Dagblaðið - 13.12.1978, Síða 4

Dagblaðið - 13.12.1978, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978. DB á ne ytendamarkaði Nærri 40% verðmunur á einni tegund „barnamjólkur” Verðið alls ekki hærra úti á landsbyggðinni en íborginni „Mér finnst ekki,úr vegi að þið gerð- uð verðkönnun á barnamjólkinni sem fæst i apótekunum,” sagði ungur faðir i simtali við Neytendasíðuna. Sagðist hann hafa orðið var við allt að 40% verðmismun á sams konar mjólkur- dufti í apótekunum í Reykjavík. Við brugðum skjótt við og hringd- um í öll apótekin í höfuðborginni, sem eru þrettán talsins. Við hringdum einnig i apótekin í Kópavogi, Hafnar firði, Keflavik, Mosfellssveit, Akur- eyri. Húsavik, Neskaupstað, Ísafirði og Vestmannaeyjum. Þrjár tegundir á markaðinum 1 Ijós kom að á markaðinum eru þrjár tcgundir af „barnamjólkinni”, Mamex, Lidamin og Linolac. í einu apótekinu, Apóteki KEA á Akureyri, var til Baby O.K., sem kostaði ekki nema 138 kr. dósin, en er þó af sömu stærð og hinar dósirnar. — Afgreiðslu- stúlkan hjá apótekinu sagði að þetta væru gamlar birgðir — verðið siðan á miðju sumri, en þessi tegund af barna mjólk seldist hreinlega ekki. Kannske er bamamjólkin tizkufyrirbrigði eins og svo margt annað í þessum heimi. — Verðið úti á landsbyggðinni var sizt hærra en i Reykjavík en heyrzt hefur að sumar vörutegundir væru mun dýr- ari i dreifbýlinu en í þéltbýlinu á höfuðborgarsvæðinu. — Svo reyndist ekki vera. Munaði nærri 40% á verði Allar þrjár tegundirnar eru álika stórar, Mamex inniheldur um 50 g minna magn en Lidamin og Linolac. Dýrasta Mamex dósin kostaði 1495 kr. en sú ódýrasta 1145 kr. Munar þarna 350 kr„ 23,41%. Mun meiru ntunaði á Lidamininu, kostaði dýrasta dósin 1938 kr. en sú ódýrasta 1173 kr.. og var þannig 39,47% ódýrari. Ódýr- asta Linolac dósin var á 1142 kr. og reyndist 29,85% ódýrari en sú dýrasta sem kostaði 1628 kr. (á þremur stöðum). í Apóteki Vestmannaeyja fékkst upplýst að ekki hefði verið flogið til Eyja undanfarna daga og þvi væri engin barnamjólk til þar. Hins vegar hafa bæði Mamex og Lidamin verið þará boðstólum. Þetta þarf þó ekki að þýða að ung- börn í Eyjum séu i svelti, þvi matvöru- verzlanir viða um land hafa einnig haft þurrmjólkurduftið á boðstólum. 1 Apóteki Akureyrar var Mamexið uppselt, en þegar það var til siðast kostaðidósin 1180 kr. „Nýtt verð" eða hvað? í Laugavegs Apóteki var tekið fram að „verðið væri alveg nýtt”, mjólkur- duftið hefði komið í síðustu viku. Hins vegar er verðið i Laugavegs Apóteki ekki nema i lægri kantinum á Mamex- inu en hinar tvær tegundirnar eru i hærri kantinum. Athyglisvert er að yngsta apótekið af þeim sem tekin voru með í könnun þessa. Mosfellsapótek. er með næst- lægsta verðið á Mamexí. Það hljóta þó að vera alveg „glænýjar” birgðir með „glænýtt” verð, því apótekið var opn- að núna í nóvember! 90% tollur á „mjólkinni" Hjá verðlagsstjóra fengus' hær upp lýsingar að 90% tollur sé harna- mjólkurduftinu, 16% vörugjald, 7,9% heildsöluálagning og 31,7% smásölu- álagning. Enginn söluskattur er af mjólkurduftinu. Mjólkurduft þetta er gefið korna- börnum, sem einhverra hluta vegna geta ekki verið á brjósti og þykir holl og góð fæða fyrstu mánuðina. A.Bj. Mamex Lidamin Linolac Apótek Austurbæjar 1238,- 1563.- 1162.- Árbæjarapótek 1495,- 1938.- Borgar Apótek 1260,- 1591,- Garðs Apótek 1220,- 1664,- 1203.- Háaleitis Apótek 1240.- 1565,- Holts Apótek 1292.- 1609.- 1628,- lðunn 1240,- 1173,- Ingólfs Apótek 1180,- 1565,- Laugarnesapótek 1238.- 1649,- 1628.- Laugavegs Apótek 1238,- 1570,- 1160,- Lyfjabúð Breiðholts 1245.- 1572.- Reykjavíkur Apótek 1275,- 1610,- 1160. Vesturbæjar Apótek 1172.- 1563,- 1628.- Apótek Hafnarfjarðar 1238,- 1563.- Apótek Norðurbæjar, Hafnarf. 1145,- 1595.- Kópavogs Apótek 1260,- 1650.- 1390. Keflavíkur Apótek 1275,- 1649. 1142.- Mosfellsapótek 1146,- Mamex Lidamin Linolac BabyO.K. Akureyrar Apótek Ekki til Apótek KEA (1180) 1610. 138,- Húsavíkur Apótek 1258,- 1675. — — Ar í-'kið Neskaupstað 1390,- — — Apr k ísafjarðar 1245.- — — Apcie' Vesímannaeyja Ekki til — — Það eru aðallcga þrjár tegundir af ungbarnamjólk til á markaðinum í apótekunum, Mamex, Lidamin og Linolac. í einu apó tekinuá Akureyri var til Baby OK, sem var rúmlcga 1500 kr. ódýrara en dýrasta mjólkurdósin i Reykjavík. DB-mynd Bjarnleifur Segja má að nægilegt sé fyrir stóra fjölskyldu að eiga „eitt sett” af myndakökuformum. Hægur vandi er að fá þau lánuð þegar kökurnar eru bakaðar fyrir jólin. DB-mynd Bjarnleifur. Málaðar sírópskökur Við höldum enn áfram með smá- kökuuppskriftir. Sirópskökur tilheyra jólunum. Hérna ei uppskrift að alveg prýðilegu deigi sem gott er að eiga við. Það er þar að auki mjög bragðgott og í „tilraunaeldhúsi” DB hefur það verið notað í myndakökur ýmiss konar, sem síðan eru skreyttar með mislitri sykur- bráð. — Allir á heimilinu geta tekið þátt i að skreyta kökurnar og úr því verður hin bezta skemmtun. 500 g hveiti 250 g sykur 140gsmjörl. 1/2 glas af sf rópi (venjul. vatnsglas) 1/2 glas rjómi (hinn helmingurinn af sama glasinu) 1 tsk. negull .1 tsk. engifer. Sykurbróð: ■ 2 eggjahvitur eru þeyttar með svo- litlum flórsykri, nokkrir dropar af ediki eru látnir út í. Sykurbráðinni er síðan deilt í nokkrar litlar skálar og mismunandi litur látinn út í. Sumir nota sprautupoka til þess að sprauta BAKAÐ MEÐ DAGBLAÐINU bráðinni á kökurnar. í „tilraunaeld- húsinu” hafa verið notaðir tannstöngl- ar til þess að mála með, þvi jafnan hafa svo margir verið við málninguna. Þetta er nokkuð stór uppskrift og kostar hráefnið i hana í kringum 550 kr. - A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.