Dagblaðið - 28.08.1978, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1978.
(*
Iþróttir
Iþróttir
21
Iþróttir
Iþróttir
D
KR jafnaði á síð-
ustu sekúndunum!
Þór og KR léku fjörleik 1 2. deild á
Akureyri á laugardag að viðstöddum
550 áhorfendum. Þórsarar voru óheppnir
að vinna ekki. Jafntefli varð 3—3 og
skoruöu KR-ingar þriðja mark sitt
nokkrum sekúndum fyrir leikslok.
Flestir áhorfenda voru þá komnir niður
að hliðarlinu — og ætluðu sér að óska
Þórsurum til hamingju með sigurinn.
Dauðaþögn sló hins vegar á flesta, þegar
KR jafnaði. Það hafði stefnt I tvöfaldan
sigur Þórs gegn efsta liði deildarínnar —
en leikmenn liðsins gættu ekki að sér.
KR-ingar voru betri í f.h. og hefðu þá
getað skorað fleiri mörk þó svo eina
mark liðsins í hálfleiknum væri með
heppnisstimpli. Þór sótti hins vegar mun
meira í síðari hálfleik.
Sigþór Ómarsson skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Þór snemma leiks. Fékk
sendingu frá Óskari Gunnarssyni. Á 30.
mín. jafnaði Sigurður Indriðason fyrir
KR — furðulegt mark. Næstum skorað
frá miðju og fór knötturinn yfir Eirík
markvörð, sem hafði hætt sér of framar-
lega. Á 54. min. náði Sigþór aftur
forustu fyrir Þór. Markvörður KR hélt
ekki þrumuskoti Óskars utan vítateigs.
Sigþór fylgdi á eftir og skoraði. Um
miðjan hálfleik bjargaði Þór tvívegis á
marklínu — en KR tókst að jafna á 77.
min. Vilheþn Fredriksen með skalla eftir
fyrirgjöf Sig. Indriðasonar. Á 84. min.
ikoraði Sigurður Lárusson fyrir Þór með
skalla eftir vel tekna aukaspyrnu
Sigtryggs Guðlaugssonar af löngu færi
— en það nægði Þór ekki. Nokkrum
sekúndum fyrir leikslok jafnaði Sigurður
Indriðason. Fékk lausa sendingu og
breytti stefnu knattarins í markið. Vilhj.
Þór Vilhjálmsson var góður dómari.
-StA.
Ármann vann
Ármann sigraði Völsung 4—2 í 2.
deild á laugardag. Egill Steinþórsson og
Snorri Jósefsson skoruðu tvö mörk hvor
fyrir Ármann — Kristján Valgeirsson
fyrir Völsung.
Jafntefli KR á
Sauðárkróki
KR, sigurvegarar 2. deildar, lék viö
Tmdastól á Sauöárkróki í gær. Jafntefli
varð 3—3. Wilhelm Fredriksen, 2 og
Sverrir Herbertsson skoruðu mörk KR
— Örn Ragnarsson, 2, og Óskar Björns-
son mörk Tindastóls.
Bodö Glimt, Norcgi, sigraði Sportive,
Luxemborg, 4—1 I fyrri lcik liðanna í
Evrópukeppni bikarhafa i gær. Staðan í
hálfleik var 1—0 fyrir Luxemborgar-
liðið. Solhaug, tvö, Berg og Hansen
skoruðu fyrír Bodö i s.h. Áhorfendur
4900.
Bikarmeistarar Reynis I 11. flokki. Aftarí röð frá vinstri: Eggert Jóhannesson, þjálfari, Þórír Eiríksson, Jón Guðmann
Pétursson, Ómar Björnsson, Axel Vilhjálmsson, Jón Jónsson, Grétar Sigurbjörnsson, Ásgeir Þorkelsson, Rúnar Helgi
HUðberg, og Sigurður Jóhannsson form. Reynis. Fremri röð frá vinstri. Jóhannes Sigurjónsson, Hallvarður Jónsson, Gisli
Garðarsson, Jón örvar Arason, Óskar M agnússon, Sigurður Guðnason, Viðar Arason og Pétur Sveinsson.
DB-mynd, emm
Reynir bikarmeist-
ari í öðrum flokki
Keflavíkurvöllur, Bikarkeppni U-fl.
Reynir-UBK, 5:2
Reynispiltarnir frá Sandgerði vörðu
titil sinn sem Bikarmeistarar Il-flokks,
með sigrí sínum yfir BreiðabUki, á gras-
vellinum i Keflavik, á laugardaginn, —
fimm mörkum gegn tveimur, eftir að
hafa verið komnir með fjögurra marka
forustu, þegar skammt var liðið af seinni
hálfleik. Sigur Sandgerðinganna var
verðskuldaður, en þó ber að geta þess,
að Breiðablik, gat ekki stiilt upp sinu
sterkasta liði, þar sem nokkrir leikmenn
þeirra voru þátttakendur i Bikarkeppni
KSÍ, með meistaraflokki.
Ómar Björnsson, skoraði tvö mörk
Reynismanna, fyrsta og þriðja, mjög
laglega. Annað markið skoraði Grétar
Sigurbjörnsson, en Þórir Eiríksson og
Jón Guðmann, fjórða og fimmta
markið. Fyrir Breiðablik skoraði Þórir
Gíslason, bæði mörkin, hið fyrra úr víta-
spyrnu. Árni Þorgrimsson afhenti
Reynismönnum Bikarinn að leikslokum.
