Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Side 40
40 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003
Fókus DV
«, Litlu munaði að Sherry Byrne tækist að bjarga sér úr klóm nauðgara og morðingja. Ofbeldismaðurinn
var góður vinur fjölskyldunnar.
Lögreglan í Beavercreek í Ohio fékk mörg
símtöl fimmtudaginn 25. mars 1985 um dular-
fullan bíl á hraðbraut í grennd við bæinn. Bíln-
um var lýst þannig að út úr skottinu mætti sjá
hönd sem héldi á pappírssnifsi. „Hjálpið mér!“
stóð á miðanum og athugull vegfarandi sagði
engu líkara en áletrunin væri skrifuð með
varalit. Einn ökumaður skrifaði niður númer
bflsins og lét lögreglu vita. Daginn eftir var
bfleig-
Sérstæð sakamál
*"*"11 kallaður
á lögreglustöðina í Beavercreek og beðinn að
' útskýra málið. Hann sagði þetta hafa verið gert
í gríni. Lögreglan kærði hann fyrir að valda
ótta á götum úti og skipaði honum hætta slík-
um hrekkjtim hið snarasta.
Lýst eftir konu
Á meðan á þessu stóð vakti mannlaus Ford
Escort athygli vegfarenda við Sharon-
villemótelið sem er í grenndinni. Starfsfólk
hafði séð konu stíga út úr bflnum en síðan
hafði enginn séð hana.
Daginn eftir, föstudaginn 26. mars 1985,
fékk lögreglan í smábænum Springdale til-
kynningu um hvarf ungrar konu. Konan hét
Sherry Byrne, 21 árs, og var lýst sem grannvax-
inni og glaðlegri konu. Hún hafði yfirgefið
heimili sitt daginn áður og sfðan hafði ekkert
til hennar spurst.
Eiginmaður Sherry sagði þau hjónin hafa
verið sátt. Hann hafði talað við hana síðla
fimmtudagsins og hún sagst koma heim um
kvöldið. Kvöldið leið og ekkert bólaði á Sherry.
Á endanum leitaði eiginmaðurinn til lögreglu
og sagði konu sína týnda. Lögregla, ættingjar
og vinir Sherry leituðu hennar alla helgina en
án árangurs. í málum sem þessum fellur oftast
grunur á eiginmanninn en lögregla taldi það
ekki eiga við í þessu tilviki. Eiginmaðurinn var
frávita af áhyggjum. Hann sagði konu sína
hafa ætlað að heimsækja vinafólk sem var statt
á móteli til að fagna því að vinkonan væri loks
með barni.
A Saklaus hrekkur
Rannsóknarlögreglumenn í Fairborn, sem
stýrðu rannsókn málsins, komust óvænt á
sporið þegar þeir fundu út að góðvinur Sherry
og eiginmanns hennar, David Brewer, 26 ára,
hafði verið kallaður á lögreglustöðina í Bea-
vercreek vegna hrekkjabragðs. Þetta gerðist
Ung og glöð Sherry Byrne var21 árs þegarhún var
myrt. Hún var hamingjusamlega gift og vakti athygli fyrir
glaðlegtyfirbragð.
Hróp á hjálp Afstakri útsjónarsemi tókst Sherry að hripa neyðarkall með varalit. Vegfarendur áttuðu sig ekki á alvöru málsins.
Brewer kveðst hafa stöðvað
bílinn og reynt að semja við
Sherry um að þegja yfír
málinu. Hún hafí neitað og
þá hafí hann gert tilraun til
að kyrkja hana.
daginn eftir að Sherry hvarf. Fairborn-lögregl-
an hafði þá fengið upplýsingar frá kollegum í
Beavercreek. Uppátækið hafði Brewer skýrt
svo: Hann hafði hitt unga stúlku og reykt með
henni kannabis. Stúlkan, sem hann mundi
ekki hvað hét, hafði sfðan krafist þess að fá að
leggjast í skottið á bflnum og veifa hjálpar-
beiðninni að vegfarendum.
Brewer gerði þau mistök að segja lögregl-
unni í Fairborn ósatt enda datt honum ekki í
hug að þeir hefðu aflað upplýsinga í Bea-
vercreek.
