Dagblaðið - 13.12.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978.
3
íslendingar lítt ökuhæf ir
Spurning
dagsins
Davíö og Linda skrifa:
Af hverju leggur fólk bílum sinum
svona? Er það af þvi að það er latt, eða
er þetta sjálfselska eða kannski af því
að það vantar ökuhæfni?
Við höfum fylgst með hvernig fólk
reynir að leggja bílum sínum. Sumir
reyna að bakka bilum sínum í stæði
sem er nógu stórt fyrir stærstu gerð
ameriskra bila. Eftir tvær eða þrjár
tilraunir gefst það upp og ekur áfram
inn í stæðið, endar með framhluta
bílsins á gangstéttinni og afturhlulann
að miðri götunni.
Þetta skapar gifurlega hættu og
hefur í för með sér mikla töf á bilaum-
ferð um götuna. svoekki sé nú minnst
á óþægindin fyrir gangandi vegfar-
endur, mæður með bamavagna.
sjóndapurt fólk og fólk í hjólasiólum.
Þegar siðan kemur að þvi að keyra
út úr stæðinu bakkar þetta sama fólk
hálfblindandi út á aðalbraut i stað
þess að gefa stefnuljós og keyra síðan
beint áfram. Veit þetta fólk ekki
hvernig á að leggja bilum löglega?
Síðan eru það sjálfselsku-
ökumennirnir sem finnst þeir eiga
veginn og nota tvö bilastæði þegar þeir
komast mjög vel af með eitt stæði.
Sumir ökumenn leggja einnig fyrir
framan aðkeyrslu að húsum. þannig
að þeir sem þar búa komast alls ekki
með bíla sina inn í bilskúrinn og verða
jafnvel að leggja bílum sinum í næstu
götu.
Gangið niður Laugaveg eða
Hverfisgötu þar sem umferðar-
þunginn er stöðugur eða litið út um
glugga þar sem þið búið og takið eftir
öllum bilunum sem er iagt ólöglega.
hættulega og af hugsunarleysi. Af
hverju þarf þetta að vera svona? Er
Ómaklegar
árásir
á sjómenn
þetta af þvi að Islendingar eru latir og
sjálfselskir eða er ökuhæfni þeirra
kannskiekki meiri.
Er þessi þáttur ekki verður umhugs-
unar i þessari geigvænlegu
slysaöldu hér í Reykjavík. Getur lög-
reglan ekki komið á fót umferðarher-
ferð. viku og viku i senn, til að vekja
upp sofandi ökumenn áður en þeir
leggjast alveg í dvala yfir veturinn.
Frá Vigfúsi Aöalsteinssyni skrifstofu-
stjóra hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Vegna skrifa um verð á lúðu i DB
núna að undanfömu og sérstaklega
vegna greinar Einars Ásgeirssonar for-
manns Fisksalafélagsins sl. laugardag
þar sem vikiö er að bæjarútgerðum g
viljum við taka fram eftirfarandi ef
átt er við Bæjarútgerð Reykjavikur.
Verð á lúðu 1. flokkur 10 kg ogyfir
er í dag kr. 380 pr. kg skv. til-
kynningu Verðlagsráðs sjávarúl-
vegsins. Til v iðbótar þvi verði kemur
stofnfjársji'nðsgjaId. 10%. þannig að
verðið á lúðunni upp úr skipi er kr.
418 pr. kg. Er þá eftir að koma
lúðunni inn i hús og afgreiða hana til
fisksalanna. Fyrir þá fyrirhöfn fær
B.Ú.R. kr. 72 pr. kg eða sem samsvar-
ar tæplega 15% álagningu og er það
langt undir heimilaðri álagningu
verðlagsstjóra á fiski til fisksala.
