Dagblaðið - 28.08.1978, Blaðsíða 18
DAfiBlAailLMÁNVfíAff l/B 2«^Cflsmg78.
18
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
íþróttir
Iþró
Dikarínn /i
Sportvöruverslun
Hafnarstræti 16 simi 24520
INGAR BIKARMEISTARAR!
ÍA bikarmeistari í fyrsta sinn í sínum níunda úrslitaleik. Sigruðu Val 1-0
Loksins kom að þvi að Akumesingum
tókst að brjóta i ísinn i Bikarkeppni
KSÍ. Þeir unnu Val mjög verðskuldað 1-
0 i órslitaleiknum á Laugardaisvelli i
gær — fyrsti sigur Akurnesinga i níu úr-
slitaleikjum. Mörgum þótti mál til
komið og það fór aldrei á milli mála, að
Akurnesingar verðskulduðu sigurinn
gegn slöku Valsliði. Þeir gáfu tóninn nær
allan leikinn — voru áberandi betri og
hefðu átt að sigra með meiri mun. 4-1
hefði gefið réttari mynd af gangi leiksins.
Kátir voru karlar hljómaði um allan völl
i gær, þegar Akurnesingar tóku við bik-
arnum mikla og stemmning var gifurleg
þá eins og á öllum leiknum. Einar
Agóstsson utanrikisráðherra afhenti
sigurvegurunum verðlaun sin — og bað
áhorfendur að hylla þá. Það var gert
hraustlega eins og hið vinsæla og sterka
lið ÍA átti skilið. Áhorfendur voru hátt á
áttunda þósund — bikarstemmning og
rammi leiksins allur hinn skemmtileg-
asti.
Deyfð nýbakaðra íslandsmeistara
Vals kom á óvart i leiknum. Liðið lék
einn sinn lakasta leik á keppnistímabil-
inu. Framherjarnir sáust vart — og
vömin hægra megin hriplek. Hins vegar
gat ég ekki sætt mig við — eftir hfna
miklu yfirburði í A í fyrri hálfleik — hve
leikmenn f A drógu sig aftur í siðari hálf-
leiknum. Gáfu þá Val oftast eftir miðj-
NY Cosmos
meistarar
New York Cosmos varð bandarískur
meistarí I knattspyrnu I gær annað áríð i
röð. Sigraði Tampa Bay 3—1 að
viðstöddum 74.901 áhorfenda i New
Jersey. Dennis Tueart, áður Man.City,
skoraði tvö af mörkum Cosmos og var
eftir leikinn kjörinn „bezti leik-
maðurinn”. ítalinn Chinaglia skoraði
eitt mark. Mirandinha skoraði mark
Tampa á 76-min., 2—1, en Tueart
skoraði sitt annað mark strax á eftir.
una og það skapaði vissa hættu þó Vals-
menn nýttu það ekki. Það virtist óþarfi
hjá Skagamönnum. Að visu er gott að
halda fengnum hlut en sókn er oftast
bezta vörnin. Leikurinn var aldrei-ris-
mikill — spenna augnabliksins of mikil
til þess. Fyrri hálfleikur þokkalegur
vegna góðs leiks Akurnesinga. Síðari
hálfleikurinn svo sem ekki neitt til að
hrópa húrra fyrir.
Akurnesingar mættu ákveðnir til
leiks. Nú átti það að takast. Sigur í bikar-
keppninni. Og það tókst. Strax skapaðist
hætta við Valsmarkið. Fyrst eftir mistök
Sævars Jónssonar og litlu munaði að
Pétri Péturssyni tækist að skora á fyrstu
mínútunni en Grímur Sæmundsen
bjárgaði á síðustu stundu — og síðan
urðu Atla Eðvaldssyni á mistök. Spyrnu
Matthíasar Hallgrímssonar var bjargað í
horn. Og á 4. mín. var enn hætta við
Valsmarkið. Sigurði Haraldssyni tókst
að ná knettinum næstum af tám Péturs.
Ólga í vörn Vals gegn ákveðnum Skaga-
mönnum. Eftir að Guðmundur Þor-
björnsson hafði skallað hátt yfir Skaga-
markið úr góðu færi var nær allur þung-
inn í sókn hjá Skagamönnum.
Tveir leikmenn ÍA áttu mestan
heiðurinn af því — Árni Sveinsson og
Karl Þórðarson. Áberandi beztu menn í
leiknum og samvinna þeirra oft frábær.
