Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Side 10
1 0 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Stjórnvöld
þurfa að sam-
ræma flug-
vallargjöld
Samkvæmt úrskurði frá
EFTA-dómstólnum þurfa ís-
lensk stjórnvöld að breyta
flugvallargjöldum hér á
landi. Fram til þessa hefur
flugvallargjald verið mis-
munandi hér á landi eftir
þvf hvort um innanlands-
eða millilandaflug er að
ræða. Dómstóllinn taldi
þetta brjóta í bága við
ákvæði EES-samningsins
um að stuðla beri að frelsi
til þjónustuviðskipta þar
sem mismunandi gjald gerir
þjónustufyrirtækjum í flug-
rekstri mishátt undir höfði
eftir því hvort þau starfa á
íslandi eða annars staðar á
EES-svæðinu. Samkvæmt
upplýsingum frá utanríkis-
ráðuneytinu verður brugðist
við þessum úrskurði með
því að samræma flugvallar-
gjöld. Ekki hefur verið
ákveðið hvort gjöldin munu
lækka, hækka eða mætast á
miðri leið.
Lóðaúthlutun
sýslumanns
Lóðaúthlutun í Teiga-
hverfi í Mosfellsbæ hófst
hjá sýslumanninum í
Reykjavík á miðvikudag.
Næst liggur fyrir að um-
sækjendur velji sér lóðir í
þeirri röð
sem þeir
voru dregnir
úr hatti
sýslumanns.
Það verður
gert Fimmtu-
daginn 18.
desember. Umsækjendur,
sem voru samtals 291, sóttu
um í átta aðskildum pott-
um eftir húsagerð; einbýlis-
húsum, parhúsum og mis-
munandi stórum raðhús-
um og fjölbýlishúsum.
Allt í allt eru íbúðirnar
sem úthlutað verður 74
talsins. Þar af eru tvær ein-
býlishúsalóðir sem 29 sækj-
ast eftir og 42 vilja sex
íbúðir í þremur parhúsum.
Skíðafærið
harðpakkað
og gott
„Dagurinn í dag er fyrsti skíða-
dagur Akureyringa þvi við
opnum fyrstu lyfturnar í dag.
Skíðafærið er harðpakkað og
gott, ég er búinn að fara
Landsíminn
sjáifur og get mælt með því,"
segir Guðmundur Karl
Jónsson, forstöðu-
maður skíðasvæð-
anna í Hlíðarfjalli.
„Við erum meira en
mánuði fyrr á ferðinni
núení fyrra og það er
auðvitað gleðiefni.
Svo er bara að sjá
hvort snjórinn endist
en það er spáð þokka-
legu veðri um helgina. Við
vonumst auðvitað til að sjá
sem flesta í brekkunum um
helgina. Það er mikill snjór í
bænum og bærinn er kominn í
fallegan jólabúning.
Jólastemningin er eins og hún
gerist best í bænum."
Forseti Alþingis sagði mögulegt að ríkið greiddi formönnum í stjórnarandstöðu óbeint
í gegnum flokkana. Flokkarnir kannast ekki við slíkar greiðslu til formanna.
Steingrímur J. Sigfússon
Laun ídag: 557 þúsund. Laun
eftir hækkun: 776 þúsund.
Meðtalinn þingfararkostnaður og
ferðakostnaður innan kjördæmis.
Össur Skarphéðinsson
Laun i dag: 474 þúsund. Laun
eftir hækkun: 693 þúsund.
Meðtalinn þingfararkostnaður og
ferðakostnaður innan kjördæmis.
Guðjón Arnar Kristjánsson
Laun í dag: 557 þúsund. Laun
eftir hækkun: 776 þúsund.
Meðtalinn þingfararkostnaður og
ferðakostnaður innan kjördæmis.
Stjórnarandstaða
neitar greiðslum
til fnrmanna
Formenn stjórnarandstöðuflokkana þriggja
njóta engra greiðslna frá flokkum sínum, að sögn
framkvæmdastjóra flokkanna.
Forseti Alþingis, Halldór Blöndal, sagði á Ai-
þingi á fimmtudag að betra væri að koma áform-
aðri 220 þúsund króna hækkun á þingfararkaupi
formanna stjómarandstöðuflokka til þeirra fyrir
opnurn tjöldum fremur en óbeint með hærri
framlögum til flokkanna.
Vísbending um aðra flokka
„Það er mjög einfait, Steingrímur fær ekki krónu
frá flokknum - ekki einn aur," svarar Kristín Half-
dórsdóttir, ffamkvæmdastjóri vinstri-grænna, spurð
um greiðslur flokksins til formannsins, Steingríms J.
