Dagblaðið - 28.08.1978, Qupperneq 36
Stjórnarmyndunin:
ff
90% líkur á
vinstri stjórn
ff
segir
Steingrímur
„50:50”
segja kratar
ágreiningur
um landbúnað
armálenann-
ars talsvert
samkomulag
„í málefnasamningi viðræðuflokk-
anna er ákaflega lítið sem menn
greinir á um, að minnsta kosti varð-
andi efnahagsmáilin,” sagði Stein-
grímur Hermannsson i viðtali við DB.
„Ég tel nú 90% líkur fyrir því, að
þessar viðræður leiði til stjórnarmynd-
unar.”
Hann sagði að vitanlega væru menn
ekki algerlega sammála um alla hluti
en að það væru nánast áherzluatriði
og nánast tæknileg atriði í gerð mál-
efnasamnings, sem menn kynni helzt
aðgreinaá um.
Aðspurður um skipun i ráðherra-
embætti sagði Steingrimur að lítið
hefði verið rætt um hana og ekkert i
viðræðunefndunum ennþá. Er frétta-
maður spurði Steingrím að þvi hvort
Geir Gunnarsson (AB) kæmi til greina
sem fjármálaráðherra sagði hann:
„Það er auðvitað mál Alþýðubanda-
lagsins fremur en okkar Framsóknar-
manna. Annars get ég lýst þvi yfir, að
•ég gæti vel fallizt á Geir i það embætti.
Ég tel aðsú reynsla sé af störfum hans
í fjárveitinganefnd, að ég ber traust til
hans fyrir glöggskyggni og staðfestu,”
sagði Steingrímur Hermannsson.
„Líkurnar eru 50:50, að þessi
stjórnarmyndun takist,” var álit
tveggja þingmanna Alþýðuflokksins á
möguleikum á vinstri stjórn. En
Alþýðubandalagsmenn voru bjart-
sýnni. „Við erum á lokasprettinum.
Ég sé ekki hvað ætti að geta komið í
veg fyrir þessa stjórnarmyndun,” sagði
einn þingmaður þess flokks i morgun.
Ágreiningur hefur komið upp um
ýmis mál, svo sem landbúnaðgrmál.
Framsókn og Alþýðubandalag vilja
láta landbúnaðinn fá 1300 milljónir í
útflutningsbætur til áramóta. Alþýðu-
flokkur hefur þar maldað i móinn og
óskað ýmissa grundvallarbreytinga á
landbúnaðarkerfjnu og að tryggt verði
að fátækustu bændurnir fái stuðning.
„Það er ekki timi til að ræða í botn
ýmis ágreiningsmál,” sagði einn þing-
maður Alþýðubandalags i morgun.
„Þau verður að láta liggja og taka
aftur upp síðar. Stjórnina á að
mynda um lausn núverandi efnahags-
vanda og meginstefnu í framtiðinni. Ef
til vill ætti að gera „verkefnaskrá”
fremur en málefnasamning.
Prógrammið fyrir þetta ár er til og
megin „prinsipin” fyrir næsta ár.”
Skiptar skoðanir
á Alþýðubandaiagi
Miðstjórn Alþýðubandalagsins fól
þingflokkinum i gær að ganga frá
myndun vinstri stjórnar. Skoðanir
voru nokkuð skiptar.
„Skoðun meginþorra manna var sú,
að halda ætti áfram á sömu braut og
hingað til," sagði Kjartan Ólafsson,
varaform. Alþýðubandalagsins, i
viðtali við DB. „Flestir eru á því að
líkurnar séu býsna miklar á þvi að
þessar viðræður leiði til stjórnarmynd-
unar,” sagð i Kjartan Ólafsson.
„Efnahagsmálanefnd kom saman
kl. 10 í morgun. Nefnd, sem fjallar um
önnur mál, svo sem utanríkismál og
félagsmál, kemur þá saman. Alls-
herjarnefnd heldur svo fund kl. 2 í
dag. BS/HH
Enn einn
rallsigur
Ómars og
lóns
Enn einu sinni sigruðu bræðurnir Jón
og Ómar Ragnarssynir í rallkeppni. Um
helgina fór fram lengsta rall, sem haldið
hefur verið hér á landi til þessa. Eknir
voru 1050 kilómetrar á tveimur dögum.
Keppendur komu til Reykjavtkur uppúr
fimm i gærdag, og tveimur klukku-
stundum síðar lágu úrslitin fyrir. Ómar
og Jón höfðu sigrað með 6.01 minútu í
refsistig. Helztu keppinautar þeirra,
Hafsteinn Aðalsteinsson og Magnús
Pálsson hlutu 6.51 minútu í refsistig.
„Þetta hafa verið tveir alveg einstak-
lega skemmtilegir dagar," sagði Ómar, er
Dagblaðið hitti hann að máli rétt eftir að
úrslitin lágu fyrir. „Keppnin var hörð og
jöfn og úrslitin lágu ekki fyrir fyrr en á
síðustu sérleiðinni.”
-ÁT
Sjá nánar um rallið á bls. 23.
