Dagblaðið - 13.12.1978, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978.
HVAÐ SEGJA ÞAU UM
SKOÐANAKÖNNUNINA?
' " *
Vegfarendur
teknir
taliog
spurðirálits
-
Niðurstöður skoðanakönnunar Dagblaðsins um það hvaða stjörn-
málaflokki fólk myndi grciða atkvæði sitt, ef þingkosningar færu fram
nú, hafa að vonum vakið mikla athygli.
Samkvæmt niðurstöðum þessum myndi Sjálfstæðisflokkurinn vinna
fimm þingsæti af stjórnarflokkunum. Framsóknarflokkurinn myndi
tapa þrem kjördæmakjörnum þingmönnum, tveimur til Sjálfstæðis-
flokksins og einum til Alþýðuflokksins, og Alþýðubandalagið tapa
cinum þingmanni og Alþýðuflokkurinn einnig einum.
Dagblaðið tók nokkra vegfarendur tali og spurði þá um álit þeirra á
niðurstöðunni. / .
HP.
Pappfrsskurðar-
hnífur
Til sölu er „Ideal” pappírsskurðarhnífur,
rafknúinn, skurðarbreidd 65 cm. Upp-
lýsingar í síma 22133.
Ríkisstjómin er
góðogáeftirað
verða betri
„Ég held að það sé alls ekki rétt mynd
að Sjálfstæðisflokkurinn myndi vinna
fimm þingsæti af stjórninni í dag," sagði
Kristinn Hallstcinsson sjómaður í viðtali
við DB.
„Ríkisstjórnin er ágæt og á eftir að
verða betri, auk þess sem það er alls ekki
komin á hana næg reynsla," sagði
Kristinn ennfremur. „Ég vona að þeir
geti staöið við það sem þeir hafa lofað og
ég er eindreginn stuðningsmaður.”
Breyttur opnunartfmi
Amerísku stytturnar
frá lee Borten nýkomnar
Nag bilastsBi a.m.k. 6 kvöldin
'lilOVlí'AMXIIIÍ
HAFNARSTRÆTI Simi 12717
Póstsendum.
SKÚBÚÐIN SUÐURVERI
STIGAHLÍÐ 45-47. SÍMI83225
ÓDÝRIR, GÓÐIR SKÓR
Kvenleðurstígvól,
yfirvídd.
Stærðir: 36—38.
Kr. 6.800.-
Loð-
fóðruð
vinyl-
stígvól.
Stærðir:
34-38
Kr. 4.900.
Franskir
loðfóðraðir
kuldaskór.
Stærðir:24—46.
Verð frá
kr. 9.000.-
Þetta er ekki
rétt mynd
„Ég tel þetta ekki vera rétta mynd, án
þess að ég geti rökstutt það svona á
stundinni,” sagði Helga Hilmarsdóttir
götunarstúlka. „Samt sem áður er ýmis-
legt ekki nógu gott, eins og t.d. launa-
málin. Ríkisstjórnin á að berjast meira
fyrir bættum kjörum láglaunafólks og
mér sýnist hún hafa gert tillögur i þá
átt,” sagði Helga ennfremur. „Það er
hins vegar ekki komið í Ijós og það getur
verið að það lagist.”
Þettaerekki ^
fjarri lagi
„Þetta er ekki fjarri lagi,” sagði
Guðrún Ásgrfmsdóttir húsmóðir. „Það
er alla vega ljóst að ríkisstjórnin hefur
tapað einhverju fylgi frá síðustu
kosningum.
Aðalástæðan fyrir því eru launa-
málin," sagði Guðrún ennfremur. Hún
taldi einnig að aðgerðir eins og niður-
greiðslur nægðu ekki til þess að endur-
heimta vinsældir og dró i efa að sam-
komulag stjórnarflokkanna yrði
nægilega gott til þess að endast út allt
kjörtimabilið.
Of snemmt að
segja nokkuð
„Ég veit ekki hvað skal segja um þess-
ar niðurstöður,” sagði Eövarð Ingólfsson
iðnverkamaður. „Ég er ekki viss um að
ég myndi styðja Sjálfstæðisflokkinn ef til
kosninga kæmi nú og ég verð að segja að
mér finnst ekki vera komin nægilega
mikil reynsla á þessa ríkisstjórn til þess
að hægt sé að leggja dóm á hana.”
Niðurstöð-
urnar eru
fjarstæða
„Ég held að þetta sé algjör fjarstæða,"
sagði Sæmundur E. Helgason krana-
maður. „Sjálfstæðismenn höfðu enga
lausn á vandanum og ég held að það yrði
enginn bættari með að þeir kæmust að.
Ráðstafanir stjórnarflokkanna í efna-
hagsmálum eru strax farnar að koma
okkur til góðs og ég vona að ríkisstjórnin
sitji sem lengst okkur öllum til góðs.”
Kausekki
þessa stjóm
Tillögur Sjálf-
stæðisf lokksins f
efnahagsmálum
nauðsynlegar
„Um þetta vil ég segja það að ég tel
áróður og glamuryrði hinna stjórnmála-
flokkanna fyrir kosningarnar siðustu
hafa átt mikinn þátt í ósigri Sjálfstæðis-
flokksins,” sagði Lárus Róbertsson
verzlunarstjóri i viðtali við DB. „Þetta
átti sérstaklega við um svokölluð kaup-
ránslög en mér sýnist að það hafi komið
áþreifanlega i ljós að þetta voru aðgerðir
sem nauðsynlegar voru.”
„Ég held að þetta sé rétt, þetta er allt
komið út í hálfgerða óstjórn,” sagði
Sigrún Halldórsdóttir fóstra. „Mér
finnst langt i land með að þeir hafi
staðið við það sem þeir lofuðu um
kosningarnar í vor og ég dreg i efa að
þeir standi við það.
Nei, ég kaus ekki þessa stjórn yfir
mig.”
Hef ekki mikla
trú á henni
„Ég styð Sjálfstæðisflokkinn i þessu
máli,” sagði Páll Halldórsson lyftustjóri.
„Þessi ríkisstjórn hefur ekki staðið sig
nógu vel, sérstaklega hvernig hún hefur
farið með kaupið.
Ráðstafanir hennar í efnahagsmálum
hafa að minu mati ekki komið nógu vel
út, en á það er að lita að hún hefur ekki
verið lengi við völd. Það er kannski rétt
að gefa henni meiri tíma en ég hef ekki
mikla trú á henni,” sagði Páll
ennfremur.