ásamt verðlaunapeningum, en þetta er í
15. sinn sem keppnin fer fram, en Akur-
nesingar hafa unnið hana oftast eða
fimm sinnum alls.
emm
CAULKINS KOMIN
MEÐ 5 HM-GULL
— ítalir óvænt sigurvegarar
ísundknattleik
Hin 15 ára Tracy Caulkins, USA,
vann enn til tveggja gullverðlauna á HM
i sundi i V-Berlin á laugardag. Hefur
unnið fimm gull i allt og er stjarna heims-
meistarakeppninnar. Hún jafnaði heims-
metið I 200 m flugsundi — og var i sigur-
sveit USA, sem stórbætti heimsmetið í
4X100 m skríðsundinu. Itaba varð mjög
óvænt heimsmeistarí í sundknattleik I
gærkvöld. Gerði jafntefli við Ungverja-
land i siðasta leiknum, 4-4. Hlaut 5 stig.
Ungverjaland í öðru sæti með 4 stig.
Júgóslavía þriðja með 2 stig en heims-
meistarar Sovétrikjanna urðu fjórðu
með eitt stig. Úrslit i sundinu á laugar-
dag urðu þessi:
1500 m skríðsund karla
1. Valdimir Salnikov, Sovét, 15:03.99
2. Borut Petric, Júgóslaviu , 15:20.77
3. Bobby Hackett, USA, 15:23.38
4. Max Matzker, Ástralíu, 15:25.60
5. Zoltan Wladar, Ungverjalandi, 15:35.87
6. Daniel Machek, Tékkóslóvakíu, 15:38.57
7.SimonGray, Bretlandi, 15:41.33
ÍBÍ féll á
Norðfirði
Þróttur sigraði ÍBÍ I 2. deild á Norð-
firði í gær I spennandi leik, en sigur
Norðfjarðarliðsins var nokkuð öruggur
3-2.
Fyrsta mark leiksins kom á 20. mín.
Njáll Eiðsson skoraði fyrir Þrótt og á
óO.ntín. komst Þróttur i 2—0 með marki
Björgúlfs Halldórssonar. Örnólfur
Oddsson minnkaði muninn i 2—1 á 75
mín. og á lokamínútunni voru skoruð tvö
mörk. Fyrst Einar Sigurjónsson fyrir
Þrótt, 3—1, en siðan Krístinn Kristjáns-
son fyrir ÍBÍ.
ÍBÍ lék á Eskifirði á föstudag við
Austra og vann 4—1. ÍBÍ náði forustu á
44 mín. með marki Gunnars Péturssonar
— en Bjarni Krístjánsson jafnaði fyrir
Austra í síðari hátfleik. Þannig stóð þar
til venjulegum leiktlma var lokið — en
miklar tafir voru i leiknum og leiknar 10
mín til viðbótar. Þá skoruðu Kristinn
Kristjánsson, örnólfur Oddsson og Jón
Oddsson þrjú mörk fyrir ÍBÍ.
VS.
Djan Madruga, Brasiliu, sem komst i úrslitin, lauk
ekki sundinu.
100 m flugsund karla
1. JoeBottom, USA, 54.30
2. Greg Jagenburg, USA, 55.26
3. Per Arvidsson, Sviþjóð, 55.38
4. Roger Pyttel, A-Þýzkalandi, 55.40
5. Dan Thompson, Kanada, 55.43
j6. KlausSteinbach, V-Þýzkal.. 55.50
7. Miloslav Rolko, TékkósJóvakiu, 55.96
8. Kees Vervorn, Hollandi, 56.27
200 m flugsund kvenna
1. T racy Caulkins, USA, 2:09.87
2. Nancy Hogshead, USA, 2:11.30
3. Andrea Pollack, A-Þýzkalandi, 2:12.63
4. Wendu Quirk, Kanada, 2:14.08
5. Cinzia Rampazzo, ttaliu, 2:14.76
6. Kelly Albright, Kanada, 2:15.44
7. Ann Osgerby, Bretlandi, 2:16.01
8. Jane Lang, A-Þýzkalandi, 2:17.43
4X100 m skriðsund kvenna
1. Bandarikin 3:43.43
2. A-Þýzkaland 3:47.37
3. Kanada 3:49.59
4. Holland 3:50.88
5. Sovétríkin 3:51.27
6. V-Þýzkaland 3:51.76
7. Sviþjóð 3:52.46
8. Bretland 3:54.88
Dýfingar kvenna af háu bretti
1. Irena Kalinina, Sovét, 412.71
2. Martina Jaeschke, A-Þýzkal., 384.09
3. Melissa Briley, USA, 364.74
4. Barb Weinstein, USA, 363.84
5. Kerstin Krause, A-Þýzkal., 362.16
Staðan
Í2. deild
Úrslit 12. deild um helgina urðu þessi.
Fylkir-Haukar 1-2
Ármann-Völsungur 4—2
Austri-ÍBÍ 1-4
Þór-KR 3-3
Þróttur-ÍBÍ 3-2
Staðan er nú þannig:
KR 16 12 3 1 45- -7 27
ÍBÍ 17 7 5 5 29- -23 19
Reynir 17 7 4 6 22- -20 18
Haukar 16 6 5 5 19- -17 17
Þór 16 6 5 5 15- -15 17
Austri 16 6 4 6 15- -19 16
Þróttur 16 6 4 6 20- -25 16
Fylkir 16 6 1 9 17- -20 13
Ármann 16 5 2 9 19- -26 12
Völsungur 16 2 3 11 13- -40 7
Þú gsarft ekki að leita viðar
EYflUNDSSON
Austurstræti 18 Sími 13135
Allt til skólans
Námsbækurnar
Ritföngin
urnar