Varðandi þá ásökun Einars að
sjómenn velji það bezta úr
lúðuaflanum áður en bæjarútgerðir og
fleiri aðilar fá lúðuna. viljum við taka
fram að við teljum þetta mjög
ómaklegar árásir á okkar góðu
sjómenn os viljum algjörlega visa á
bug dylgjum um það að sjómenn á
togurum B.Ú.R. beri i land lúðu til
sölu til fisksala. Hins vegar það hel'ð
að sjómenn alls staðar á landinu taki
eftir veiðiferð með sér i land fisk i eina
eða tvær máltiðir fyrir sig og teljum
Raddir
lesenda
við þeim það ekkert of gott þegar
tekið er tillit til hins erfiða starfs
þeirra. Þess má geta i lokin að áætlað
er að sala RU.R a lúðu ul fisksala verði
i ár um 20 lonn.
Ómaklegt er að ásaka sjómenn um aó velja þaó besta úr lúóuaflanum áöur en
b .'jarútgerðir og fleiri fá lúóuna.
DB-mvnd Höróur.
Heimffls-
/æknir
riaddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virkadaga.
Endurbætið og lagfærið heimilið með
B/acksi Decken
DN 110 spífeijAu byssa án lofts. Skilar fljótt og vel góðri
áferð. Hentug trreprautunar með nær hvaða tegund
málningar sem ej. Sprautan er einnig hentug til aðsprauta
t.d. skordýraeitri, olíu og fleira.
Kraftmikill "loftlaus" mótor gefur góða yfirferð án þess að
ryka efninu upp.
G. Þorsteinsson & Johnson
Þú getur gert heimili þitt að þægilegri
íverustað með Blackog Decker
sérbyggðum verkfærum. Þau hafa
rétt afl og hraða, þvímótorinn er
innbyggður.
Fjölskylda þín og vinir munu dást að
þvf sem þú getur gert með Black og
Decker sérbyggðum verkfærum.
DN 54 127 mm
hjólsög.
Sérbyggð sög með eigin vélarafli. Sög með
sérstaklega sterkum 450 w mótor.
Stillanleg sögunardýpt allt að 36 mm. Halli á
skurðialltað45°.
Fylgihlutir: venjulegt hjólsagarblað og og hliðarland
fyrir nákvæma sögun.
DN 35
fjölhæf stingsög
Sagaraf nákvaémni
bæðibeintogí
mynstur í nær hvaða
efni sem er því sérstök blöð eru fáanleg fyrir járn,
plastikog fleira.
Vélin sagar allt að 50 mm þykkan við og 25 mm
harðvið.
pN £5 hefill. Fetta kraftmikla tæki heflar tré fIjótt og
'auðv^ldiega. Gamalt timbur verður sem nýtt og grófsagað
tjmbur slétt og fellt á svipstundu.
ÁtækinuernákvæmdýptarstillingfráO.1 mmtil 1.5mm
sem skapar betri og réttari áferð.
ARMULA 1 - SIMI 85533
DN 65 fræsari.
Hraðgengt verkfæri til allskonar fræsivinnu.
Snúningshraðinn er 30.000 snúningar á mínútu og
tekur þessi fræsari tennur allt uþp í 19 mm, úrval
af tönnum er fáanlegt.
✓
Heldurðu
að þú f arir í
jólaköttinn?
Brynja Benediktsdóttir nemi: Nei. ég fæ
oftast frekar litið af fötum en samt alltaf
eitthvað.
Lilja Úlfarsdóttir nemi: Nei, ætli það.
Valdis Daniclsdóttir afgreiðslumaður:
Nei, áreiðanlega ekki. Það hefur aldrei
komiðfyrir.
Kristrún Halla Helgadóttir, 9 ára: Nei.
Hvað það er? Það cr ef maður fær ckki
fin föt.
Lilja Sigriður Guðlaugsdóttir, 10 ára:
Veit ekki. Jólakötturinn er stór, svartur
köttur, sent étur ntann ef maður er i Ijót-
um fötum.
Sigríður Björnsdóttir nemi: Nci, það hef
ég aldrei gert.