Dagblaðið - 28.08.1978, Blaðsíða 20
20
ð
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1978.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Evrópumeistararnir óstöðvandi
— Liverpool vann stórsigur á Maine Road og hef ur sex stig eins og Everton og WB A
D
„Evrópumeistarar Liverpool eru betri
en áður — fyrirlióinn Emlyn Hughes
snjall og ánægðari sem miðvörður ásamt
Phil Thompson. Það var snjallt hjá Bob
Paisley að kaupa Allan Kennedy svo
Hughes kæmist aftur I sina gömlu
stöðu,” sagði Skotinn frægi, Dennis
Law, eftir að Liverpool hafði gjörsigrað
Man. City á Maine Road i Manchester á
laugardag. Úrslit 1—4 og Liverpool-
liðið lék snilldarlega allan leikinn. Rétt
er þó að geta þess, að Man. City lék án
tveggja sinna sterkustu manna — ensku
landsliðsmannanna Dave Watson og
Peter Barnes.
Graeme Souness skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Liverpool á 15. min. með
góðu skoti frá vítateig. Brian Kidd tókst
að jafna átta min. síðar. Það stóð ekki
lengi. Ray Kennedy' náði aftur forustu
fyrii Liverpool á 35. min. og fljótt i siðari
hálfleiknum skoruðu þeir Souness og
Kenny Dalglish og þar við sat. Man.
City átti sín færi. Phil Tompson bjargaði
frá Asa Hartford á marklínu og Kidd
átti stangarskot. Paul Futcher tókst ekki
i sínum fyrsta leik að fylla stöðu
Watsons — og leikmenn City áttu ekki
aðeins við Liverpool. Áhorfendur reynd-
ust þeim erfiðir eins og svo oft áður. Þeir
púuðu á eiginn leikmenn — einkum
Futcher og Mike Channon. Furðulegt
það og leikmenn City gáfust upp fyrir
ofureflinu. Liverpool-liðið hefur sigrað i
þremur fyrstu leikjum sinum og það
verður erfitt fyrir önnur lið að koma í
veg fyrir sigur þess á leiktímabilinu — ef
liðið sleppur við meiðsli Iykilmanna.
Liðið var þannig skipað á laugardag.
Clemence, Neal, Allan Kennedy,
Hughes, Thompson, Ray Kennedy,
McDermott, Souness, Case, Dalglish
og Heighway. Sá siðastnefndi fékk góð
færi i leiknum en var ekki á skotskónum.
Við skulum lita á úrslitin áður en
lengra er haldið.
1. deild
Birmingham-Derby 1—1
Bristol City-A. Villa 1—0
Coventry-Norwich 4—1
Everton-Arsenal 1 —0
Ipswich-Man. Utd. 3—0
Leeds-Wolves 3-0 Plymouth-Lincoln 2—1
Man. City-Liverpool 1-4 Rotherham-Blackpool 2—1
QPR-Nottm. Forest 0-0 Sheff. Wed.-Colchester 0-0
Southampton-Middlesbro 2—1 Shrewsbury-Swindon 0-0
Tottenham-Chelsea 2—2 Tranmere-Hull 1-3
WBA-Bolton 4-0 Watford-Peterbro 1—2
2. deild 4. deild
Brighton-Sunderland 2—0 Bradford-Barnsley 1-2
Cardiff-Oldham 1—3 Darlington-Bournemouth 0-0
C. Palace-West Ham 1—1 Halifax-Grimsby 1—2
Charlton-Bristol Rov. 3-0 Newport-Stockport 1—2
Fulham- Burnley 0-0 Reading-Wigan 2-0
Leicester-Cambridge 1-1 Rochdale-Aldershot 1-1
Newcastle-Luton 1—0 Wimbledon-Northampton 4-1
Notts. Co.-Blackburn 2—1 York-Doncaster 1—1
Orient-Wrexham 0-1 WBA og Everton hafa einnig sex stig
Preston-Sheff. Utd. 2-2 eins og Liverpool í 1. deild. WBA hafði
Stoke-Millwall 2-0 mikla yfirburði gegn nýliðum Bolton og
3. deild
Brentford-Chesterfield
Bury-Gillingham
Carlisle-Walsall
Chester-Exeter
Mansfield-Southend
Oxford-Swansea
0-3
2-2
1-vO
3-0
1—1
0-2
„VERZLUNARFERÐIR KOMU MER ALLTAF I VONT
SKAP, ÞANGAÐ TIL ÉG UPPGÖTVAÐI AYDS
'//
,,Ég hataði að máta föt I verzlunum! Mér fannst ég vera
kjánaleg, þegar ég stóö þar og var að reyna að troða mér I
föt, sem ég vissi að myndu aldrei hæfa mér. Ég var ekkert
ofsalega feit, bara 15 kg of þung. En hvaða máli skipta 15
kg? Reyndu að kaupa einhver sómasamleg föt á 17 ára
stúlku, sem þarf stærð nr. 16. Það eina, sem ég gat klæðzt,
voru buxur og mussa. Ég varð fljótt hundleið á þeim.
