Dagblaðið - 28.08.1978, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1978.
| Sólkveðjuhátíð íReykjavík:
Uf og fjör á
Lækjartorgi
Það var litríkur og glaðvær hópur
sem safnaðist saman á Skóla-
vörðuholti á þriðja tímanum i gærdag
og fór i skrúðgöngur niður á Lækjar-
torg. Þar var haldin nýstárleg sam-
koma, Sólkveðjuhátíð. Frumkvæðið
kom frá ungu fólki, sem vildi lifga upp
á dapra borg og hversdagslegt mannlíf.
Hátiðir af þessu tagi eru algengar
erlendis. í suðrænum löndum eru þær
föst menningarhefð með aldalanga
sögu að baki. í Reykjavik hefur hins
vegar rikt furðulegt áhugaleysi um
slíka almennings fagnaði. í lög-
reglusamþykkt borgarinnar er meira
að segja bannað að blístra á almanna-
færi, hvað þá að safnast saman með
söngli ogsprelli.
Nú hafa gamlar hömlur verið yfir-
stignar, og vonandi verður
Sólkveðjuhátíðin á sunnudaginn ekki
látin detta upp fyrir að ári. Hún ætti
að verða fastur liður I menningarlífi
höfuðborgarinnar. -GM.
Allir aldurshópar mættu á Sólkveójuhátiöina en þaó var áberandi að smáfólkið
hafði mest gaman af öllu tilstandinu. Litla fólkið krítaði myndir I öllum regnbog-
ans litum á stóttir Austurstrætis, fór í Fram, fram fylking og söng og trallaði af
hjartans lyst.
Ljósmyndir
Ari Kristinsson.
4C
Vopnaðir trommum, gílurum,
munnhörpum, flautum og fleiri
hljóðfærum héldu þessir strákar uppi
ágætri stemmningu i skrúðgöngunni
og á torginu. Sjá miðmynd.
Systurnar tvær sem mættu til hátíða-
haldanna með henni mömmu sinni
völdu sér viðeigandi grimur. Svona
samkoma er nú ekki á hverjum degi.
4t
Á slaginu klukkan hálf þrjú lagði
Sólkveðjugangan af stað frá Skóla-
vörðuholti. Flokkur hljóðfæraleikara
sem átti að fara fyrir göngunni mætti
aöeins of seint en laganna verðir leiddu
mannsöfnuðinn þess í stað fyrsta
spölinn.