Þá rifjaðist upp fyrir lögreglumönnum að
eiginmaður Sherry hafði einmitt sagt að hún
ætti stefnumót við par á móteli. Við eftir-
grennslan kom í Ijós að vinafólkið hét Brewer.
Brewer hafnaði þessu og sagði ekkert slíkt
stefnumót hafa verið ákveðið. Kona sín væri
þar að auki ekki með barni. Lögreglumönnum
þótti frásögn Brewers heldur götótt; einkum
það að hann skyldi ekki muna nafn ungu
stúlkunnar. Ekki síst í ljósi þess að þau hefðu
varið stórum hluta dagsins saman og hann
ekið með hana í skottinu langar leiðir.
Með lífsmarki
Yfirheyrslumar héldu áfram og Brewer
neitaði aðild að hvarfi Sherry. Yfirheyrslan
stóð linnulaust í sjö klukkustundir án þess að
Brewer játaði. Þá lásu lögreglumenn yfir hon-
um hvaða rétt hann hefði, buðu honum kaffi
og leyfðu honum að fara á salerni. Að því
loknu brotnaði Brewer saman og játaði.
Brewer sagðist lengi hafa verið hrifinn af
Sherry. Hann hefði margoft reynt við hana en
hún hefði alltaf hafnað honum. Fimmtudag-
inn örlagaríka kvaðst hann hafa hringt í Sherry
og beðið hana að hitta sig og eiginkonu sína á
tilteknu móteli. Þau ættu von á barni og því
væri tilefni til að fagna. Sherry kom á staðinn
eins og um var rætt en þá var Brewer að sjálf-
sögðu einn. Hann sagði þau hafa haft kynmök
á mótelinu en hún hefði sagt eftir á að hún
myndi segja eiginmanni sínum ffá öllu saman.
í málum sem þessum fellur
oftast grunur á eiginmann-
inn en logregfa taldiþað
ekki eiga við í þessu tilviki.
Eiginmaðurinn varfrávita
afáhyggjum.
„Það skal aldrei verða," hugsaði Brewer og
skipaði Sherry að leggjast þegar í stað í farang-
ursrými bflsins. Hann ók um nágrenni Bea-
vercreek góða stund og á meðan tókst Sherry
að hripa með varalit á blaðsnifsi sem hún
veifaði síðan út um skottið í þeirri von að ein-
hver tæki eftir henni. Því miður sáu margir
ökumenn hjálparbeiðnina en enginn áttaði sig
á alvöru málsins.
Brewer kveðst hafa stöðvað bflinn og reynt
að semja við Sherry um að þegja yfir málinu.
Hún hafi neitað og þá hafi hann gert tilraun til
að kyrkja hana. Hún barðist fyrir lífi sínu og
greip hann þá til búrhnffs, sem hann hafði
alltaf í bfl sínum, og stakk hana margoft í
brjóstið. Sherry var enn með lífsmarki þegar
hann kom henni aftur fyrir í skottinu. Hann ók
sem leið lá að geymsluhúsnæði í grennd við
Beávercreek og fleygði henni í litla geymslu
sem hann hafði á leigu. Sherry var enn á lífi.
Spurður hvort hugsanlegt væri að Sherry
væri enn á lífi kvað Brewer það mögulegt. Lög-
regla og sjúkralið þusti á vettvang en við þeim
blasti skelfileg sjón. Sherry Byrne hafði aug-
ljóslega verið látin í nokkra daga. Við rannsókn
á líkinu kom í ljós að Sherry hafði augljóslega
barist við morðingja sinn, hún var öll marin og
blá, og henni hafði án vafa verið nauðgað.
Brewer var með alls kyns hundakúnstir í
réttarhöldunum Hann bar því meðal annars
við að hann hefði myrt Sherry í sjálfsvörn. Frá-
sögnin þótti afar ótrúverðug og svo fór að
David Brewer var sakfelldur fyrir morð að yfir-
lögðu ráði. Hann var dæmdur til dauða.
Dómnum var áfrýjað, en án árangurs fyrir
Brewer. Hann var tekinn af lífi með eitur-
sprautu í aprfl á þessu ári.
arndis@dv.is