Dagblaðið - 13.12.1978, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 13.12.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978. 15 að samþykkja allar kröfur Friðriks. sem „aðallega hafa verið peningalegar. Með slíkum mönnum getur „aldrei tekist far- sælt samstarr.” Varaforseti SÍ fullyrðir í svari sinu að Friðrik hafi fullvel vitað um samþykki stjórnar SÍ i þá veru að Einar Einarsson skyldi verða gjaldkeri Fide næði Friðrik kjöri. enda hafi það upphaflega verið hugmynd Friðriks sjálfs að Einar yrði gjaldkeri. Þar hafi Friðrik misnotað Fide og beitt brögðum. „Hvar stendur það í lögum Fide að forseti samtakanna hafi eitthvert vald, sem veiti honum rétt til þess að brjóta lög Fide og ganga gjör- samlega á svig við samþykktir stjórnar SÍ, sem gerðar eru eftir lagabókstafn- um?” spyr Högni. Hann segir að Friðrik telji sig æðri öllum, sem ekki séu honum sammála. „Hann gengur svo langt, að hann lætur það verða sitt fyrsta verk eftir að hann hefur náð kjöri sem forseti Fide, að níðast á eigin skáksambandi og þeim mönnum, sem dyggilegast höfðu stutt hann til þeirrar vegsemdar,” segir Högni Torfason. Högni telur Friðrik hafa komið afar illa fram þegar hann hafnaði Einari S. Einarssyni i embætti gjaldkera Fide, i því máli hafi Friðrik ekki sýnt manndóm. „Svo náði hann kjöri og þá var stundin runnin upp til að reiða fram veislukostinn, niðast á sínu eigin skák- sambandi og þverbrjóta lög Fide að geðþótta. Öll þessi vinnubrögð minna óþyrmilega á orð skáldsins: „Ó, þú Guðslambið Odda frá/ill var þín gangan fyrsta.” Verður nú stöðugt fróðlegra að fylgjast með þessum einstöku og hatrömmudeilum. ÓV. efndi til sterkasta og glæsilegasta skák- móts, sem haldið hefur verið hér á landi. Þá setti Friðrik Ólafsson fram þá kröfu, að hann og Guðmundur Sigurjónsson, stórmeistari, fengju greidda fyrirfram þá upphæð, sem næmi væntanlegum kostnaði Skáksambandsins af hótelfæði erlendra keppenda á mótinu... Hefði verið farið að þessari kröfu, segir Högni, þá hefði það valdið SÍ óbærilegum kostnaði. Hann lætur i það skina, að Friðrik hafi gert ótal aðrar fjárkröfur til skákhreyfingarinnar. Afstaða Friðriks til Einars S. Einarssonar og annarra stjómarmanna mótist fyrst og fremst af því að þeir hafi ekki „verið þær læpur” Forseti og varaforseti Skáksambandsins. Einarsson. Högni Torfason til vinstri og Einar a. Nýbygging við JL-húsið Undanfarið hafa átt sérstaðýmsar breytingar og endurbætur á JL- húsinu. Opnuð hefur verið ný byggingavörudeild á 1. og 2. hæð i austurenda hússins, gólfflötur er 600 fm. Hér er um að ræða fjórfalt stærra húsnæði en fyrri verzlun var í og var þessi stækkun möguleg vegna nýbyggingar við bakhlið hússins. Raftækjadeildin, sem var á 2. hæð, hefur nú verið flutt í nýinnréttað húsnæði á 1. hæð og verður lögð aukin áherzla á úrval alls konar ljós- tækja og raftækja. Húsgagnadeildin, sem er á 3. 4. og 5. hæð, verður nú einnig á 2. hæð og verða þar til sölu svefnherbergishúsgögn auk léttra hús- gagna fyrir eldhús og borðstofur. Á 5. hæð verða seldir með miklum afslætti stakir og gallaðir hlutir úr öllum deildum. Birgir Breiðdal arkitekt teiknaði nýbygginguna, svo og allar Innréttinar, sem Trausti Traustason trésmiðameistari sá um smíði á. -GAJ- Gleðileg jölagjöf Nú gefur Happdrætti Há- skólans þér kost á skemmti- legri og óvenjulegri jólagjöf ■ handa vinum og vanda- mönnum. Þú getur fengiö sérstakt gjafakort hjá næsta umboðsmanni HHÍ. Gjafa- ■ kortið er gefió út á nafn, eri eigandi þess getur svö-váli^. sér miöa í HHÍ ’79 stráx’jeftj&v hátíöar hjá hvaöa umbpós^ manni sem er! Gjafakort HHÍ getur óváent oröið aó gleðilegri jólagjöf, ef vinningur fellur á ‘;^v miöann, sem valinn er. Vinningur er alls ekki ólík- legur — vinningshlutfall HHÍ er þaö hæsta í heimi! HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS Menntun í þágu atvinnuveganna Húsateikningar af einbýlishúsi til sölu — sérteiknaðar. Uppl. hjá auglýsingaþjónustu Dag- blaðsins, sími 27022. Nýjarbœkur GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON Þar sem bændurnir brugga í friði Þetta er saga heimslistar og heima- bruggs. Betri skil hafa ekki verið gerð þessum snara þætti sveitalífs kreppuáranna. Mæðiveikin á næsta leiti; bændur í botnlausum skuldum og ótímabærar barneignir og bæjarleki, en sumir eru af þeirri gæsku gjörðir að gera gott úr hverjum hlut, kæta mannlífið. STEFÁN JÚLfUSSON Árni Birtingur og skutlan í skálanum Bók um ungt fólk, ástir þess og áhugamál Ungt fólk er fljótt til athafna og það sannaðist á Árna Birtingi, þegar að skutlan í skálanum afgreiddi hann og ærði þótt hún vildi ekkert með hann hafa. Eina vorbjarta nóttina klifraði hann inn um gluggann til hennar með gítarinn sinn og söng: Ég vil fara undir fötin við þig kæra. Fimmta blndi bókaflokksins Frömuðir sögunnar og landa- funda Francis Drake landkönnuður, sæfari og sjó- ræningi Kristín Thorlacíus þýddi Francis Drake var knúinn sterkri trú- arhvöt og girnd eftir ránsfeng. Hann sigldi ungur forboðnar slóðir, braust að „gullkistum heimsins" og sigldi umhverfis jörðina á árunum 1577— 80. Ævintýraleg frásögn ótrúlegs æviskeiðs. Helgalok eftir Hafliða Vilhelmsson höfund metsölubókarinnar LEIÐ 12, HLEMMUR-FELL Það getur verið örlagaríkt að taka unga konu upp í bíl sinn í Hvalfirði. Sérstaklega ef konan er e.t.v. selur á land genginn og seiður hennar er slíkur að hún nær algjörum tökum á velgjörðarmanni sínum svo nær liggur sturlun af ást og afbrýði. • • • • Om&Orlygur Vesturgötu 42 síu/i:25722 Árni Birtingur og skutlan í skálanum

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.