Dagblaðið - 28.08.1978, Blaðsíða 14
DAGBLAÐID. MANUDAGUR 28. AGUST 1978.
Elíeser hljóp í
skarð Bianchis
Gífurlegur mannfjöldi fylgdist með
Flugdeginum á Reykjavíkurflugvelli I
gærdag en hann var haldinn í tilefni af
50 ára afmæli farþegaflugs á tslandi.
1 upphafi sýningarinnar flaug
einhver traustasta farþegaflugvél
þessa tímabils. Douglas Dakota DC-3,
yfir svæðið. Hér var reyndar fyrr-
verandi farþegaflugvél á ferðinni,
TF—NPK, flugvél Landgræðslunnar
og í samfloti við hana var flugvél frá
danska flughernum. Vélarnar lentu
um kl. 14.15 en áður hafði hópur
einkaflugvéla flotið yfir sýningar-
svæðið og Reykjavik I miklu hópflugi.
Síðan rak hvert atriðið annað á flug-
degi. Alls munu eitthvað á milli 50 og
60 flugvélar hafa verið á sýningunni.
Varnarliðið lagði sitt af mörkum til
sýningarinnar og vakti mikla athygli
þegar Lockheed Hercules vél og
Sikorsky þyrla bandaríska flughersins
sýndu eldsneytistöku á flugi. Þá sýndi
þyrlan einnig björgun og ýmsar aðrar
listir. Ekki varð af því að hinn heims-
þekkti listflugmaður Tony Bianchi
sýndi kúnstir sínar. Hann varð að
halda til Englands, en Elíeser Jónsson
hljóp í skarðið og sýndi listflug á
nýjustu flugvél íslenzka flugflotans,
sem er af gerðinni CAP 10, smiðuð I
Frakklandi. Þá sýndu svifflugur, tog
og listflug og fallhlifarstökkið vakti
mikla hrifningu og sagði einn áhor-
fenda við blaðamann DB, að það
hefði ólýsanlega hugarró í-för með sér
að horfa á menn svífa til jarðar „í
einhverri tusku”. Óvæntur og ekki
fyrirfram ákveðinn dagskrárliður var
flug Falkon þotu af gerðinni DA—20
yfir völlinn.
Stór hluti íslenzka einkaflugvéla-
flotans svo og flestar þær flugvélar er
tóku þátt i sýningaratriðunum voru
áhorfendum til sýnis á sýningar-
svæðinu. Það voru íslenzka flug-
sögufélagið og Vélflugufélag íslands,
sem stóðu að þessari sýningu sem þótti
takast hið bezta.
GAJ.
ÍÉMÍÍ
lnnrítun 1 byrjendanámskeið 1 karate hjá Karatefélagi
Reykjavlkur hefstí dag, mánudag.
Innritun í byrjenda-
námskeið i karate
Innritun í ný byrjendanámskeið í karate haustið ’78
fyrir karla og konur, 15 ára og eldri, verður sem hér
segir: Mánudaginn 28. ágúst til föstudagsins 1. septem-
ber kl. 19.00—21.00.
Skráning nýrra nemenda fer fram á skrifstofu félagsins
að Ármúla 28 og í síma 35025 á ofangreindum tímum.
Karatefélag Reykjavíkur,
Seiwa Kai, Ármúla 28. Sími 35025.
sjálfur Tony Bianebi á ferö.
Fallhlifarstökkvari I „mjúkri
lendingu”.
Flestar flugvélar á sýningarathöfninni
voru áhorfendum til sýnis á
flugvellinum og kunnu börnin svo
sannarlega að meta það.
Flugdagurinn 1978: