Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Síða 29
BV Fókus LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 29 ir honum. Hann fær svo tveggja sólarhringa frest til þess að skila inn skriflegri greinar- gerð og að því loknu þarf að kalla hann fyr- ir á ný. Ef gerandinn sér til þess að ekki sé hægt að ná í hann er hægara sagt en gert að koma banninu á.“ Klæddi sig úr fötunum, málaði sig og skaut sig Þrátt fyrir að margir haldi annað er þekkt fólk ekki lík- legra til að verða fyrir of- sóknum en aðrir. Þessi misskilningur gæti komið til af því að þegar „venjulegt" fólk á í hlut er hætt við að málið komist ekki á forsíður blaða og í aðalfréttatíma sjónvarps- stöðva. Þekktasti íslendingur fyrr og síðar, Björk Guðmundsdóttir, hefur þó í tvígang verið ofsótt af aðdáendum og í báðum tilvikum enduðu ofsóknirnar með ósköp- um. Árið 1995 stytti austurrískur aðdáandi Bjarkar sér aldur eftir að hafa ítrekað reynt að ná tali af söngkonunni en ekki tekist. Að- eins ári síðar, í september árið 1996, sendi 21 árs meindýraeyðir henni brennisteinssýru og sprengibúnað í pósti. Að því loknu fór hann heim til sín, settist niður allsnakinn, málaði eldingar á and- lit sitt, setti tónlist með Björk á fóninn og skaut sig í höfuðið með 38 kalibera skammbyssu. Hvort tveggja tók hann upp á myndband og sagðist þar ekki vita hvort sýran myndi valda Björk „líkams- lýtum, alvarlegum meiðslum eða dauða". Manninum, sem hét Ricardo Lopez og var búsettur í Flórída, tókst ekki ætlunarverk sitt því lögreglan fann lík hans, og jafnframt myndböndin, áður en pakkinn barst til Bjark- ar. Hann fannst á pósthúsi í suðurhluta London og var fargað. Lopez hafði lengi verið aðdáandi Bjarkar og sagðist á myndbandinu hafa verið „gagntekinn" af henni. Þegar hún tók saman við hinn þeldökka Goldie sagði Lopez það „óviðunandi" og að hann yrði „einfaldlega að drepa hana“. Lopez var ekki á sakaskrá og ekki var vitað hvort hann hafði átt við sálræn vandamál að strfða. Ofsóknir á Netinu Netvæðingin hefur gert trufluðum einstaklingum það auðveldara að ofsækja aðra, ekki síst í fámenninu á íslandi. Með einum smelli er hægt að komast að nánast öllu um alla og bloggsíður þar sem fólk lýsir öllum sín- um gerðum spretta upp eins og gorkúlur. Það er svo hægur leikur að ofsækja fólk með tölvupóstsendingum og á spjallrásum. Þessar „tækniofsóknir" hafa verið nefndar „cyberstalking" og samkvæmt rannsóknum lögreglu í New York nýttu yfir 40% „stalkera" sér tæknina til að hrella fórn- arlömb sín. Þótt fyrirbærið hljómi sakleysislega hefur það sýnt sig að þessi tegund ofsókna vindur oft upp á sig. Oft hefjast þær þegar fórnarlambið reynir að slíta „sambandi" sem það hefur átt í á Netinu. Eina leiðin til að komast algjörlega hjá því að lenda í ofsókn- um á Netinu er sú að fara ekki á Netið. Þar sem fæstir eru tilbúnir í það má nefna að helstu ráð sérfræðinga eru að nota ekki eigið nafn sem notendanafn, sleppa öllu daðri á Netinu og að gefa ekki upp nafn, heimilisfang eða starf í netspjalli. Framhald á næstu síðu Sá íyriwandi jr.......- sa „Stalkerum" hefur stundum verið skipt í þrjá meginflokka. Meginreglan hefur reynst vera sú að þeir eru hættulegri eftir þvísem fórnarlambið þekktiþá minna áður en áreitið hófst. Fyrsti hópurinn, og jafn- framt sá stærsti, inni- heldur einstaklinga sem hafa átt í nánu ástarsam- bandi við þolendurna, neita að sætta sig við orðinn hlut og eru sann- færðir um að makhm fyrrverandi elski þá enn- þá. Rannsóknir hafa sýnt að þessir aðilar hafa yfir- leitt verið ráðandi aðil- inn í ástarsambandinu. f flokki tvö er að finna ein- staklinga sem hafa átt f mjög litlum eða engum samskipt- um við fómarlambið. Þeir eiga oft við geðræn vandamál að stríða og eiga það sameig- inlegt að trúa því að þeir teng- ist fórnarlambinu á einhvem hátt, halda jafnvel að þeir eigi í ástarsambandi við mann- eskjuna, svo dæmi sé tekið. Mjög algengt er að þeir hafi mátt þola andlegar og/eða lfkamlegar misþyrmingar í æsku og hafi lélega sjálfs- mynd. Þriðji flokkurinn inniheldur þá einstaklinga sem em ákveðnir í að ná fram hefnd- inn vegna einhvers. Reiði þeirra í garð fómarlambanna getur orðið til af ýmsum or- sökum en oft em þær ómerki- legar eða jafnvel ímyndaðar. Stjómmálamenn þirrfa oft að eiga við einstaklinga úr þess- um flokki. Einstaklingar úr fyrstu tveimur flokkunum geta með tímanum falliö í þann þriðja af ýmsum orsök- um, til dæmis ef fómarlömb þeirra fá dæmt á þá nálgunar- bann eða gifta sig. heilanum?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.