Dagblaðið - 28.08.1978, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1978.
"
8
■............... _
Japönskum ævintýramanni bjargað af Grænlandsjökli:
á hundafóðri síð-
dagana á jöklinum
Japanski ævintýramaðurinn Noami
Uemura tók lífinu með ró í gær eftir
að flugvél hafði bjargað honum ofan
af Grænlandsjökli. Uemura var þvi
sem næst kominn yfir jökulinn er
hann varð að hætta för sinni. Hann
hafði farið einn síns liðs um 3000 km
með hundasleða frá nyrsta odda
Grænlands og var förinni heitið til
Narssarssuaq.
Félagi í stuðningsflokki Uemura,
sem varpaði birgðum til hans úr
flugvél og var í talstöðvarsambandi
við hann allan tímann á jöklinum,
sagði að Uemura hefði ekkert látið á'
sjá á þessari maraþonferð yfir jökul-
inn, en ferðin stóð á hálfan fjórða
mánuð. Uemura, sem er 37 ára gamall
vaknaði hress i gærmorgun og gaf
hundum sínum, sem einnig var
bjartaðofan af jöklinum.
Ókleif jökulsprunga á jökul-
jaðrinum, aðeins 80 km frá
Narssarssuaq hefti för ofurhugans og
kom þannig í veg fyrir að hann næði
að komast landveg þangað, en
Narssarssuaq er flugumferðarmiðstöð
á Grænlandi.
Þessi leiðangur Uemura var hinn
siðasti I flokki könnunarleiðangra.sem
hann hefur farið um nánast öll
heimshorn. Japönsk iðnaðarfyrirtæki
ffjölmiðlar hafa staðið að ferðum
ppans. Hann hefur klifið hæstu fjöll
Himalaya, farið yfir Norðurpólinn á
hundasleða og farið niður Amazon
fljótið á eintrjáningi svo nokkuð sé
nefnt.
Leiðin sem Uemura fór hefur ekki
verið farin áður. Hann lýsti för sinni
sem tíðindalítilli, ef frá er skilinn smá-
vægilegur árekstur við ísbjörn I
upphafi ferðar, sem lauk með því að
björninn féll fyrir byssu Japanans.
Uemura mun fljúga til Kaupmanna-
hafnar I dag með konu sinni Kimiko,
sem kom til móts við hann í fyrradag.
Ofurhuginn mun ekki hafa gert nýjar
ferðaáætlanir og hefur enn ekki leyst
það vandamál, hvað gera skál við sér-
þjálfaða sleðahunda hans, 16 að tölu.
Björgun Uemuras af jöklinum tafðist
um nokkra daga, vegna þess að hann
neitaði að yfirgefa hunda sína. Hann
var þá uppiskroppa með matarbirgðir
og varð því að lifa á hundafóðri
siðustu dagana. Mögulegterað fljúga
, með hundana aftur til Japans eða selja
þá grænlenzkum veiðimönnum, að þvi
er talsmaður leiðangursins sagði.
Fyrirhugaður áfangastaður
Uemura, Narssarssuaq á Suður-Græn-
landi var bandarísk herstöð i seinni
heimsstyrjöldinni og þeir byggðu þar
flugvöll við enda fjarðarins. í Narssars-
suaq var fyrrum aðsetur norrænna
víkinga, sem fluttust frá Íslandi á 11.
öld. Rústir byggðar hinna norrænu
manna má enn finna. Búseta hinna
norrænu manna lagðist af þarna á 15.
öld og stofninn hvarf með óskýrðum
hætti.
Noregur:
Má ekki grafa eftir
nasistabrennivíninu
Norsku ríkisjárnbrautirnar hafa
neitað manni nokkrum frá Hamar um
leyfi til að leita falins fjársjóðar. Fjár-
sjóðurinn er þúsundir brennivínsflaskna
sem þýzka setuliðið faldi í Noregi árið
1945. Talið er að fjársjóður þessi muni
leynast I jörðu á landi sem tilheyrir
Norsku ríkisjárnbrautunum.
Er Þjóðverjar gáfust upp I síðari
heimsstyrjöldinni, átti þýzka setuliðið i
Noregi mikið magn af norsku brenni-
víni. Líklegt þykir að hluti af þessu góssi
hafi veriðfalinnijörðu.
Lögreglan hefur varað hinn áhuga-
sama grafara við þvi að grafa í leit að
fjársjóði I landi annarra.
Brúðkaupið breytt-
ist í harmleik
— er hópferðabfllinn rann stjórnlaust
niður f jallshlíðina
Brúðkaup sem haldið var í Zúrich í
Sviss á laugardaginn varð skyndilega að
miklum harmleik. Ástæðan var sú að
rúta sem fiutti brúðhjónin og gesti þeirra
rann stjórnlaust niður fjallshlíð með
þeim afieiðingum að fimrn manns létust.
Nánari tildrög slyssins voru þau að
bifreiðin var á leið með veizlugesti i
fjallaþorp I grennd við Zúrich. U.þ.b. 30
farþegar og brúðhjónin fóru út úr rút-
unni á leiðinni til þess að fylgjast með
sýningu á veginum sem haldin var brúð-
hjónunum til heiðurs. Sjö manns urðu
eftir i bifreiðinni. Að sögn lögreglu
byrjaði bifreiðin skyndilega að renna og
fór út af veginum og 200 metra niður
fjallshlíðina. Þau einu sem komust af úr
slysinu voru kona og barn.
Hársnyrting Villa Þórs
Ármú/a26
2. hæð
Sími34878.
✓
§■11
.7"
Stutt gaman en ánægjulegt
Alls kyns rallí eru nú I gangi, bæði á sjó og á landi. Hér segir frá einu sem átti að fara fram í lofti. Tímarit i Bretlandi bauð
1000 punda verðlaun, eða um hálfa milljón króna, til þess, sem gæti flogið handknúinni eða fótstiginni flugvél eða öllu heldur
flugu.
Margir fundu sig knúna til flugferða en enginn hlaut verðlaunin eftirsóttu.Mennlentuhér og þar án þess þó að skaða sig að
nokkru ráði.
Á myndunum má sjá einn keppandann, Jonathan Cole, á hjartfólgnu apparati sinu. Hann fór þó ekki langt því hann steypt-
ist á nefið ofan i sjó og stolt hans og prýði með honum. Það eru ekki allar ferðir til fiár. bótt farnar sén.
NiceFrakklandi:
HÖGGVIÐ í SAMA KNÉRUNN
-listaverkum og skartgripum fyrir milljónir dollara stolið
Vopnaðir ræningjar stálu skartgrip- húsið og bundu þjónustufólk Florence Þetta er ekki í fyrsta skipti sem frú
um og listaverkum að verðmæti margra
milljóna dollara á frönsku rívíerunni I
gær. Ræningjarnir gerðu sig heima-
komna i glæsihýsi bandarísku milljóna-
ekkjunar Florence Gould, að þvi er
franska lögreglan sagði frá.
Þrír menn vopnaðir byssum réðust á
og létu greipar sópa. Þeir sluppu á brott
með feng sinn. Florence var I sólbaði i
hinum enda hússins og varð ekki vör við
atburðinn. Húsið er enda engin smá-
smíði, en í þvi eru 42 herbergi. Frú
Gould er ekkja fjármálamannsins Frank
J.Gould.
Gould verður fyrir slíkri heimsókn. Það
er ekki lengrá« siðan en í maí, að
ræningjar réðust inn í hús hennar og
stálu þaðan málverkum, sem metin voru
á um 300 þúsund dollara. Ekki er vitað
hvort hér voru á ferð sömu þrjótar.