Dagblaðið - 28.08.1978, Qupperneq 1
4. ÁRG. — MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1978 —187. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI27022.
„Hélt þið væruð
komnir að rukka
fyrir auglýsingu
— sagði Guðmundur Jóhannsson, Miðbraut 33, Selt jarnarnesi,
sem hreppti heimsreisuna íáskrifendaleik Dagblaðsins
„Ja, satt að segja, þá hélt ég að
þessir þrir vigalegu fulltrúar Dag-
blaðsins væru kornnir til að innheimta
hjá mér smáauglýsingareikning. Við
vorum nefnilega að selja kjölturakka
með auglýsingu i blaðinu,” sagði
Guðmundur Jóhannsson , vinnuvéla-
eigandi, Miðbraut 33, Seltjamarnesi,
eftir að Ijóst varð að hann og kona
hans, Magnea Jónsdóttir, hreppa
ævintýraferðina umhverfis hnöttinn i
áskrifendaleik Dagblaðsins.
Dregið var fyrir helgina og kom
nafn Guðmundar þá upp. „Við höfum
mikið hugsað um þessa ótrúlegu ferð
núna um helgina,” sögðu þau i gær.
„Við reynum að fara í vetur og veljum
þá sem allra hagstæðastan tima til
Sveinn R. Eyjólfsson framkvæmdastjóri DB afhendir Guðmundi Jóhannssyni
ávisun á farmiöa og önnur gögn til að takast á hendur heimsreisuna miklu.
DB-mynd Arí.
fararinnar.
„Annars fannst mér það ótrúlega
erfið raun að mæta og segja hvert væri
aðalsimanúmer Dagblaðsins, 27022 er
svo líkt okkar númeri sem er 27121”,
sagði Guðmundur, það munar ekki
nema 99 númerum.
Nánarsegirfrádrættinumábls. 5. •
Mblföviðrini^eykjavn^gærdag:
Blómlegt
mannlíf
Þeir voru trúlega fáir Reykvíkingarnir
sem héldu sig innan dyra í blíðviðrinu í
gærdag. Og ekki var hægt að kvarta yfir
því að lítið væri um að vera:
• / Laugardal öttu kappi saman lið
Akraness og Vals i bikarkeppninni í
knattspyrnu. Alll um það er að finna
á Iþróttasíðunum í miðju blaðsins.
• Flugdagur var haldinn á Reykjavikur-
fugvelli. Þar var margmenni mikið
ekki síður en i Laugardal. Við segj-
um frá sýningunni i máli og mynd-
umá bls. I4idag.
• Ekki er sólin alveg búin að kveðja
okkur þelta góða sumar. En Sól-
kveðjuhátíð var þó haldin og sótti
hana mikillfjöldifólks og hafði veru-
lega skemmtun af. Við segjum frá
þeirri hátíð á bls. 61 dag.
Þá var mikillfjötdifólks á ferðinni um
allt næsta nágrehni borgarinnar.
sumir að kíkja eftir berjum. aðrir að
renna i Hveragerði til að fá sér kafft.
eða koma við í sumarbústöðum. I
leiðinni var litið á raUkappana sem
óku I rólegheitum í átt að markinu,
Reykjavík. Rallkeppninni eru gerð
góð skil á bls. 23 i blaðinu I dag.
Rallbill gefur I.
Vísitöluhækkun 1. sept.
frestað?
Ríkisstjórnin kann að gefa út bráða-
birgðalög til að fresta vísitöluhækkun-
um sem koma eiga á kaup 1. septem-
ber. Þessi möguleiki hefur verið
ræddur en ákvörðun mun ekki hafa
verið tekin.
Með þessu mundi „gamla stjórnin”
ætla að létta vanda frystihúsanna sem
hafa boðað stöðvurt i. september. Auk
vísitöiuhækkana, sem kunna að geta
orðið állt að 15—17% að óbreyttu, er
3% grunnkaupshækkun samkvæmt
samningum.
Eins og fram hefur komið, hefur sá
möguleiki verið á döfinni að ríkis-
stjórnin felli gengið. Afstaða hennar
til slikra aðgerða á næstu dögum fer
eftir því hvernig horfir um myndun
annarrar rikisstjórnar. • HH
Sigurgleði á Laugardalsvelli.
Flugleiðaþota á fullri ferð á flugdegi.
[90% líkur á vinstri stjórn