Dagblaðið - 28.08.1978, Blaðsíða 2
n
Hvað vi/tu vita?
„Hvað er sól?”
Sölhverfið: Myndin sýnir sólina og nokkra af innri reikistjörnum, þar á meðal
jörðina.
lngvar Agnarsson skrifar:
í Dagblaðinu birtist að jafnaði
spurning dagsins. Svo var og
fimmtudaginn 6. júlí sl. "Og spurn-
ing var Hvað er sól? Birt eru svör sex
barna og er fróðlegt að athuga þau
hvert og eitt.
Ljóst er að sum barnanna vita ekki
hvað sól er, en önnur svara spurning-
unni rétt.
Athyglisverð eru eftirfarandi svör:
B.S. 12 ára: „Það er eldhnöttur. Það
gýs á honum og þá kemur hiti eins og
núna.”
R.J.M. 7 ára: „Hún er uppi í himn-
inum ogergul.”
G.L. 6 ára: „Nú, það er sól. Hún er
hringur og er brennandi heit.”
Já, hvað er sól? Freistandi væri að
bera fram fleiri spurningar er snerta
sólina okkar og svara þeim þannig að
til nokkurs fróðleiks mætti verða fyrir
börn og unglinga er kynnu að lesa
þessa grein.
1. Hver er stærð sólar og þvermál
hennar? Þvermál sólar er 1.392.000
kílómetrar (þvermál jarðar 12.742 km)
svo að augljóst er að geysimikill
hnöttur er sólin. Þvermál sólar er því
109 sinnum meira en þvermál jarðar
og efnismagn hennar er 333 þúsund
sinnum meira.
2. Hverjar eru hreyfingar sólar? Sólin
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1978.
Sölgos: Á sólunni gýs stöðugt og við sólmyrkva má sjá rauða stróka sem ná allt
að 30.000 km upp frá yfirborði sólar.
Sólmyrkvi: Hér skyggir tunglið á allt yfirborð sólar en sólstrókar sjast ut tra
dökkri tunglbrúninni (á góðum Ijósmyndum). Kóróna sólar sést mjög vel á þessari
mynd.
Tll NenYork
aö sjá þaö nújasta
Tækni - eöa tískunýjungar, þaö nýjasta í
læknisfræöi eöa leiklist, þaó sem skiptir máli í
visindum eöa viðskiptum.
Þaö er í rauninni sama hverju þú vilt kynnast
- þú finnur það í Bandaríkjunum - þar sem
hlutimir gerast,
New York er mikil miöstöö hvers kyns lista,
þar eiga sér staö stórvióburöir og stefnumótun
í málaralist, leiklist og tónlist svo H»mi séu
nefnd.
Frá New York er ferðin greiö. Þaöan er stutt í
sól og sjó suóur á Flórida - eöa í snjó í
Colorado.
Svo er einfaldlega hægt aö láta sér líða vel viö
aö skoða hringiðu fjölbreytilegs mannlífs.
New York — einn fjölmargra
staöa í áætlimarflugi okkar.
gíS!'/6 wmmm