Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Page 28
28 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 Fókus UV Svokallaðir „stalkerar" eru þekkt fyrirbrigði í Bandaríkjunum og hegðun þeirra hefur orðið mönnum efni í rannsóknir, bækur, kvikmyndir, sjónvarpsþætti og leikrit. Þar í landi eru þeir skilgreindir sem einstaklingar sem ítrekað og þrá- faldlega elta eða áreita aðra manneskju. Efþær tölur um þessar ofsóknir í Bandaríkjunum eru heimfærðar til íslands má gera ráð fyrir að yfirþúsund einstaklingar verði fyrir barðinu á slíku. Frægasta dæmið um þetta er af söngkonunni Björk Guðmundsdóttur sem fékk senda brennisteinssýru og sprengibúnað í pósti frá rugluðum aðdáanda sínum. Aíslensku er ekki til orð yfir gerendurna þótt at- höfnin hafi verið kölluð ýmsum nöfnum á borð við ofsóknir, áreiti eða einelti. Þótt orð- ið vanti ber ekki að túlka það svo að þessi hópur þrífist ekki hér - ofsóknir af þessu tagi eru þvert á móti algengari en flesta grunar. Það versta við allt saman: Þeir geta lagt líf fórnarlamba sinna í rúst og alltaf dansað réttum megin við lögin. Málin flokkuð sem hótanir eða ónæði Talið er að 1,4 milljónir Bandaríkjamanna lendi í slíkum ofsóknum fyrr eða síðar á æv- inni. Ef miðað er við sama hlutfall má gera ráð fyrir að yfir þúsund íslendingar eigi eftir að glíma við vandamálið. „Við erum stöðugt að sinna svona málum,“ segir Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn í Reykjavík, sem segir málin oft mjög erfið viðfangs. „Friðsamir borgarar úti í bæ gera sér kannski ekki grein fyrir því en margir verða fyrir talsverðu ónæði. Þessi mál eru flokkuð sem annað hvort „hótan- ir“ eða einfaldlega „ónæði“ hér inni á borði hjá okkur. Algengast er að fólk verði fyrir ónæði með símhringingum. Einnig er eitthvað um bréfaskriftir og svo jafn- vel heimsóknir þótt þær séu sem betur fer ekki algengar." Sigurbjörn segir algengast að einhver ákveðinn liggi undir grun þótt til sé í dæminu að svo virðist sem fórnarlömb- in hafi verið valin nánast af handahófi. Benda fólki á að kæra Spurður um hvað fólk eigi að taka til bragðs verði það fyrir ofsóknum segir Sigurbjörn að fyrsta skrefið sé að láta lög- regluna vita þótt Ijóst sé að aðeins lítill hluti þessara mála komi fyrir sjónir lög- reglu. „Við bendum fólki yfirleitt á að kæra og reynum síðan að flnna út hver það er sem ónáðar. Við höfum ýmsar aðferðir til þess. Símtöl, tölvupóst og annað er yfir- leitt hægt að rekja en það þarf að hafa tölu- vert fyrir því með úrskurðum og öðru slíku og það er hægara sagt en gert. Þegar fólk telur sig vita hver er að verki vill það oft frekar af- greiða málið sjálft og óskar ekki eftir afskiptum lögreglu." Sigurbjörn segist telja að tilgangur þeirra sem ofsækja aðra sé frekar að hræða fólk en beinlínis að vinna því líkamlegt tjón. „Ef fólk lendir í því kemur það reyndar hingað inn á borð til okkar sem líkamsmeiðingar svo það er ekki gott að segja til um hversu algengt slíkt er.“ Nálgunarbann ekki algengt Til þess að fá nálgunarbann á íslandi þurfa ítrekuð brot að hafa átt sér stað og sá sem reynir að fá slíkt bann í gegn verður að geta sýnt fram á að gerandinn komi til með að halda ónæðinu áfram. „Það er eins og gefur að skilja mjög erfitt," segir Sigurbjörn. „Framkvæmdin er í ofanálag mjög þung í vöfum. Það þarf að senda hinum grunaða boðun til þess að kynna kröfuna fyr- Að því loknu fór hann heim til sín, settist niður allsnakinn, mál- aði eldingar á andlit sitt, setti tónlist með Björk á fóninn og skaut sig í höfuðið með 38 kalibera skammbyssu. Hvort tveggja tók hann upp á myndband og sagð- ist þar ekki vita hvort sýran myndi valda Björk „líkamslýtum, alvarlegum meiðslum eðadauða."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.