Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Page 26
26 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003
Sport DV
Hildur allt í
öllu hjá KR
Hildur Sigurðardóttir
hefur verið allt í öllu í KR-
liðinu það sem af er vetri.
Hildur hefur leitt liðið í
stigum í 4 leikjum (af 10), í
fráköstum í 9 leikjum, í
stoðsendingum í 7 leikjum
og í hæsta framlagi í 6
leikjum. Meðaltöl Hildar í
þessum tíu deildarleikjum
eru líka afar glæsileg; hún
hefúr skorað 19,7 stig, tekið
14,1 frákast, gefið 5,4
stoðsendingar og stolið 3,5
boltum að meðaltali í
hverjum leik.
Rögnvaldur
og Erlingur
dæma leikinn
Það verða þeir
Rögnvaldur Hreiðarsson og
Erlingur Snær Erlingsson
sem dæma úrslitaleik
Keflavíkur og KR í dag en
leikurinn hefst klukkan
14.15 ogfer fram í
Smáranum í Kópavogi.
Þetta er annað árið í röð
sem úrslitaleikurinn fer
fram síðasta laugardaginn
fyrir jól og enn fremur í
annað sinn sem hann er
sýndur beint í Sjónvarpinu.
Engin spilað
meira en í 27
mínútur í leik
Hjörtur Harðarson,
þjálfari Keflavíkurliðsins,
dreifir spilatíma jafnt á
leikmenn sína, sem sést vel
á því að í tíu deildarleikjum
liðsins í vetur hefur enginn
leikmaður leikið í meira en
27 mínútur að meðaltali.
Birna Valgarðsdóttir hefur
leikið mest, í 26,8 mínútur í
leik, en sex aðrir leikmenn
liðsins hafa leikið í meira
en 20 mínútur að meðaltali
og alls hafa tíu leikmenn
Keflavíkur leikið í meira en
17 mínútur að meðaltali.
Styttist óðum
í 30. titilinn
Keflavík hefur nú unnið
28 titla f kvennakörfunni og
því styttist óðum í þann 30.
hjá félaginu. Keflavík hefur
unnið íslandsmeistara-
titilinn tíu sinnum, bikar-
keppnina tíu sinnum, orðið
deildarmeistarar í sjö skipti
og vann svo fyrirtækjabik-
arinn í fyrsta sinn f fyrra.
Fornfrægir erkifjendur í kvennakörfuboltanum, Keflavík og KR, leika til úrslita
um Hópbílabikarinn í Smáranum á laugardaginn. Þessi lið hafa unnið 21 af síðustu
25 titlum í boði í kvennkörfuboltanum frá árinu 1993.
36 úrslitaleikir á
aðeins ellefu úrum
Keflavík og KR hafa spilað ófáa
úrslitaleikina um titla kvenna-
körfunnar á síðustu árum. AIls hafa
liðin leikið 37 úrslitaleiki í úrslita-
keppni íslandsmóts, bikarkeppni
og í fyrirtækjabikar þar af 36 þeirra
á síðustu ellefu árunt.
Þegar úrslitaleikir síðustu ára
eru skoðaðir kemur f ljós að það
eru 56 úrslitaleikir og 12 ár síðan
hvorugt liðið lék til úrslita um titil.
Sá leikur var bikarúrslitaleikurinn
milli ÍR og IS árið 1991 en síðan
hafa annaðhvort Keflavík eða KR
spilað til úrslita og margoft mætt
hvort öðru. Það kemur því eflaust
fáum á óvart að liðin skuli mætast í
dag í fyrsta úrslitaleik tímabilsins,
en úrslitaleikur Hópbílabikars
kvenna fer fram klukkan 14.15 í
Smáranum í dag. Liðin unnu bæði
undanúrslitaleikinn á heimavelli;
Keflavík vann öruggan 27 stiga
sigur á toppliði ÍS, 68-41, og KR
vann botnlið Grindavíkur með 30
stigum, 88-58.
Það félag sem vinnur leikinn í
dag verður enn fremur fyrsta
félagið til að vinna fyrirtækjabikar
kvenna í annað sinn en KR eða
Keflavík hafa unnið 21 af síðustu 25
titlum í boði frá árinu 1993.
Keflavík hefur unnið 14 þeirra en
KR sjö.
KR vann fyrsta fyrirtækjabikar
kvenna árið 2000; lagði þá Keflavík
að velli í úrslitaleik, 48-34. Keflavík
tapaði fyrstu tveimur úrslitaleikjum
sínum í fyrirtækjabikarnum fyrir KR
og Grindavík en vann síðan í fyrsta
sinn í fyrra þegar liðið lagði KR að
velli í úrslitaleik, 80-54, sem er
stærsti sigur liðs í þessum
úrslitaleik frá upphafi.
ooj&dv.is
Núverandi meistarar Keflavik er handhafí bæöi Islandsmeistarabikarsins og Fyrirtækjabikarsins ikvennakörfunni og fær tækifæri til að verja
annan þeirra i dag þegar liöið mætir KR i úrslitaleik Hópbilabikarsins. Hér sjást þær fagna Islandsmeistaratitlinum i vor.
