Dagblaðið - 28.08.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1978.
9
Erlendar
fréttir
JÓNAS
HARALDSSON
I
Fimmti hver
V-Þjóðverji
lifir á opin-
berum
styrkjum
Nærri fimmti hver Vestur-Þjóðverji
lifir á framfærslu hins opinbera, að þvi
er þarlendar heimildir greina.
Hagstofa þeirra Vestur-Þjóðverja
sagði að á síðasta ári hefði 11.3 milljónir
manna eða 18.4% þjóðarinnar haft aðal
framfæri sitt af opinberum styrkjum.
Vestur-Þýzkaland er eitt helzta iðnveldi
heims eins og kunnugt er og efnahagur
manna yfirleitt góður. Þama er
velferðarríkið þó e.t.v. gengið einum of
langt.
Páfakjör gekk fljótar fyrir sig en gert var ráð fyrir:
JÓHANNES PÁLL PÁH
— f etar í fótspor tvegg j a f y rirrennara sinna
Albino Luciani patríarki frá Feneyj-
um var á laugardag kjörinn 263. páfi
rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Luci-
ani tók sér páfanafnið Jóhannes Páll I
og er hann fyrsti páfinn sem tekur sér
tvö nöfn. Þetta eru nöfn tveggja sið-
ustu páfa en Jóhannes Páll hyggst feta
i fótspor þeirra tveggja.
Búizt hafði verið við því að kosning
páfa tæki nokkuð langan tíma að
þessu sinni og þvi kom það mjög á
óvart að nýr páfi skyldi kosinn þegar á
fyrsta degi páfakjörs. Hinn nýi páfi er
65 ára gamall er hann tekur nú við
æðsta embætti rómversk-kaþólsku
kirkjunnar og gerist andlegur leiðtogi
700 milljóna manna i heiminum. Páfi
kom þegar eftir kjör sitt fram fyrir þús-
undir manna sem biðu á Péturstorg-
inu, og blessaði lýðinn.
Luciani kardináli hafði verið
nefndur sem hugsanlegur eftirmaður
Páls páfa 6. en margir aðrir voru þó
taldir líklegri, svo sem Sebastian
Baggio, Paolo Bartoli og Sergio Pigne-
doli. Er Páll páfi var kjörinn tók
kosning hans tvo daga en kjör Jóhann-
esar páfa 23. tók þrjá daga.
Jóhannes páfi er talinn víðsýnn
maður. Hann studdi breytingar þær
sem gerðar voru í Vatikaninu á ár-
unum 1962—65. Honum hefur verið
lýst sem hörðum and-kommúnista og
hann hefur hvatt rómversk-kaþólska
menn á Ítaliu til þess að kjósa ekki
ítalska kommúnistaflokkinn. Jóhann-
es Páll er talinn hafa orðið ihaldssam-
ari mcð árunum að þvi er heimildir frá
Vatikaninu herma.
Eins og kunnugt er, er páfakjör
gefið til kynna með reykmerkjum.
Svartur reykur frá sixtinsku kapell-
unni, þar sem páfakjör fer fram, þýðir
að enn haft páfi ekki verið kjörinn.
Hvítur reykur merkir aftur á móti að
nýr páfi hafi verið kjörinn. Reyk-
merki, sem áttu að gefa til kynna kjör
hins nýja páfa voru þó nokkuð óljós.
Annað slagið virtist reykurinn hvítur
en hina stundina svartur. Ekki fékkst
úr óvissunni skorið fyrr en Pericle
Felic' kardináli kom fram á svalir Pét-
urskii kjunnar og tilkynnti kjörið.
Alls tóku 111 kardinálar frá 50
löndum þátt I páfakjörinu.
Kardlnálar voru fljótir að velja páfa að þessu sinni. Talid er að kostnaður vegna páfakjörs og útfarar Páls páfa nemi um 2.5
milljörðum króna.
Shanghai:
Hné grætt
á í heilu lagi
Skurðlæknum í Shanghai í Kina hefur
tekizt að græða hné í-heilu lagi á mann,
að þvi er fréttastofan I Nýja-Kina
greinir. Hnéð mun hafa verið grætt á
með taugum og æðum.
Fréttastofan sagði að aðgerðin hefði
verið gerð á vinstra fæti á 34 ára göml-
um manni, Ha Chuan-Lung, á síðasta
ári. Aðgerðina framkvæmdu læknar við
háskólasjúkrahúsið Huashan I Shang-
hai.
Ha hafði ekki getað gengið i fjögur ár
eftir vinnuslys, en nú getur hann gengið
hjálparlaust. Hnéð er beygjanlegt og Ha
finnur ekki til sársauka að sögn frétta-
stofunnar.
AFMÆU ONNU PRINSESSU
Anna prinsessa, dóttir Elisabetar Bretadrottningar, varð tuttugu og átta ára á
dögunum. Þá tók Snowdon lávarður, fyrrum eiginmaður Margrétar prinsessu og
mágur Betu, þessa mynd af henni ásamt eiginmanninum Mark Philipps og syni
þeirra Pétri. Myndin er tekin við vatnið I Gatcombe-garðinum rétt við heimili
hjónanna i Gloucestershire á Englandi.
17.skákin:
KARPOV VANN
Heimsmeistarinn I skák, Anatoly
Karpov, vann 17. skákina I einviginu við
áskorandann Viktor Kortsnoj. Karpov
hefur nú 4 vinninga á móti aðeins einum
vinningi áskorandans. Hann skortir
aðeins tvo vinninga til þess að halda titli
sínum.
Kortsnoj gaf skákin eftir 39 leiki og
kom það nokkuð á óvart, því fyrr í skák-
inni voru taldar likur á þvi að hann hefði
vinningsmöguleika. í timahraki gekk
hann hins vcgar í gildru Karpovs og gaf
skákina eftir það. Tólf af þeim 17 skák-
um sem lokið er hefur lokið með jafn-
tefli. Sá skákmannanna sem fyrr vinnur
sex skákir fer með sigur af hólmi í ein-
viginu.
• STARFSGREINASKRÁ
segir þér hverjir geta hugsanlega
boðið þér það sem þú leitar að
hverju sinni.
• KORT
sýnaþérhvar viðkomandi er stað-
settur.
• AÐALSKRÁ
veitir upplýsingar um heimili,
síma, nafii o.fl.
• UMBOÐA SKRÁ
með yfir 4000 umboð á íslandi.
• SÖL USKA TTSNÚMERASKRÁ
ásamt nafnnúmerum.
• SKRÁ YFIR
íslenzk sendiráð og 160 rœðis-
mannsskrifstofur erlendis.
• ÚTFL YTJENDASKRÁ
Uppsláttarrit fyrir alla, jafnt fyrirtœki
sem einstaklinga.
Sparið tíma, fé og fyrirhöfn. Flettið upp í Viðskipti og þjónustu.
Þar er svarið.
ÁRBLIK HF.
Pósthólf 669. Sími 83205 Reykjavík.
Bókin, sem beðiö hejur verið eftir.
Viðskipti og þjónusta er kom-
inút.
ALDREI FLEIRI I
EINNI BÓK.
Upplýsingar'i
um yfir 10
þúsund aðila.