Þetta vandamál mitt byrjaði I skólanum. Ég var vön að
fá heita máltlð þar, svo te (meö brauöi og kökum —
auðvitaö!), og þegar ég kom heim.t fékk ég mér heitan
kvöldverð. Ég virtist alltaf vera glorhungruð. Þetta
lagaðist ekkert, þegar ég kom i Tækniskólann: þeir höfðu
mötuneyti, þar sem ég gat keypt snarl allan daginn.
Jæja, ég var að reyna ýmsa megrunarkúra og missti
fáein kiló, en þá 'var ég vön að slaka á og byrjaði að borða
ranga fæðið aftur, þannig aö kilóin voru fljót að koma til
baka, þangað til aö ég uppgötvaðu AYDS.
Ég haföi lesið um AYDS og ég uppgötvaði, að það var
starfandi megrunark’úbbur I bænum, sem ég bý I (kallað-
ur SOSS—the Society of Serious Slimmers) Þannig að ég
gekk iklúbbinn, borðaði minar AYDS, og hef ekki frá þvi
látið undan.
Aðeins 1 AYD (eða tvær) meö heitum drykk um þaö bil
20 minútur fyrir hverja máltlð og ég fann, að ég gat hamiö
matarlystina. Það var dásamlegt! Ég byrjaöi aö klæöast
kjólum i fyrsta skipti I mörg ár — vinir minir voru farnir
að halda að ég heföi ljóta fótleggi! Og megrunarklúbbur-
inn keypti bikini handa mér.
IJfið er dásamlegt núna. Svo sannarlega stórkostlegt.
Þökk sé AYDS”.
Eftir Mary Coyce eins og hún sagði Anne Isaacs það.
Ilvernig Ayds hefur áhrif. Visindamenn halda þvi fram,
aö það sé hluti heilans, sem hjálpi þér til að hafa hemil á
matarlystinni. Það á rætur sínar að rekja til magns
glukosasykurs i blóöinu, sem llkaminn notar sem
orkugjafa Þannig, aö þegar magn glukosans minnkar,
byrjar þú aö finna til svengdar og þetta á sér venjulega
stað stuttu fyrir næstu máltið. En ef þú tekur 1 Ayd (eða
tvær) með heitum drykk (sem hjálpar likamanum að
vinna fljótar úr þeim) um þaö bil tuttugu minútum fyrir
máltið, eykst glukosinn i blóðinu og þú finnur ekki til löng-
unar til að borða mikið. Með Ayds borðar þú minna, af þvi
að þig langar i minna. Einn kassi Ayds inniheldur eins
mánaðar skammt
llvers vegna þú þarfnast Ayds —óháð þvi hver þyngd þin
er.
Ayds innihalda engin lyf, né eru þær til uppfyllingar. Þær
innihalda vitamin og steinefni — mjög mikilvæg til þess aö
vernda þá, sem eru að megra sig og eru ekki vissir um að
þeir fái næg vitamin, þegar þeir borða mjög hitaeininga-
snauða fæðu. Einnig finnst mörgu fólki erfitt aö halda sig
að skynsamlegu fæði. Ayds hjálpar þeim einmitt við það.
Þær hjálpa þér viö aö endurhæfa matarlystina og halda
þyngd þinni i skefjum — vandamál'sem er þaö sama,
hvort sem þig langar til að missa 2 kg eða 20 kg. Þú missir
liklega nokkur kiló tiltölulega fljótlega, en endurhæfing
matarlystarinnar tekur alltaf nokkurn tima.
Mary fyrir Avds: 72 kjj.
Mary rftir Ayds: 57 kg.
HH 75 95 StærA lfi.
x:$ «2 87 StærA 10.
Byrjið Ayds kúrinn ú morgun
og eftir mánuð gœtir þú
orðið nokkrum kilóum léttari
Vauilla
Flavour
Jyds.