Þeir renndu sér í gegn að vild upp vinstri
kantinn. Valur átti ekkert svar við stór-
leik þeirra og þó elti Atli Karl að mestu
allan fyrri hálfleikinn slæmt að láta
einn helzta uppbyggjara liðsins I slíkt
hlutverk. Akurnesingar fengu margar
hornspyrnur og hætta var oft við Vals-
markið. En það vantaði herzlumuninn
að Skagamenn skoruðu — auk þess, sem ’
Sigurður Haraldsson stóð vel fyrir sínu í
markinu. Þá brotnuðu margar sóknar-
lotur þeirra á Dýra Guðmundssyni.
Hann var langbeztur Valsmanna í leikn-
um — Grimur einnig ágætur bakvörður.
Sérstaklega varði Sigurður vel skot frá
Árna Sveinssyni neðst í markhornið —
og greip oft vel inn í að öðru leyti. Árni
virtist alls staðar á vellinum — bjargaði
snilldarlega innan markteigs um miðjan
hálfleikinn í einu hættulegasta upp-
hlaupi Vals. Þau voru fá. Þó gat Ingi
Björn gert betur á 36. min. Jón Einars-
son frir en Ingi reyndi að leika á mót-
herja og missti knöttinn.
En sóknarþunginn var hinu megin.
Það hlaut að koma að því að Akurnes-
ingar skoruðu. Sigurður varði skot Árna
i horn. Karl tók hornspyrnuna vel. Lyfti
knettinum inn í vítateiginn. Af höfði
Harðar Hilmarssonar barst hann til
Péturs, sem fékk tima til að athafna sig.
Fast skot hans lenti neðst i vinstra mark-
horninu. Fögnuður gifurlegúr. Loksins
höfðu Skagamenn uppskorið laun erfiðis
sins og það ekki fyrr en eftir 42 mín.
Rétt á eftir munaði litlu að Matthías
skoraði. Snéri illilega á Valsvörnina.
Spyrnti á markið næstum frá hliðarlínu.
Knötturinn lenti innan á stöng og út
aftur.
Síðari hálfleikurinn var lakari — og
oft daufur. Samleikur þó oft allgóður
vegna litils hraða. Akurnesingar léku
sterkan varnarleik. Drógu sig að mér
fannst alltof mikið aftur. Hins vegar
snöggir upp — og Karl Þórðarson var
beinlínis of góður fyrir nokkra samherja
sína eins og Stanley Matthews hér á
árum áður hjá enskum. Sumir Skaga-
menn gátu ekki spáð í snilldarleiki Karls.
Framlína Vals hresstist, jregar Hálf-
dán Örlygsson kom i stað Jóns Einars-
sonar án þess þó að það bjargaði neinu.
Valur fékk þó sín færi. Fyrst Ingi Björn
dauðafrír inn á markteig en skaut beint i
Jón markvörð Þorbjörnsson. Rang-
stöðutaktik Skagamanna heppnaðist
mjög vel í þessum leik — og einnig i
þessu tilviki. Ingi Björn var rangstæður
en línuvörðurinn Óli Olsen brást. Rétt á
jeftir fékk Atli gott færi en spyrnti knett-
inum í hliðamet. Hann lék í sókninni
hjá Val í s.h. Mínúturnar snigluðust
áfram. Matthías meiddist og varð að
yfirgefa völlinn. Jón Áskelsson kom í
hans stað — Dýri og Kristinn Björnsson
báðir bókaðir fyrir innbyrðis átök, og
svo kom að þvi að ágætur dómari leiks-
ins, Guðmundur Haraldsson, flautaði
leikslok. Fögnuður — faðmlög — tár.
Gleði Akurnesinga — og Valsmenn
tóku ósigrinum með mikilli stillingu.
Árni og Karl voru menn leiksins.
Halldór Sigurðsson mjög sterkur mið-
vörður með Jóhannesi. Þeir kaffærðu
miðherja Vals. Guðjón sterkur bak-
vörður og Sveinbjörn Hákonarson kom
á óvart með góðum leik. Pétur ávallt
hættulegur og Matti barðist hetjulega.
Þetta var ekki dagur Vals — liðið
óþekkjanlegt frá þvi, sem það getur bezt.
