Dagblaðið - 12.05.1978, Síða 31
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978.
Óvíst hvort Jefferson
Starship leikur á
Hróarskekhihátíðimi
—Aöalnúmerið verðurBob Mariey& The Wailers
• Aöalskemmtikraftarnir á Roskilde-festivalen verða Bob Marley & The
Wailers. Listahátiðarnefndinni fslenzku ku hafa staðið hljómsveitin til boða
á hátfðina hér á landi. Hins vegar mun erfitt að flytja slikan mann sem
Marley hingað inn vegna stöðugrar marijuananeyzlu hans.
Þó að nú séu aðeins tæplega tveii
mán. þar til popphátiðin mikla við
Hróarskeldu — Roskilde-fest'ivalen —
verður haldin er dagskráin ekki enn
endanlega ákveðin. Ljóst er þó að Bob
Marley & The Wailers verður aðal-
hljómsveit hátíðarinnar, en allt er í
tvísýnu með næststærsta nafnið.
Roskilde-festivalen er árlegur
viðburður og nýtur álits víða um heim
sem góð popphátíð. Hún stendur yfir i
þrjá daga, 30. júní til 2. júlí og koma
fyrir fimmtíu hljómsveitir og skemmti
kraftar þar fram. Auk Bob Marley &
The Wailers, sem munu leika laugar-
daginn 1. júlí, má taka sem dæmi um
aðra skemmtikrafta Rory Gallagher,
Elvis Costello, Davo Swarbrick
fiðluleikara Fairport Convention,
■Sebastian hinn norska og fjöldann
allan annan af rokkurum og þjóðlaga-
flytjendum frá Danmörku, Noregi,
Finnlandi, Póllandi, Bandarikjunum
og víðar.
Aðstandendum Roskilde-festivalen
stendur til boða að fá bandarisku
hljómsveitina Jefferson Starship til að
koma fram á siðasta degi hátíðarinnar.
Hljómsveitin er einmitt á ferðalagi um
Evrópu um þetta leyti. Hins vegar
þykir hún nokkuð dýr, svo dýr að
menn eru mjög hikandi að fastsetja sér
hana. Fjármálaáætlun hátíðarinnar
hljóðar upp á 1.8 milljón danskra
króna eða sem næst 81 milljón
islenzkra króna. Þriðjungur þessarar
upphæðar fer til kaupgreiðslna hljóm-
listarmanna. Til þess að þetta dæmi
gangi upp þurfa 16.500 manns að
borga sig inn á hátíðina.
Úr AKTUELT
Á hljómleikum Richie Blackmores íJapan:
A ðdáandi kramdist til dauða
Bee Gees i leikbúningum sinum i Sgt. Peppers ásamt
myndarinnar og útgefanda þeirra, Robert Stigwood.
framleiðanda
Kvikmyndatónlistin:
Nítján ára gömul stúlka kramdist til
dauða á hljómleikum Ritchie
Blackmore í Sapporo i Japan nú á
dögunum. Blackmore og hljómsveit
hans, Rainbow, voru ekki einu sinni
byrjuð að spila þegar sjö þúsund
aðdáendur ruddust að sviðinu. Þriggja
metra bil átti að vera milli þess og
áhorfendanna en það fylltist að sjálf-
sögðu strax. Tiu til fimmtán manns
voru fluttir á spítala vegna
troðningsins.
Að sögn framkvæmdastjóra
Ritchie Blackmores vissi hljómsveitin
og starfslið hennar ekkert um dauða
stúlkunnar fyrr en allt fylltist af lög-
reglumönnum baksviðs um það bil er
hljómleikamir voru hálfnaðir. Hljóm-
sveitin var beðin um að ljúka hljóm-
leikunum til að forðast uppþot í áhorf-
endaskaranum.
„Þetta var sá albrjálaðasti áhorf-
endaskari sem ég hef séð fyrr og
siðar,” sagði framkvæmdastjórinn,
Bruce Payne, í viðtali við músíkblaðið
Rolling Stone.
„Við hættum við hljómleikana
kvöldið eftir og það sem eftir var
ferðarinnar umJapan varsvokrökkt
af lögreglumönnum á hljómleikunum,
að ég held helzt að þeir hafi verið i
meirihluta.” 0r rolling stone.
Plötur örva aðsóknina
Svo virðist sem Debby Boone hafi
gerzt brautryðjandi í nýrri grein
plötuútgáfunnar er hún söng met-
sölulagið sitt, You Light Up My
Life, inn á plötu. Það er tekið úr
samnefndri kvikmynd og var gefið
út áður en myndin var frumsýnd.
Ekki þarf að spyrja að því að titil-
lagið virkaði sem hrein og klár
auglýsingfyrir myndina.
Robert Stigwood Organisation
lék sama leikinn með Bee Gees-lagið
How Deep Is Your Love. Það var
sett á markað nokkrum vikum áður
en myndin Saturday Night Fever
var sýnd. RSO ætlar síðan að endur-
taka þetta ágæta augiýsingabragð
með þvi að gefa út lag úr bíó-
myndinni Sgt. Peppers Lonely
Heart Club Band áður en hún
verður frumsýnd í Bandaríkjunum í
júlí næstkomandi. Ekki hefur enn
heyrzt hvaða lag verður fyrir
valinu en alla vega verður það eitt af
tuttugu lögum eftir Beatles sem
sungin eru og leikin i myndinni.
Úr US.
Mini árg. ’77, ekinn aðeins 8 þúsund km, sem nýr bíll. Til sýnis og
sölu að Hvannhólum 8, Kópavogi föstudag og laugardag. Upplýsingar
I sima 42276 kl. 19-22.
Auglýsing um breytt
símunúmer lögreglunnar í
Grindavík
Meö 1
endas'
JwuWcryiUI
BANKASTRÆTI8
s ON mm A
o q o
Ð Q
o E3 .«M|
■
13 o O o O
Q 1fip BBB ca 3BP O
y