VitaminandMiueml
Mánaðar megrunarkúr í
hverjum kassa
NB: Ef þú ert alltof þung(ur) skaltu ráðfæra þig viö lækni
þinn, áður en þú byrjar i megrunarkúr. Þaö er ekki mælt
með Ayds kúrnum fyrir fólk, sem þjáist af offitu vegna
efnaskiptasjúkdóma. Sérher Ayd inniheldur 25 hita-
einingar i mola og sérhver únsa er bætt með: A vitamini
850 I.U., B 1 vítamini (Thiamine hydrochloride) 0.425 mg
B2 vitamin (Riboflavin) 0.425 mg Nicotinic acid (Niacin)
6,49 mg, Calium 216,5 mg. Fosfór 197,6 mg. Járn 5,41 mg.
Ayds fœst í flest öllum
lyfjabúðum um land allt
skoraði tvö mörk í hvorum hálfleik.
Alister Brown tvö og svertingjarnir
Laurie Cunningham og Cyrille Regis sitt
hvort markið. Dave Thomas skoraði
eina mark Everton gegn Arsenal en liðið
hefði átt að skora mun fleiri mörk. Svo
miklir voru yfirburðir Liverpool-liðsins.
Undir lokin varð svo Woods mark-
vörður að taka á öllu sinu til að verja frá
Liam Brady.
Leikur Lundúnaliðanna, Tottenham
og Chelsea, var skemmtilegur fyrir 42
þúsund áhorfendur. John' Duncan
skoraði fyrsta mark leiksins á 10. min.
fyrir Tottenham eftir gott upphlaup
Argentinumannanna Ardiles og Villa.
Peter Swain jafnaði eftir mikil mistök
Glen Hoddles, sem var ekki sjálfum sér
líkur i leiknum. Rétt fyrir hálfleik náði
Tottenham aftur forustu. Enn voru
Argentinumennirnir bakvið upphlaupið
og Gerry Armstrong skoraði. Á 49. min.
jafnaði Swain aftur — og þar við sat.
Vestar i Lundúnum gerði QPR jafntefli
við meistara Nottm. Forest. Ekkert
mark skorað og Forest hefur enn ekki
unnið leik. Heldur ekki tapað — en ekki
munaði miklu á laugardag.
Kevin Beattie, enski landsliðs-
maðurinn, lék með Ipswich á ný. Var
bezti maður á vellinum og sjálfstraust
bikarmeistaranna blossaði upp á ný.
Robson framkvæmdastjóri hafði líka lát-
ið leikmenn sína horfa á filmu af sigur-
leiknum við Arsenal i vor! Paul Mariner
tókst að skora fyrir Ipswich á 16. mín.
og mikið jafnræði var með liðunum
fram i miðjan siðari hálfleikinn. Þá
skoruðu þeir Mariner og Talbot tvö
mörk fyrir Ipswich á sömu mínútunni.
Fyrsti sigur Ipswich var þá i höfn.
Leeds vann einnig 3—0 sigur — gegn
Úlfunum, sem ekki hafa hlotið stig og
ekki skorað mark. Ray Hankin og Frank
Gray, viti, skoruðu fyrir Leeds á 26. og
28. mín. og Currie á 55. mín.
Um aöra leiki i 1. deild er það að
segja, að Coventry vann Norwich
auðveldlega. Þeir Beck, Powell, Wallace
og Ferguson skoruðu mörk liðsins en
Martin Peters eina mark Norwich.
Gerry Daly náði forustu fyrir Derby í
Birmingham en Don Givens jafnaði.
Fyrsta mark hans fyrir Birmingham.
Alan Ball lék aðalhlutverkið hjá
Dýrlingnum. Dave Armstrong skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Middlesbro.
Chris Nicholl jafnaði eftir undirbúning
Ball og Ball sjálfur skoraði svo sigur-
markið. David Rodgers skoraði mark
Bristol City og það nægði til sigurs gegn
Aston Villa, sem þar tapaði í fyrsta sinn
á leiktimabilinu.
t 2. deild er Stoke eina liðið, sem *
sigrað hefur í leikjunum þremur. Alan
Birmingham
á eftir Dirceu
„Ef ég gerist ekki leikmaður hjáí
Birmingham þá fer ég til Mexikó,”
sagði brasiliski landsliðsmaðurinn I
knattspyrnunni Dirceu Jose Guimaras f
Rio de Janeiro i gær. Hann skýrði frá
þvi að hringt hefði verið i hann frá
Birmingham — og eftir þvi, sem skýrt er
frá i blöðunum hefur Birmingham boðið
400 þúsund sterlingspund I
leikmanninn. Það eru um 16 milljónir j
cruzciros. Félag Dirceu, Vasco da Cama !
hafði sett upp átta milljónir cruzeiros,
brasiliska myntin, fýrir leikmanninn.
Mexikanska félagið America hefur
boðið 13 milljónir cruzeiros I hann.
