsson, söngvari í svörtum fötum, Bryndís Ásmundsdóttir leikkona og Ragnheiður Guðfinna Guðna álit sitt á níu tegundum af hamborgarhrygg. Við fórum í Hagkaup og Nóatún og keyptum helstu vörumerki af hamborgarhrygg og var kjötið merkt þegar það var sett í pottana og síðan merkt frá 1-9 þegar það var skorið í sneiðar og raðað skipulega á diskana. Ekki voru matgæðingar okkar alhr sammála enda fólk með misjafnar væntingar til jólasteikarinnar. Þau vissu ekkert hvaða sneið var frá hvaða framleiðanda heldur var þeirra hlutverk að gefa hverri sneið frá 0 upp í 5 stjörnur - sem mest gat gefið 20 stig - og gera við- eigandi athugasemdir. Kea „Alltof salt" 9stig í umbúðunum vó kjötið 2070 g Án umbúðanna 2055 g Eftir suðu 1830 g Það var gegnumgangandi að sneiðarnar frá Kea væru of salt- ar. Ragnheiði fannst kjötið „allof salt og gelkennt, en mjúkt er það samt." Jónsa fannst kjötið fín- gert og gott fyrir þá sem eru pjattaðir vegna þess hve auðvelt er að pilla fituna af sneiðinni. Bryndís sagði: „Falleg sneið en ekki góð. Mér brá við fyrsta bit- ann! Skrýtið bragð sem minnir einna helst á sjó." Úlfar hafði ekki mörg orð um kjötið en sagði reykbragðið fullsalt. Hún á afmæli í dag ... Bryndís Ásmundsdóttir varð 28 ára i gær og að sjálfsögðu söng Jónsi afmælissönginn fyrirhana. Ali „Ekki góður og tíkar leg sneið" 5 stig í umbúðunum vó kjötið 1226 g Án umbúðanna 1215 g Eftir suðu 990 g Borgarnes Kjötvörur „Þurrt kjöt" 8,5 stig í umbúðunum vó kjötið 1642 g Án umbúðanna 1650 g Eftir suðu 1390 g Nóatúns „Nokkuð góður 14 stig í umbúðunum vó kjötið 686 g Án umbúðanna 680 g Eftir suðu 577 g Södd og glöð eftir smökkunina Það fór vel ámeð matgæðingunum Jónsa, Úlfari, Bryndlsi og Ragnheiði eftir að þau höfðu smakkað jólahamborgarhryggina. Hryggurinn frá Ali fékk síður en svo góðar undirtektir. Hann þótti alltof saltur og hreinlega vondur. Úlfari þótti hryggurinn tíkarlegur og full saltur og of lít- ið reykbragð af honum. Ragn- heiður sagði: „Gott reykjarbragð en aðeins of mikið saltbragð. Ekki fallegt á litinn og alltof lítil sneið. Jónsi: „Þetta var minnsta sneiðin af öllum, trúlega af smá- grís. Það þarf ekki að salta kjötið ... Mætti segja að þetta væri svona espresso-skammtur af svínakjöti. Bryndís sagði: „Salt, salt, salt, mjög vond sneið!!!" Fólkið okkar var ekki sam- mála um hamborgarhrygginn frá Borgarnes Kjötvörum. Hann fékk allt frá engri stjörnu og upp í fimm. Ragnheiði fannst það „þurrt og tægjur". Jónsa fannst það of bragðlítið fyrir sinn smekk. Bryndísi fannst „sneiðin frekar ljós og ljót, mjög þurr og ekkert eftirbragð". Hún þurfti líka að væta munninn með köld- um bjór á eftir. Úlfar var hinn ánægðasti með kjötið: „Gott bragð, falleg fiturönd. Fín áferð ogvelholdfyllt." Úlfari þótti hryggurinn lang- bestur, sagði hann safaríkan og hafa gott reykbragð ásamt mildu salti. Jónsa fannst kjötið hafa „fallegan vöðva og gott jafnvægi milli reyks, salts og kjötsins sjálfs. Prýðisgott." Bryndísi fannst sneiðin svolítið feit og vanta smá kraft. Ragnheiði fannst kjötið ekki nógu gott, „eitthvert eftirbragð sem fellur ekki að jólaskapinu. Hefði samt átt að vera bestur." Reynsluboltinn Úlfarstýrði ungmennunum i gegnum smökkunina afstakri prýði. „Fallegasta sneiðin og kjötið rosalega mjúkt og gott." „Fallega feit sneið að íslenskum sið." „Gott bragð, falleg fiturönd Fín áferð og vel holdfyllt."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.