Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Qupperneq 55

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2003, Qupperneq 55
DV Síðast en ekki síst LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2003 SS Beðiö eítip eigin ævisögu Meðal þeirra bóka sem skolar á land í bókaflóði þessara jóla er Séra Baldur, sem er saga sr. Baldurs Vil- helmssonar, fyrrum prófasts í Vatns- firði. Sagan er skráð af Hlyni Þór Magnússyni á ísafirði, gömlum vini og samkennara hins magnaða kenni- manns vestur við Djúp. „Það er búið að liggja í mér í um tíu ár að segja ævisöguna mína en ég hef alltaf gefið afsvar. En síðan sagði ég já við hann Hlyn minn Þór og þá varð auðvitað að standa við það. Þú veist það kannski ekki, kæri ungi blaðamaður, að já er eitt hættulegasta orð tung- unnar. Maður verður að gangast við eigin orðum," sagði Baldur þegar við slógum á þráðinn til hans í gær. „Það eru alltof margir að skrifa ævisögur til að upphefja sjálfa sig.en hafa engu frá að segja,“ segir sr. Baldur, sem kveðst bíða spenntur eftir ýmsum þeirra bóka sem koma út fyrir þessi jól. Nefnir þar m.a. ævi- sögu Sverris Hermannssonar. En ekki síður er Baldri það tilhlökkun- arefni að lesa eigin sögu. „Við Hlyn- ur unnum þetta mest saman í gegn- um síma og síðan hafði hann ein- hverja pappíra við höndina. Höfum líklega ekki hist nema þrisvar sinurn eða svo. Ég las aldrei prófarkir að þessari bók, né heldur er hún komin til mfn enn þá.“ Áratugir eru síðan Skagfirðingur- inn Baldur settist að vestur í Vatns- firði og þar býr hann enn, þó svo að hann hafi látið af prestskap fyrir nokkrum árum. Byggð á þessum slóðum hefur átt undir högg að sækja síðustu árin en kostir eru vissulega til staðar; svo sem útvarp- ið, síminn og ísafjarðarpósturinn kemur á vissum dögum. En ekki þó oftar en svo að koma hans er Baldri ævinlega tilhlökkunarefni. „Hér höfum við síma, útvarp og póst. Og bókasafn á ísafirði. Hún Biskupinn og sr. Baldur „Já er eitt hættulegasta orð tungunnar,“segir Vatnsfirðingurinn. Þórdís mín á safninu finnur bæk- unum sem ég á orðið allar á hljóð- urnar alltaf til fyrir mig og ég ligg í snældum," segir sr. Baldur. bókum hér heima, svo sem fornsög- sigbogi@dv.is • Gríðarlegur taugatitringur hefur verið á Alþingi í jólamán- uðinum. ör- yrkjar og línu- ívilnun hafa valdið miklum deilum. Nýj- asta nýtt er svo kjarabót topp- anna, þeirra Davíðs Odds- sonar, össurar Skarphéðinsson- ar, Steingríms J. Sigfússonar og Guðjóns Amar Kristjánssonar. Athygli vakti á fimmtudag, þeg- ar ftumvarpið umdeilda var lagt fram, að illa gekk að ná í stjórn- arandstöðuformennina þrjá. Um skeið gekk sú saga að sá síð- astnefndi, sem er fyrrverandi skipstjóri, hefði skroppið á sjó- inn. í ljós kom þó að Guðjón liggur einfaldlega í sólbaði á Kanaríeyjum og svarar ekki sím- anum þegar blaðamenn hringja... • Vefsíðan mp3.is var opnuð í vikunni með pomp og pragt. Síðan á að vera athvarf fyrir tón- listarmenn sem vilja koma sér á framfæri en þar geta þeir komið lögum sínum fyrir svo fólk geti náð í þau án endurgjalds. Síðan fer greinilega vel af stað því þar er nú hægt að ná í lög með hin- um sálugu Utangarðsmönnum sem aldrei hafa verið gefin út. Um er að ræða tvö lög sem tek- in voru upp í Stúdíó Tóntækni árið 1980. Þetta var í fyrsta skip- ti sem Utangarðsmenn fóru í stúdíó en fljótlega eftir það hófst ferillinn hjá Bubba Morthens og félögum fyrir al- vöru... • ÁEg- ilsstöðum hefúr ver- ið mann- margt um helgar þegar meðal annarra virkjunar- meiin frá Kárahnjúkum koma í bæinn og gera sér glaðan dag. Auglýst hef- ur verið ball með Stuðmönnum um helgina og æda má að virkj- unarstarfsmenn fjölmenni. I>að hefur hins vegar heyrst að með- al annars ítalamir leggi ekki í fjörið af ótta við barsmíðar hejmamanna sem hafa verið herskáir síðustu helgar. Fregnir herma að þeir séu búnir að fá nóg af að láta lúskra á sér og um helgar fara þeir í auknum mæli til Akureyrar eða einfaldlega til Reykjavíkur. Veitingamenn á Egilsstöðum verða þvf af góðum bita fyrir vikið ef fram heldur sem horfir... Kynntu þér tækni- nýjungarnar rictiue Ui5Íon microfil ,. mrn. rurr PIXEL Pt cessing [COMPONEN^IDEO _. -~JW Leiðandi í DVD- og sjónvarpstækninni iífi Einar Farestveít & Co.hf, Borgartúni 28 • Símar: 520 7901 & 520 7900 • www.ef.is TOSHIBA Nú rætist draumurinn...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.