Durban er þar að gera góða hluti. Busby
og svertinginn Crooks skoruðu gegn
Millwall. C.P. og West Ham gerðu jafn-
tefli að viðstöddum 32.611 áhorfendum.
Alan Curbishley skoraði mark WH en
Billy Gilbert jafnaði. Newcastle vann i
fyrsta sinn frá því 2. janúar. Nýi leik-
maðurinn frá Everton, Jim Pearson,
skoraöi eina mark leiksins gegn Luton.
Derek Hales skoraði tvö mörk fyrir
Charlton og hefur skorað 100 deilda-
mörk. Graham Whittle skoraði sigur-
mark Wrexham úr vítaspymu gegn
Orient. Tommy Smith, fyrrum fyrirliði
Liverpool, er nú fyrirliði Swansea og
liðið stendur sig mjög vel. Þá hefur
Barnsley, sem Alan Clarke leikur nú við
og stjórnar, unnið í öllum sínum leikj-
um.
Staðan er nú þannig:
Liverpool 3 3 0 0 9—2 6
WBA 3 3 0 0 7—1 6
Everton 3 3 0 0 4—0 6
Coventry 3 2 1 0 6-2 5
Brístol C. 3 2 1 0 4-2 5
A. Villa 3 2 0 1 5—2 4
Man. Utd. 3 2 0 1 4-5 4
Leeds 3 1 1 1 7-5 3
Chelsea 3 1 1 1 3—3 3
Nott. For. 3 0 3 0 i-i 3
Norwich 3 1 1 1 5—6 i
Southampton 3 1 1 1 5—6 3
Middlesbro 3 1 0 2 5—5 2
Arsenal 3 0 2 1 3-4 2
Ipswich 3 1 0 2 4-5 2
Derby 3 0 2 1 3-4 2
Tottenham 3 0 2 1 4—7 2
Man. City 3 0 2 1 3—6 2
QPR 3 0 1 2 1-3 l
Birmingham 3 0 1 2 2-5 1
Bolton 3 0 1 2 3—8 1
Wolves 3 0 0 3 0—5 0
2. deild
Stoke 3 3: 0 0 5—0 6
West Ham 3 2 1 0 9-3 5
Wrexham 3 2 1 0 2—0 5
Preston 3 1 2 0 8-5 4
Oríent 3 2 0 1 5-2 4
C. Palace 3 1 2 0 5-3 4
Óldham 3 2 0 1 7-8 4
Charlton 3 1 1 1 4-2 3
Cambrídge 3 1 1 1 3—2 3
Sheff. Utd. 3 1 I 1 3-3 3
Burnley 3 0 3 0 3-3 3
Bríghton 3 1 1 1 4—2 3
Millwall 3 1 1 1 3-4 3
Notts. Co. 3 1 1 1 5-7 3
Luton 3 1 0 2 7-5 2
Leicester 3 0 2 1 3-4 2
Brístol Rov. 3 1 0 2 4—7 2
Newcastle 3 1 0 2 3—6 2
Sunderland 3 1 0 2 1—5 2
Blackburn 3 0 1 2 3-7 1
Cardiff 3 0 1 2 3—7 1
Fulham 3 0 1 2 1-4 1
Öster heldur
forustunni
Öster gerði jafntefli við Gautaborg i
Allsvenskan i gær, 2—2 á heimavelli.
Gautaborg náði forustu I leiknum en
öster komst yfir með mörkum Peter
Svensson og Teits Þórðarsonar. Rétt
fyrir leikslok jafnaði Gautaborg. öster
er efst i Ailsvenskan með 24 stig.
Kalmar, sem vann Norrköping, 2—0, er
í öðru sæti með 22 stig. Malmö FF
tapaði fyrir Hammerby og er með 21
stig.
í 2. deild vann Jönköping Trelleborg
1—0 og hefur 20 stig — aðeins þremur
stigum á eftir efsta liðinu IFK Malmö.
Markhæsti leikmaður I Allsvenskan
er Per Olav Ohlsson, Norrköping, með
11 mörk. Teitur er i öðru sæti ásamt
öðrum leikmanni með 9 mörk.
Enn sigrar
Andretti
Mario Andrétti, USA, sigraði i
hollenzka grand prix kappakstrinum I
Zanvoort I gær. Aðeins þrjú mót eru
eftir og virðist Andretti nokkuð öruggur
með heimsmeistaratitilinn. Annar i gær
varð Sviinn Ronnie Petersson og þríðji
Niki Lauda. Meöalhraði Andretti var
188.17 km, en Lauda náði mestum hraða
á hríng 191.200 km.