ÚRSLITALEIKIRNIR 36:
Keflavík og KR hafa spilað 36 úrslitaleiki um titil frá 1993, þ.e. bikarúrslitaleik, úrslitaleik í fyrir- tækjabikar eða úrslitaleiki í úrslita- einvígi um (slandsmeistaratitil.
Úrslitaleikir liðanna frá 1993:
1993
Bikarúrslit Kef.-KR 58-54
Úrslital. (slandsmóts Kef.-KR 3-0
1994 Úrslital. (slandsmóts Kef.-KR 3-2
1995
Bikarúrslit Kef.-KR 61-42
1996 Úrslitak. fslandsmóts Kef.-KR 3-1
1997
Bikarúrslit Kef.-KR 66-63
1998 Úrslitak. fslandsmóts Kef.-KR 3-1
1999 Úrslitak. fslandsmóts KR-Kef. 3-0
2000 Úrslitak. fslandsmóts Kef.-KR 3-2
2001
Bikarúrslit KR-Kef. 76-58
Úrslitak. (slandsmóts KR-Kef. 3-0
Fyrirtækjabikar KR-Kef. 48-34
2002
Enginn
2003 Úrslitak. (slandsmóts Kef.-KR 3-0
Fyrirtækjabikar 2004 Kef.-KR 80-54
Fyrirtækjabikar Kef.-KR i dag
Samantekt:
Úrslitak. fslandsmóts 30 leikir
Keflavík 22 sigrar
KR 18 sigrar
Bikarúrslltalelklr 4 leikir
Keflavlk 3 sigrar
KR 1 sigur
Úrslitaleikur f fyrirtækjab. 2 leikir
Keflavík 1 sigur
KR 1 sigur
Samtals 36 leikir
Keflavik 22 sigrar
KR 14 sigrar
ooj
MIKILVÆG! ERLU:
Erla Þorsteinsdóttir hefur misst úr
þrjá deildarleiki með Keflavlk í vetur
og hafa tveir þeirra tapast. Keflavik
hefur hins vegar unnið 6 af hinum
sjö þar sem Erla hefur með.
Tölfræði Keflavíkur gegn KR í
vetur, með og án Erlu:
Með Erlu An Erlu
1 Leikir 1
1 Sigrar 0
72 Stig skoruö 69
59 Stig fengin á tig 79
36,9% Skotnýting 35,3%
25,9% Skotnýting mótherja
39,7%
53% Hlutfall frákasta 50%
14 Sóknarfráköst 12
24 Stoðsendingar 20
22 Tapaðir boltar 19
7 Varin skot 4
2 Varin skot mótherja 6
12 Stolnir boltar 12
12 Villur liðs 21
20 Villur mótherja 22
Erla skiptir miklu máli
Keflavík er að flestra mati með
best mannaða liðið í íslenskum
kvennakörfubolta í dag enda með
níu landsliðsmenn innan sinna
raða. Það er þó ljóst að liðið treystir
eftir sem áður mest á einn leikmann
- miðherjann Erlu Þorsteinsdóttur.
Erla hefur misst úr þrjá leiki í
vetur; þann fyrsta vegna kjálkabrots
en hina tvo vegna lungnabólgu.
Fjarvera Erlu hefur reynst liðinu
erfið og tveir af þessum þremur
leikjum hafa tapast.
Keflavík mætir liði KR á morgun í
þriðja sinn í vetur. Fyrsta leikinn lék
Keflavík án Erlu gegn Kanalausu KR-
liði og tapaði, 69-79 í DHL-höllinni.
Seinni leikinn lék liðið með Erlu
gegn KR í Keflavík en KR var
þákomið með bandarískan
leikmann. Þann leik vann Keflavík,
72-59, en sá leikur stóð jafnt í
upphafi fjórða leikhluta.
Erla skoraði alls 32 stig og tók 7
fráköst á þeim 25 mínútum sem hún
spilaði gegn ICR og KR-liðið réð
ekkert við hana inni í teig.
Tölfræði Erlu, þrátt fyrir þessar
hrakfarir hennar í vetur, er samt afar
glæsUeg. Hún hefur skorað 16,6 stig
að meðaltali á þeim 20,3 mínútum
sem hún hefur spilað. Erla hefur auk
þess rifið niður 6,1 frákast og hitt úr
56% skota sinna og enginn
Teikmaður deildarinnar hefur hitt
betur eða skorað örar það sem af er
tímabilinu. Það gæti því orðið
þrautin þyngri fyrir KR að stoppa
þennan snjalla miðherja í leiknum í
dag. ooj@dv.is
16,3 stig á 20,3 mínútum Erla
Þorsteinsdóttir hefur verið sterk undir
körfunni með Keflavikurliðinu í vetur.