»
Jón og Ómar Ragnarssynir hafa verið
einstaklega sigursælir i undanförnum
röllum — hafa unnið hvorki meira né
minna en þrjú. Hér kasta þeir mæðinni
og einhverju öðru áður en þeir leggja i
torfærurnar fyrir ofan Gunnarsholt i '
DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson
Læknadeild svipt rétti til
að beita takmörkunum
— Ákvörðun menntamálaráðuneytis og háskólaráðs
Menntamálaráðuneytið mun i dag
tilkynna breytingu á reglugerð Há-
skóla íslands sem felur i sér að sam-
þykki háskólaráðs þarf til að beita
fjöldatakmörkunum í læknadeild skól-
ans.
„Það er eðlilegt að svo mikilvæg
ákvörðun, sem er bæði póltísk og sér-
fræðileg, sé ekki í höndum einnar
deildar heldur sé mál háskólaráðs og
ráðuneytisins,” sagði Birgir Thorla-
cius, ráðuneytisstjóri í menntamála-
ráðuneytinu, í morgun.
„Ákvörðun ráðuneytisins var tekin
í samráði við mig og háskólaráð,”
sagði Guðlaugur Þorvaldsson há-
skólarektor í samtali við DB í morgun.
„Á fundi háskólaráðs á fimmtudaginn
var samþykkt að breyta reglugerðinni
með þrettán atkvæðum gegn einu,
einn sat hjá.”
Ástæðan fyrir því að ákveðið er að
grípa til þessara aðgerða gegn lækna-
deild Háskólans er sú að i vor sam-
þykkti deildin að takmarka fjölda
nemenda á öðru námsári í læknisfræði
við 35. Aftur á móti stóðust 46 öll próf
og 20 þreyta nú haustpróf. Að
óbreyttri ákvörðun læknadeildar hefði
þvi svo getað farið að um 30
nemendur sem uppfylla faglegar
kröfur Háskólans hefðu ekki fengið að
stunda nám í læknisfræði.
Háskólarektor sagði að starfandi
væri nefnd sem ynni að úttekt á mál-
um læknadeildar og mundi hún skila
endanlegri skýrslu um áramót. Hefði
hann talið eðlilegra að biða með
ákvarðanir um fjöldatakmarkanir
þangað til niðurstaða nefndarinnar
lægi frammi.
DB reyndi í morgun að ná tali af
formælendum læknadeildar en það
reyndist árangurslaust. — GM
frfálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST1978.
Gengis-
skráningu
hætt
— innborgunarskylda
— gengisfelling
Gjaldeyrisdeildum bankanna var
lokað í morgun. Búizt var við, að það
væri fyrirboði gengisfellingar, sem spáð
hefur verið að verði nálægt tuttugu af
hundraði. Viðskiptabankamir setja
innborgunarskyldu á gjaldeyrisviðskipti,
þar sem ekki er unnt að hætta þeim
alveg. Vera má, að gengisskráning verði
látin falla niður um hrið, eða þangað til
fyrirséð verður, hvernig fer um tilraunir
til myndunar nýrrar rikisstjórnar. HH
mynd á 20
mínútum
Þegar gestir mættu á opnun sýningar
Gunnars Gíslasonar listmálara frá
Stokkseyri á föstudagskvöldið kom í ljós
að allfiestar myndirnar voru seldar.
Strax á föstudag, þegar Gunnar og
vinir hans voru að hengja upp mynd-
irnar í Eden í Hveragerði dreif að við-
skiptavini og seldist 21 mynd á 20 mín-
útum en það sem eftir var fór svo að
mestu þetta sama kvöld.
„Ég er náttúrlega mjög ánægður með
þessar viðtökur,” sagði Gunnar, „ein
myndin var seid tvívegis, það voru bara
mistök, ég var búinn að taka hana frá en
svo kom útlendur ferðamaður, keypti
hana og fékk að taka hana með sér
heim.” -JBP
Eldur íverzl-
un á Selfossi
Laust eftir miðnætti aðfaranótt
sunnudagsins kom upp eldur i verzlun
Helga Björgvinssonar á Selfossi. 1 þessu
verzlunarhúsi eru þrjár verzlanir en
eldurinn breiddist ekki út fyrir verzlun
Helga. Slökkviliðið kom á staðinn og
gekk mjög greiðlega að ráða niðurlögum
eldsins en talsverðar skemmdir urðu af
völdum reyks. Eldsupptök eru ókunn en
grunur leikur á að um ikveikju hafi verið
að ræða.
Lögreglan á Selfossi beinir þeim til-
mælum til þeirra sem urðu varir manna-
ferða við verzlunina aðfaranótt sunnu-
dagsaðgefasigfram. -GAJ/GM
Ungur maður
ferst í bílslysi
Banaslys varð skammt frá Akranesi
snemma á laugardagsmorgun, þegar bif-
reið fór út af veginum við Fellsöxl og
valt margar veltur með þeim afleiðing-
um að ökumaðurinn beið bana.
Að sögn lögreglunnar á Akranesi fékk
hún tilkynningu um slysið kl. 6.45. öku-
maðurinn var einn i bifreiðinni og eru
frekari tildrög slyssins ókunn.
ökumaðurinn hét Ómar Bragi Inga-
son, til heimilis að Skólabraut 18, Akra
nesi. Hann var 25 ára að aldri.
-GAJ/GM
(y Kaupið^
TÖLVUR
OG TÖLVUI
BANKASTRÆTI8