Sigfússonar. Kristín segir flokkinn heldur ekki greiða
formanninum kostnað vegna starfa hans.
Karl Th. Birgisson, framkvæmdastjóri Samfylk-
ingarinnar, segir formann flokksins, Össur Skarp-
héðinsson, engar greiðslur fá frá flokknum. Formað-
urinn fái heldur ekki greiddan kostnað, til dæmis
vegna aksturs eða skrifstofuhalds.
„Hann er með sína þingskrifstofu og er ekki með
skrifstofu í húsnæði flokksins. Enda er þingið vinnan
hans,“ segir Karl.
Að sögn Margrétar K. Sverrisdóttur, fram-
kvæmdastjóra Frjálslynda flokksins, greiðir flokkur-
inn formanni hvorki laun né kostnað. „Þetta hefur
aldrei komið tals. Enda hefur fjárhagur flokksins ver-
ið með þeim'hætti að menn hafa frekar borið kostn-
að af því að starfa fýrir flokkinn. En þessi orð forseta
Alþingis em kannski vísbending um að hlutirnir séu
með öðmm hætti í öðmm flokkum," segir Margrét.
Skömmtuðu sér 30 milljóna ábót
Reyndar er það svo að fyrir fáum dögum hækk-
„Orð forseta Alþingis eru
kannski vísbending um að
hlutirnir séu með öðrum
hætti íöðrum flokkum."
aði Alþingi einmitt greiðslur til stjórnamálaflokka
um samtals tæpar 30 mifljónir og fá þeir 295 millj-
ónir á næsta ári.
Flokkarnir fá greitt fé úr ríkissjóði í gegnum þrjá
fjárlagafiði. Liðurinn styrkir til stjómmálaflokka var
hækkaður úr 180 í 200 milljónir og liðurinn sér-
fræðileg aðstoð fyrir þingflokka var hækkaður úr
50,4 milljónum í 55 milljónir. í tengslum við kjör-
dæmabreytinguna var bætt inn nýjum lið vegna
kostnaðar sem talið var að flokkarnir myndu verða
fyrir vegna breytingarinnar. Þetta framlag var nú
hækkað úr 35 í 40 milljónir króna.
gar@dv.is
Varaþingmaður vinstri-grænna telur að núverandi alþjóða-
samningar tryggi ekki friðhelgi geimsins
Vill kalla fram umræðu
um vitfirrta vígvæðingu
Hlynur Hallsson, varaþingmað-
ur vinstri-grænna og hvatamaður
að þingsályktunartillögu um af-
vopnun geimsins, segist ekki hafa
miklar áhyggjur af því að íslend-
ingar fari að gerast stórtækir í víg-
væðingu geimsins en segir málið
eigi að síður alvarlegt. „Það er
hægt að trúa mörgu upp á núver-
andi ríkisstjórn en ég held að hún
ráðist seint í geimvarnir. Hins veg-
ar er ríkisstjórn í öðru ríki svo
galin. George Bush hefur nú
dustað rykið af stjörnustríðsáætl-
un Reagans og eyðir í hana nú þeg-
ar 600 milljörðum íslenskra króna
á ári. Ég legg þessa þingsályktunar-
tillögu fram til þess að kalla fram
umræðu um þessa hluti. Þessi
málefni varða alla jarðaríbúa, líka
okkur íslendinga, og þess vegna
eigum við að taka afstöðu."
Hlynur segir að virtir vísinda-
menn um aflan heim hafi hvatt
bandarísk stjórnvöld til þess að
láta af þessari vígvæðingu geims-
ins. „Það segir ef til vill eitthvað að
47 bandarískir nóbelsverðlauna-
hafar í vísindum hafa skorað á
bandarísk stjórnvöld að láta af
þessum áætlunum. Þetta gerir ekk-
ert annað en að auka óstöðugleika
í heiminum. í þessu felst engin
vörn gegn hryðjuverkum, svo
dæmi séu tekin. Við í vinstri-græn-
um látum okkur þetta varða og
okkur finnst að íslendingar eigi að
beita sér á alþjóðlegum vettvangi
gegn þessum áætlunum Banda-
ríkjanna. I núverandi alþjóða-
samningum felst engin vörn þar
sem Bandaríkjamenn myndu rifta
Varaþingmaður sem lætur málefni
geimsins sig varða Hlynur Hallsson berst
gegn vígvæðingu himingeimsins.
þeim þegar þeir eru búnir að þróa
þessi vopn, rétt eins og þeir riftu
ABM-samningnum.“