Dýri þó mjög snjall — Grimúr, Sigurður
og Albert góðir. Aðrir langt frá sínu
bezta.
kallaði Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspyrnuráðs Akraness eftir að hafa
fengið heildaruppgjöríð frá leiknum. Það
fengu Valsmenn einnig — og forustu-
menn beggja liða virtust ánægðir með
„hlutinn”. Áhorfendur, sem greiddu
aðgang, voru 6746, svo áhorfendur I
heild hafa verið talsvert á áttunda
íþróttafatnaður
Merkjum og setjum auglýsingar á iþróttabúninga. Magnafsláttur til félaga, skóla og
starfshópa.
ráðherra. „Ég er ánægður með þessi ór-
slit en Akurnesingar áttu að vinna með
meiri mun,” sagði Halldór brosandi og
skrifaði tékk: Styrktargjald til ÍA — og
hann þakkaði hverjum leikmanni fyrir
leikinn I leikslok.
Eiður Guðnason, þingmaður Vestur-
landskjördæmis. „Ég er ánægður með
þessi órslit fyrir hönd minna manna.
Fyrri hálfleikurinn er einn sá bezti, sem
ég hef séð til fslenzkra liða. Að visu hef
ég ekki verið tíður gestur á vellinum
sfðustu árín en var það hér á árum áður.
Akurnesingar hefðu átt að skora fleiri
mörk,” sagði Eiður, sem fagnaði leik-
mönnum ÍA i bóningsherberginu eftir
ieikinn — og þar var mikið fjör.
ÞAÐ TÓKST - AKURNES-
Þröstur Stefánsson, formaður lþrótta-
bandalags Akraness. „Ég er mjög
ánægður að ÍA skyldi nó sigra l nfundu
tilraun — sjálfur var ég þátttakandi i sex
úrslitaleikjum, sem töpuðust. Skaga-
menn léku betur og hefðu átt að vinna
með meiri mun. Þessi sigur verður
lyftistöng fyrir alit okkar starf — og
markar tfmamót. Við höfum nó sannað,
að við getum sigrað i Bikarkeppninni. ”
Gunnar Sigurðsson, formaður Knatt-
spyrnuráðs Akraness. „Þetta er stærsti
dagur minn með Akranesliðinu. Við
vorum óheppnir að tapa fyrir Val á
Akranesi i 1. deiid i sumar. Nú var aldrei
vafi á þvi hvort liðið hlyti bikarinn og
Kirby hefur stigið enn eitt þýðingar-
mikið skref með liðið. Ég reikna með því.
að hann verði áfram þjálfari ÍA — við
förum að ræða um það við hann.” -hsim.
PÓSt-
sendum
George Kirby, þjálfari í A. „Valsmenn
eru góðir — en þeir eru ekki beztir. Ég
er mjög ánægður með þessi úrslit — allir
leikmenn minir léku vel. T.d. var þetta
aðcins annar leikur Sveinbjörns
Hákonarsonar með liðinu. Áfram með
liöið? — Ja, þú ert sá fyrsti sem minnist
á það. Jú, ég er reiðubúinn að þjálfa
Akurnesinga næsta leiktfmabil. Þá get
ég talað islenzku eftir öll þessi ár hér,”
sagði Kirby og brosti.
Karl Þórðarson. „Ég er mjög
ánægður — alsæll, en þetta var ákaflega
erfiður leikur. Það var mjög gaman af
fyrri hálfleiknum og þá lékum við mun
betur. Létum boltann vinna. Það var
ánægjulegt að verða bikarmeistarí —
þrísvar hef ég hlotið silfurverðlaunin.
Það hefði ekki verið ósanngjarnt að við
skoruðum fleiri mörk,” sagði hinn 23ja
ára Karl, sem margir töldu bezta leik-
manninn á vellinum.
Pétur Pétursson, miðherji ÍA. „Það
var alveg æðislegt að sjá á eftir knettin-
um í markið. Þetta var fimmta mark mitt
— af 11 mörkum Skagamanna — i
bikarkeppninni. Þetta var erfiður leikur
— einkum i siðarí hálfleik, þegar við
reyndum að halda fengnum hlut. Við
vorum ákveðnir i að vinna þá — og það
tókst.” Pétur hefur skorað 24 mörk í
tveimur helztu mótunum i sumar,
islandsmótinu og bikarkeppninni. Það
er afrek, sem erfitt verður að bæta.
Matthías Hallgrímsson, leikmaður
ÍA. „Ég er ánægður en það hefði verið
sanngjarnt að við hefðum haft 2—3
mörk yfir f hálfleik. Það var svekkjandi
að skora ekki, þegar ég spymti knettinum
innan á stöngina. Ég hélt að hann ætlaði
í markið — en það varð ekki,” sagði
Matti, sem fékk slæmt spark á ökklann i
s.h. og varð að yfirgefa völlinn.